Fréttablaðið - 26.10.2017, Side 32
Heidi Klum býður alltaf rjómanum af Hollywood til veislunnar sem haldin
er 31. október ár hvert og að
sjálfsögðu mæta allir í sínum
bestu búningum. Sjálf hefur
Heidi látið hafa eftir sér að það
sé hrekkjavaka allt árið heima
hjá henni og hún leggur gríðar-
lega mikið upp úr því að búning-
arnir hennar séu sem glæsi-
legastir og frumlegastir. Hún
hefur alltaf haldið búningnum
sínum vandlega leyndum fram
á síðustu stundu svo nú bíða
margir óþreyjufullir til þriðju-
dags þegar kemur í ljós hvaða
búningur verður fyrir valinu hjá
hrekkjavökuflipparanum Heidi.
Þangað til er gaman að rifja upp
nokkur af gervunum sem hún
hefur tekið á sig gegnum tíðina.
Fyrsta hrekkjavökuveislan var
haldin aldamótaárið 2000 og þá
mætti Heidi hin ljóshærða og
ljósa yfirlitum sem svarthærð
og svartklædd goth-draugadíva.
Árið eftir var hugmyndaflugið og
þorið meira en þá heiðraði Heidi
hina frægu lafði Godivu sem reið
hesti berrössuð gegnum þorp sitt
á elleftu öld. Árið eftir var það
teiknimyndahetjan Betty Boop
og svo tóku við gullin gyðja,
rauðhærð norn og vampíra. 2006
þurfti að fela óléttubumbu og
Klum gerði það í eplabúningi
sem snákur hringaði sig um og
var þar með orðin hinn eini
sanni forboðni ávöxtur. Árið
eftir var hún kisa og þar á eftir
blá, mikilfengleg og margarma
hindúagyðjan Kali. Hjónin Klum
og Seal voru svo tveir hrafnar
árið 2009 sem okkur á norður-
slóðum finnst ekki erfitt að
þekkja sem Hugin og Munin
þótt eitthvað hafi verið rætt
um krákur og Edgar Allan Poe
og árið eftir tók hún á sig gervi
hinna vinsælu umskiptinga eða
Transformers. 2011 var anna-
samt ár hjá Klum en þá hélt hún
tvö hrekkjavökuboð. Í öðru voru
hún og Seal persónur úr Apa-
plánetunni en í hinu mátti sjá
Klum húðlausa á sjúkrabörum í
búningi sem sýndi fullkomlega
vöðvabyggingu mannsins.
Árið 2012 var hrekkjavöku-
gleðinni aflýst vegna ham-
faranna í kjölfar fellibylsins
Sandy en Klum sýndi samt
búninginn sem var mikilfengleg
Kleópatra. 2013 lét hún svo elda
sig, þó ekki í potti heldur með
hjálp förðunarfræðinga sem
bættu um fjörutíu árum við
aldur hennar. Árið eftir reis hún
úr öskustónni sem ægifagurt
fiðrildi og þar á eftir var það
önnur teiknimyndapersóna sem
fékk heiðurinn af Heidi Klum,
nefnilega Jessica Rabbitt, eigin-
kona Kalla kanínu. Í fyrra þótti
Heidi Klum svo slá allt út með
gjörningi en þá var risastórum
kassa með áletruninni Made in
Germany komið fyrir fyrir utan
partístaðinn. Þegar kassinn var
opnaður komu í ljós sex Heidiar
Klum enda hét búningurinn
Klón. Einhverjum þótti erfitt að
greina þá einu réttu frá hinum
en aðrir sögðu að eftirmyndirnar
fimm væru eins og barbídúkkur
af Barbru Streisand. Hvað sem
því líður má ætla að Heidi Klum
sé einmitt á þessari stundu að
leggja síðustu hönd á eitthvert
stórkostlegt búningalistaverk og
það verður sannarlega spenn-
andi að sjá hvað það verður.
Kali, api, fiðrildi og klón
Fyrirsætan og leikkonan Heidi Klum heldur heimsins frægustu hrekkjavökupartí og búningar henn-
ar vekja heimsathygli enda færustu hönnuðir og förðunarfræðingar kallaðir til gervagerðarinnar.
Árið 2008 hrundi fjármálakerfi
heimsins og Heidi Klum brá sér í
gervi refsigyðjunnar Kali.
Heidi Klum og Seal, þáverandi eiginmaður hennar, bregða sér í gervi apanna á
Apaplánetunni árið 2011.
Huginn og Muninn eða kátar krákur? Heidi og Seal brýna goggana góðlátlega í
hrekkjavökuboði sínu 2009.
2013 lét Heidi Klum svo elda sig, þó
ekki í potti heldur með hjálp förð-
unarfræðinga.
Árið 2014 stal þetta fiðrildi algerlega senunni á Times Square en undir
förðuninni leynist að sjálfsögðu Heidi Klum.
Í fyrra þótti Heidi Klum slá sjálfa sig út, eða öllu heldur sjálfar sig en hún mætti sem sexfalt klón af sjálfri sér sem bar
titilinn Made in Germany en Klum er einmitt fædd og uppalin í Þýskalandi.
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur@365.is
NÝ SENDING AF
SVÖRTUM DRÖGTUM
SÍÐUM PILSUM - ODDFELLOW KLÆÐNAÐI
10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 6 . o K TÓ B e R 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R
2
6
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:5
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
1
1
-0
9
7
4
1
E
1
1
-0
8
3
8
1
E
1
1
-0
6
F
C
1
E
1
1
-0
5
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K