Fréttablaðið - 14.11.2017, Síða 19
Mjög mikilvægt að
hafa heilbrigðar
hægðir á öllum ævi-
skeiðum.
Hrönn Hjálmarsdóttir, næringar- og
heilsumarkþjálfi
Hrönn Hjálmarsdóttir, nær-ingar- og heilsumarkþjálfi hjá Artasan, segir reglulegar
hægðir nauðsynlegar góðri heilsu.
Að kúka á hverjum degi
„Það ætti í raun að vera jafn eðli-
legt að hafa hægðir daglega rétt
eins og að borða,“ segir Hrönn.
„Meltingarfærin okkar eru undir-
staða góðrar heilsu og það er til
mikils að vinna að hafa þau alltaf
í toppstandi. Þau sjá um að brjóta
niður fæðuna þannig að líkaminn
getur tekið upp næringarefnin og
það sem hann nýtir ekki, skilar
hann frá sér í formi hægða. Það er
aðeins mismunandi hversu oft við
þurfum að hafa hægðir en eðlilegt
þykir ef hægðirnar er mjúkar og að
við losum þær einu sinni til tvisvar
á dag. Hjá sumum er það aðeins
sjaldnar en 3-4 sinnum í viku ætti
að vera algjört lágmark,“ segir
Hrönn.
Hægðatregða algeng
Harðlífi og hægðatregða eru að
sögn Hrannar því miður afar
algengt vandamál. Hún segir sífellt
fleiri þjást vegna þess, bæði börn
og fullorðna. „Lausnin ætti þó ekki
að felast í því að nota efni sem
framkalla niðurgang nema nauð-
syn krefji og ef það er tímabundið.
Það er alls ekki í lagi að geta ekki
kúkað í marga daga, né að hægða-
losun valdi sársauka eða kosti
áreynslu. Of tíðar klósettferðir
er heldur ekki gott en í báðum
tilfellum þarf að finna lausn á
vandanum. Lausnin felst þó ekki í
einhverju einu ákveðnu, heldur er
margt sem þarf að huga að, bæði
mataræði, inntaka lyfja, lífsstíll,
inntaka á mjólkursýrugerlum og
stundum meltingarensímum.“
Ensím og gerlar
Ástæður þess að meltingin er í
ólagi geta að sögn Hrannar verið
margvíslegar. „Það kemur fyrir að
okkur vantar meltingarensím en
laktósaóþol er einmitt dæmi um
slíkt. Röskun á þarmaflóru má í
flestum tilfellum rekja til lélegs
mataræðis, of mikið af unnum
matvælum, sykurneyslu og allt of
lítið af trefjum. Sýklalyf og ýmis
önnur lyf eins og svefnlyf og þung-
lyndislyf hafa mjög slæm áhrif á
þarmana, mikil koffín- og áfengis-
neysla er slæm svo og streita og
óregla á svefni.“
Skortur á meltingaensímum!
Matur fer misvel í okkur. Ákveðin
matvæli eða samsetning matar
getur að sögn Hrannar valdið
ónotum og uppþembu og gæti
orsökin hugsanlega verið skortur
á meltingarensímum. „Þá náum
við ekki að brjóta niður ákveðna
fæðu nógu vel sem getur skapað
hin ýmsu meltingarvandamál.
Ýmis heilsufarsleg vandamál geta
tengst skorti á meltingarensímum
og eru vindverkir, uppþemba,
ónot og ógleði algengust. Bólur,
exem, höfuðverkur og liðverkir eru
einnig þekkt. Meltingarensím eins
og Digestive Enzyme Complex er
hægt að taka inn með mat en þau
hjálpa til við niðurbrot á fæðu í
maganum.“
Öflug þarmaflóra
Ef þarmaflóran er ekki í
jafnvægi hefur það gríðarleg
áhrif á heilsufarið en t.a.m. er
ónæmiskerfið að mestu leyti
staðsett í þörmunum á okkur.
Hrönn segir að það geti
tekið langan tíma að byggja
upp öfluga þarmaflóru.
