Fréttablaðið - 26.10.2017, Side 52
Öll viljum við jú breytingar.
Staðreyndin er þó sú að þeir
sem fara með umboðið eftir
kosningadag, kjörnir fulltrúar
í lýðræðisríki, hafa minna vald
en hver kann að halda, sama
hverju þeir kunna að ljúga að
ykkur, enda svífandi, ósýnileg,
alltumlykjandi hendi markað-
arins, hvatvísinnar, mannlegrar
skammsýni, græðgi og óreiðu
það afl sem kemur til með að
ráða för og, jú, treysta taumhald
sitt enn frekar á heimsbyggðinni
og steypa okkur öllum til glöt-
unar.
Á hverjum degi erum við nær
glötun en samt höldum við í
vonina – við þráum breytingar
eins og barnið þráir mjólkina eða
eins og hundur, hundskvikindi,
sem étur hvað sem það finnur. Étur
eins og það getur, meira og meira
og belgist út hugsanalaust uns það
hefur ekki undan sínu eigin ofáti og
deyr aumkunarverðum dauða þar
sem það liggur við dallinn og slefar.
Og það sér ekki á dallinum því næsta
dýr er mætt til að éta úr honum uns
það fellur á hliðina og deyr sama
aumkunarverða dauðdaga og annar
hundur og annar og að endingu
sjáum við ekki lengur dallinn fyrir
hundshræjunum sem hafa hrúgast
upp í kringum hann og alltumlykj-
andi höndin sem skammtar fóðrið
hellir ekki lengur í dallinn heldur
grefur sín eigin afkvæmi, hrúgu á
hrúgu ofan.“
Að endingu segir „setjum X við
X“ en svo virðist sem Svikamylla
ehf. standi um þessar mundir fyrir
kosningabaráttu til að vekja athygli
á „ósýnilegum, allsráðandi hunds-
hræjadansi fulltrúalýðræðisins“ eins
og segir í tilkynningunni.
stefanthor@frettabladid.is
Heilsan
okkar
Ragnhildur Guðrún
Finnbjörnsdóttir,
umhverfis- og auð-
lindafræðingur og
doktor í lýðheilsu-
vísindum, svarar
heilsuspurning-
um lesenda.
Þegar stjórnvöld hvöttu almenning til að keyra frek-ar á dísilbílum en bensín-
knúnum, fyrir um áratug, er eitt
þekktasta dæmi þess að nauð-
synlegt er að skoða umhverfis-
mál í víðu samhengi. Skattar
voru lækkaðir á dísilolíu og dísil-
knúnar bifreiðar til að hvetja til
minni losunar á koldíoxíði í
andrúmsloftið en koldíoxíð er
gróðurhúsalofttegund. Losun
gróðurhúsalofttegunda veldur
loftslagsbreytingum á jörðinni
sem leiða til súrnunar sjávar, veð-
urfarsbreytinga, bráðnunar jökla,
hækkunar sjávarborðs, röskunar
vistkerfa ásamt fleiri neikvæðum
áhrifum.
Ísland hafði sett sér markmið
um losun gróðurhúsaloftteg-
unda og lækkun skatta á dísil var
gerð til að ná því markmiði. Það
sem menn voru ekki undirbúnir
fyrir var að svifryk og köfnunar-
efnisoxíð í andrúmsloftinu jókst
eftir breytingarnar. Með því að
minnka losun gróðurhúsaloft-
tegunda vegna bruna bensíns
varð okkur þannig ljóst að losun
annarra óæskilegra efna jókst
við aukinn bruna á dísilolíu en
dísilbílar losa allt að hundraðfalt
meira af svifryki og köfnunar-
efnisoxíði heldur en bensínbílar.
Svifryk og köfnunarefnisoxíð
eru ekki gróðurhúsalofttegundir
heldur menga þau andrúmsloftið
í kringum okkur og rannsóknir
hafa sýnt að þessi efni hafa heilsu-
spillandi áhrif á mannfólkið. Sem
dæmi má nefna að aukin svif-
ryksmengun leiðir til fleiri heim-
sókna og innlagna á spítala vegna
hjarta-, æða- og lungnasjúkdóma
auk þess sem efnið hefur verið
tengt við hærri dánartíðni.
