Fréttablaðið - 14.11.2017, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 14.11.2017, Blaðsíða 19
Mjög mikilvægt að hafa heilbrigðar hægðir á öllum ævi- skeiðum. Hrönn Hjálmarsdóttir, næringar- og heilsumarkþjálfi Hrönn Hjálmarsdóttir, nær-ingar- og heilsumarkþjálfi hjá Artasan, segir reglulegar hægðir nauðsynlegar góðri heilsu. Að kúka á hverjum degi „Það ætti í raun að vera jafn eðli- legt að hafa hægðir daglega rétt eins og að borða,“ segir Hrönn. „Meltingarfærin okkar eru undir- staða góðrar heilsu og það er til mikils að vinna að hafa þau alltaf í toppstandi. Þau sjá um að brjóta niður fæðuna þannig að líkaminn getur tekið upp næringarefnin og það sem hann nýtir ekki, skilar hann frá sér í formi hægða. Það er aðeins mismunandi hversu oft við þurfum að hafa hægðir en eðlilegt þykir ef hægðirnar er mjúkar og að við losum þær einu sinni til tvisvar á dag. Hjá sumum er það aðeins sjaldnar en 3-4 sinnum í viku ætti að vera algjört lágmark,“ segir Hrönn. Hægðatregða algeng Harðlífi og hægðatregða eru að sögn Hrannar því miður afar algengt vandamál. Hún segir sífellt fleiri þjást vegna þess, bæði börn og fullorðna. „Lausnin ætti þó ekki að felast í því að nota efni sem framkalla niðurgang nema nauð- syn krefji og ef það er tímabundið. Það er alls ekki í lagi að geta ekki kúkað í marga daga, né að hægða- losun valdi sársauka eða kosti áreynslu. Of tíðar klósettferðir er heldur ekki gott en í báðum tilfellum þarf að finna lausn á vandanum. Lausnin felst þó ekki í einhverju einu ákveðnu, heldur er margt sem þarf að huga að, bæði mataræði, inntaka lyfja, lífsstíll, inntaka á mjólkursýrugerlum og stundum meltingarensímum.“ Ensím og gerlar Ástæður þess að meltingin er í ólagi geta að sögn Hrannar verið margvíslegar. „Það kemur fyrir að okkur vantar meltingarensím en laktósaóþol er einmitt dæmi um slíkt. Röskun á þarmaflóru má í flestum tilfellum rekja til lélegs mataræðis, of mikið af unnum matvælum, sykurneyslu og allt of lítið af trefjum. Sýklalyf og ýmis önnur lyf eins og svefnlyf og þung- lyndislyf hafa mjög slæm áhrif á þarmana, mikil koffín- og áfengis- neysla er slæm svo og streita og óregla á svefni.“ Skortur á meltingaensímum! Matur fer misvel í okkur. Ákveðin matvæli eða samsetning matar getur að sögn Hrannar valdið ónotum og uppþembu og gæti orsökin hugsanlega verið skortur á meltingarensímum. „Þá náum við ekki að brjóta niður ákveðna fæðu nógu vel sem getur skapað hin ýmsu meltingarvandamál. Ýmis heilsufarsleg vandamál geta tengst skorti á meltingarensímum og eru vindverkir, uppþemba, ónot og ógleði algengust. Bólur, exem, höfuðverkur og liðverkir eru einnig þekkt. Meltingarensím eins og Digestive Enzyme Complex er hægt að taka inn með mat en þau hjálpa til við niðurbrot á fæðu í maganum.“ Öflug þarmaflóra Ef þarmaflóran er ekki í jafnvægi hefur það gríðarleg áhrif á heilsufarið en t.a.m. er ónæmiskerfið að mestu leyti staðsett í þörmunum á okkur. Hrönn segir að það geti tekið langan tíma að byggja upp öfluga þarmaflóru. „Ef hún hefur verið lengi í ójafnvægi þarf að huga sér- staklega að því að taka inn öfluga mjólkursýrugerla því hollur matur er kannski ekki nóg. Einnig þarf að huga vel að lífsstílnum en eins og áður sagði eru margir þættir sem hafa áhrif.“ Hægðir segja til um heilsufar Þar sem allir þurfa að hafa hægðir frá vöggu til grafar þá ætti umræðan um hægðir að mati Hrannar ekki að vera eins mikið feimnismál og raun ber vitni. „Það er mjög mikilvægt að hafa heilbrigðar hægðir á öllum æviskeiðum. Á myndinni má sjá hvernig heilbrigðar hægðir eiga að líta út og við ættum öll að gera okkur far um að huga vel að þessum málum, skoða hvernig þær líta út og keppa að því að geta losað daglega.“ Hrönn segir heilbrigðar hægðir forsendu þess að þarmaflóran sé í jafnvægi. „Heilbrigð þarmaflóra er undirstaða heilsunnar og hún ver okkur líka gegn óæskilegum örverum og hefur margs konar áhrif á heila- og taugakerfið, þar með talið geðheilsu.“ Heilbrigðar hægðir frá heilbrigðum líkama Eðlilegar hægðir eru mjúkar og hægt að losa þær án nokkurrar áreynslu. „Ef svo er ekki er líklegt að það vanti trefjar í fæðuna en trefjar fáum við í grófu korni, baunum, grænmeti og ávöxtum. Við meltum ekki trefjarnar en þær drekka í sig vökva og því þarf alltaf að huga vel að því að drekka nóg af vatni. Trefjarnar gera hægðirnar mjúkar, tryggja að þær fari hratt gegnum ristilinn og auðvelda losun.“ Sölustaðir: Apótek, heilsuhús og heilsuhillur verslana. Hvernig voru hægðirnar í dag? „Það er mjög mikilvægt að hafa heilbrigðar hægðir á öllum æviskeiðum. Á myndinni má sjá hvernig heil- brigðar hægðir eiga að líta út og við ættum öll að gera okkur far um að huga vel að þessum málum,“ segir Hrönn Hjálmars- dóttir, næringar- og heilsumark- þjálfi Artasan. Hrönn Hjálmarsdóttir, næringar- og heilsumarkþjálfi hjá Artasan. Prógastró Gull byggir upp þarmaflóruna. Meltingarensím eins og Digestive Enzyme Complex er hægt að taka inn með mat en þau hjálpa til við niðurbrot á fæðu í maganum. Prógastró Gull byggir upp þarma­ flóruna og getur komið reglu á hægðir. Digestive Enzyme Complex, meltingar­ensím auðvelda niðurbrot á mat og auka næringarupptöku. Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana. Beta Glucans IMMUNE SUPPORT + Hver vill ekki forðast kvefpestir? Hér er blanda öflugra flensubana sem draga úr líkum á því að við verðum veik og geta stytt meðgöngutíma kvefpesta. Inniheldur Ylli (elderberry) sem er gömul lækningajurt notuð gegn kvefi og er talinn góður fyrir öndunarfærin og Beta Glucans, en það er talið vera eitt það öflugasta sem við fáum til að styrkja ónæmiskerfið okkar. Öflugt blanda jurta og vítamína sem styrkja og efla ónæmiskerfið Ein á dag! Beta Glucans 5x10 copy.pdf 1 12/10/2017 09:59 FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 Þ R I ÐJ U DAG U R 1 4 . n óv E m b E r 2 0 1 7 1 4 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :5 2 F B 0 4 0 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 3 3 -B 0 E 8 1 E 3 3 -A F A C 1 E 3 3 -A E 7 0 1 E 3 3 -A D 3 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 0 s _ 1 3 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.