„Ef hún hefur verið lengi í
ójafnvægi þarf að huga sér-
staklega að því að taka inn
öfluga mjólkursýrugerla
því hollur matur er kannski
ekki nóg. Einnig þarf að
huga vel að lífsstílnum
en eins og áður sagði eru
margir þættir sem hafa
áhrif.“
Hægðir segja til um
heilsufar
Þar sem allir þurfa að
hafa hægðir frá vöggu til
grafar þá ætti umræðan um
hægðir að mati Hrannar
ekki að vera eins mikið
feimnismál og raun ber
vitni. „Það er mjög mikilvægt
að hafa heilbrigðar hægðir á
öllum æviskeiðum. Á myndinni
má sjá hvernig heilbrigðar hægðir
eiga að líta út og við ættum öll að
gera okkur far um að huga vel að
þessum málum, skoða hvernig
þær líta út og keppa að því að geta
losað daglega.“
Hrönn segir heilbrigðar hægðir
forsendu þess að þarmaflóran sé
í jafnvægi. „Heilbrigð þarmaflóra
er undirstaða heilsunnar og hún
ver okkur líka gegn óæskilegum
örverum og hefur margs konar
áhrif á heila- og taugakerfið, þar
með talið geðheilsu.“
Heilbrigðar hægðir
frá heilbrigðum líkama
Eðlilegar hægðir eru mjúkar og
hægt að losa þær án nokkurrar
áreynslu. „Ef svo er ekki er líklegt
að það vanti trefjar í fæðuna en
trefjar fáum við í grófu korni,
baunum, grænmeti og ávöxtum.
Við meltum ekki trefjarnar en þær
drekka í sig vökva og því þarf alltaf
að huga vel að því að drekka nóg af
vatni. Trefjarnar gera hægðirnar
mjúkar, tryggja að þær fari hratt
gegnum ristilinn og auðvelda
losun.“
Sölustaðir: Apótek, heilsuhús og
heilsuhillur verslana.
Hvernig voru hægðirnar í dag?
„Það er mjög
mikilvægt að
hafa heilbrigðar
hægðir á öllum
æviskeiðum. Á
myndinni má
sjá hvernig heil-
brigðar hægðir
eiga að líta út og
við ættum öll
að gera okkur
far um að huga
vel að þessum
málum,“ segir
Hrönn Hjálmars-
dóttir, næringar-
og heilsumark-
þjálfi Artasan.
Hrönn Hjálmarsdóttir, næringar- og
heilsumarkþjálfi hjá Artasan.
Prógastró Gull byggir upp
þarmaflóruna. Meltingarensím eins og Digestive
Enzyme Complex er hægt að taka
inn með mat en þau hjálpa til við
niðurbrot á fæðu í maganum.
Prógastró Gull byggir upp þarma
flóruna og getur komið reglu á
hægðir. Digestive Enzyme Complex,
meltingarensím auðvelda niðurbrot
á mat og auka næringarupptöku.
Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana.
Beta Glucans
IMMUNE SUPPORT +
Hver vill ekki forðast kvefpestir?
Hér er blanda öflugra flensubana sem draga úr líkum á því að við verðum
veik og geta stytt meðgöngutíma kvefpesta. Inniheldur Ylli (elderberry)
sem er gömul lækningajurt notuð gegn kvefi og er talinn góður fyrir
öndunarfærin og Beta Glucans, en það er talið vera eitt það öflugasta
sem við fáum til að styrkja
ónæmiskerfið okkar.
Öflugt blanda jurta og vítamína sem
styrkja og efla ónæmiskerfið
Ein á
dag!
Beta Glucans 5x10 copy.pdf 1 12/10/2017 09:59
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 Þ R I ÐJ U DAG U R 1 4 . n óv E m b E r 2 0 1 7
1
4
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:5
2
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
3
3
-B
0
E
8
1
E
3
3
-A
F
A
C
1
E
3
3
-A
E
7
0
1
E
3
3
-A
D
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
1
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K