Vegna þessa þarf val hvers
og eins á orkugjafa bifreiðar að
byggjast á eigin sannfæringu.
Viltu minnka losun gróður-
húsalofttegunda eða mengun í
andrúmsloftinu? Eða viltu velja
umhverfisvænni kost á borð við
rafknúna bifreið eða tvinnbíl?
Lesendum er bent á að senda
sérfræðingum okkar spurningar
tengdar heilsu og lífsstíl á
heilsanokkar@frettabladid.is.
Hvort er betra
fyrir umhverfið
að keyra bensín-
eða dísilbíl?
Niðurstaða: Bæði bensín-
og dísilbílar eru slæmir fyrir
umhverfið. Því þarf hver og
einn að taka ákvörðun út frá
sinni eigin sannfæringu.
Sem dæmi má
neFna að aukin
SviFRykSmenGun leiðiR
til FleiRi HeimSókna oG
innlaGna á Spítala veGna
HjaRta-, æða- oG lunGna-
Sjúkdóma auk þeSS Sem
eFnið HeFuR veRið tenGt
við HæRRi dánaRtíðni.
Laugardaginn 28. október ganga Íslendingar til kosninga en á skemmti-staðnum Húrra verður boðið upp á Neysluvöku þar sem fram koma Hat-
ari, Cyber, Kuldaboli og russian.girls
í tilefni útgáfu fyrstu EP-plötu Hatara
sem einmitt nefnist Neysluvara.
Að viðburðinum stendur
fyrirtækið Svikamylla ehf.
Blaðamaður hafði samband
við félagið til að grennslast fyrir
um hvernig Neysluvaka væri frá-
brugðin hefðbundinni kosninga-
vöku og fékk eftirfarandi tilkynn-
ingu til baka frá ónafngreindum
talsmanni Svikamyllu ehf.:
„Nú í aðdraganda kosninga
er mikilvægara en nokkru sinni
að hver og einn taki upplýstar
ákvarðanir, setji sig eftir fremsta
megni inn í umræðu og málefni
líðandi stundar, og nýti umboð sitt
með hreinni samvisku. Þá skiptir
ekki síður máli, að þeir sem taka við
keflinu frá kjósendum nýti umboð
sitt af heilindum, gangi til starfa með
almannahag fyrir brjósti og missi
ekki sjónar á þeim gildum, sem þeir
lögðu upp með í kosningabaráttu.
neysluvara
til sölu á neysluvöku
Neysluvakan er í boði svikamyllu ehf. sem hvetur fólk til að setja X við X.
svo virðist sem svikamylla ehf.
standi fyrir kosningabaráttu um
þessar mundir.
Svikamyllu ehf.
Hljómsveitin Hatari
gefur út sína fyrstu
EP-plötu á laugar-
daginn næstkom-
andi. Sveitin mun
koma fram á Neyslu-
vöku sama dag með
Cyber, Kuldabola
og russian.girls. Bak
við viðburðinn er
hið dularfulla félag
Svikamylla ehf.
Uppáhaldslagið þessa stundina?
Núna er ég með Want you back
með HAIM á repeat, þær eru
svo fáránlega miklir töffarar
þessar systur!
Best lag allra tíma?
Svo stór spurning!
Mér finnst Earth
Song með M.J.
eitt fallegasta
lag allra tíma,
reyndar
bara allt með honum hann er á
einhverju öðru leveli með
lög og söng, hann spilaði
ekki einu sinni á hljóð-
færi!
Lagið sem festist mest
á heilanum? Hvolpa-
sveitarlagið!
lagið
Karitas Harpa
Davíðsdóttir
2 6 . o k t ó b e r 2 0 1 7 F I M M t U D A G U r40 l í F I ð ∙ F r É t t A b l A ð I ð
Lífið
2
6
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:5
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
1
0
-F
A
A
4
1
E
1
0
-F
9
6
8
1
E
1
0
-F
8
2
C
1
E
1
0
-F
6
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K