Fréttablaðið - 14.11.2017, Blaðsíða 20
Það gefur lífi mínu lit að hreyfa mig. Ég man eftir mér níu ára, hlaupandi um
allt hús með áfylltar vatnsflöskur
sem ég notaði sem lóð, og ég var
spriklandi í fótbolta, körfubolta og
fimleikum frá blautu barnsbeini,“
segir Aníta Rós Aradóttir, Íslands-
meistari 2017 í módelfitness og
bikarmeistari 2015.
Aníta hefur þó ekki alltaf verið í
toppformi.
„Þegar ég hætti í fótbolta og
byrjaði í framhaldsskóla fór ég allt
í einu að fitna úr hófi fram, eða um
fimmtán kíló á einni önn. Þannig
leið mér ekki vel og ákvað að byrja
í líkamsrækt,“ segir Aníta sem
heillaðist fljótt af lóðalyftingum.
„Mér fannst ótrúlega spennandi
og áhugavert að sjá hvernig hægt
er að móta líkamann eins og leir
með lóðum. Ég stefndi því á að ná
íþróttamannslegum vexti, verða
sterk og öðlast trú á sjálfri mér.
Mótar líkamann eins og leir
Aníta Rós Aradóttir er Íslandsmeistari í módelfitness. MYND/JANEX BELAJEVS
Ath! Eingöngu afgreitt fyrir hópa
Nánari upplýsingar á sjavarbarinn.is
fyrir hópa
Aðeins 3.900 kr. á mann!
Öðruvísi Jólahlaðborð
Grandagarði 9 - Sími 517 3131 - sjavarbarinn.is
Rjómalöguð sjávarréttasúpa
Karrísíld
Rússnesk rauðrófusíld
Grafinn lax og karfi
Tvíreykt sauðahangikjöt
Forréttir
Jólalambakótilettur í raspi
Grillsteikt lambalæri bernaise
Dönsk purusteik
Allt góða og hefðbundna meðlætið
Aðalréttir
Hjónabandssæla
Ís og ávextir
Eftirréttir
Hvergerðingurinn Aníta Rós Ara-
dóttir er Íslandsmeistari í módelfit-
ness. Hún segir enn tíma til að
mæta jólum af hreysti og fegurð.
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@365.is
Mig hafði skort sjálfstraust áður
en ég fór að stunda líkamsrækt en
þarna fann ég sjálfstraustið eflast
og fann innra með mér að ég gæti
allt sem ég vildi og ætlaði mér.“
Aníta hóf lóðalyftingar árið 2010
og árið 2012 keppti hún fyrst í
módelfitness.
„Mig vantaði áskorun fyrir sjálfa
mig. Áskorun sem ég vissi að yrði
ögrandi og krefðist mikils af mér.
Ég vildi setja mér háleitt markmið
sem á endanum færði mér upp-
skeru erfiðisins,“ segir Aníta sem
varð bikarmeistari í módelfitness
2015 og Íslandsmeistari nú í vor.
„Í bæði skiptin varð ég heildar-
meistari í kvennaflokki. Þá keppir
maður fyrst í sínum hæðarflokki
og svo keppa sigurvegarar úr öllum
flokkum, þar sem ég sigraði líka,“
segir Aníta og er ekki í vafa um
hvers vegna hún stóð uppi sem
Íslandsmeistari.
„Ég hreppti Íslandsmeistara-
titilinn vegna þess að ég lagði extra
hart að mér og gaf mitt allra besta
í hvern einasta dag í undirbún-
ingsferlinu. Strax eftir mitt fyrsta
keppnismót 2012 var ég staðráðin í
að verða Íslands- og bikarmeistari,
og það tókst níu og tíu mótum
síðar. Tilfinningin var auðvitað
æðisleg og ég var á bleiku skýi lengi
á eftir.“
Gaman að ögra sjálfum sér
Bikarmótið í fitness fer fram
í Háskólabíói næstkomandi
laugardag, en það er annað stærsta
fitnessmót ársins, á eftir Íslands-
mótinu.
„Á laugardaginn mun ég fylgjast
spennt með úr salnum þar sem ég
meiddist í baki í sumar og er enn
að ná mér af meiðslunum. Von-
andi verð ég orðin góð fyrir næsta
Íslandsmót, þar sem ég mun að
sjálfsögðu reyna að verja Íslands-
meistaratitilinn,“ segir Aníta sem
æfir sex sinnum í viku, einn til tvo
tíma í senn, en tólf sinnum í viku
nokkrum mánuðum fyrir mót.
„Módelfitness er strembið sport
en að sama skapi skemmtilegt.
Það er gaman að ögra sjálfum sér
og alltaf sætustu sigrarnir að ná
erfiðum markmiðum. Álagið er
mikið, stíft mataræði sem saman-
stendur af færri hitaeiningum til
að skera niður fitu, um leið og
hvergi er slegið af æfingum. Slíkt
gengur ekki of nærri líkamanum
svo framarlega sem það er gert á
skynsamlegan hátt,“ segir Aníta og
tekur fram að módelfitness sé alls
ekki fyrir alla.
„Maður þarf að vera vel andlega
sterkur, hafa sterka sjálfsmynd og
hausinn á réttum stað; til að takast
á við mótin og það að verða venju-
legur aftur eftir mót. Módelfit-
ness gengur út á að byggja upp
kvenlegan en íþróttamannslegan
líkamsvöxt. Sýna þarf mismunandi
vöðvamassa eftir flokkum, visst
mikinn skurð, framúrskarandi
sviðsframkomu og pósur sem gefa
rétta mynd af líkamsforminu og
eiga stóran þátt í því að geta skilað
sínu allra besta á sviði,“ útskýrir
Aníta um erfiða og krefjandi
íþróttagrein.
Fram undan eru jólin með öllum
sínum undursamlegu freistingum.
Aníta er með háskólagráðu frá
Háskóla Íslands á Laugarvatni í
íþrótta- og heilsufræðum og starfar
sem einkaþjálfari í World Class á
Selfossi. Hún gefur heilræði til að
mæta jólunum af hreysti og fegurð.
„Best er að halda hollri matarrút-
ínu fram að jólum og leyfa sér svo
lystisemdir jólanna í hófi. Sleppa
öllum öfgum en hreyfa sig reglu-
lega og borða holla og hreina fæðu.
Nú eru sex vikur til jóla og klárlega
nægur tími til að ná árangri, enda
raunhæft að léttast um hálft til eitt
kíló á viku. Það munar um minna,“
segir Aníta og er löngu komin yfir
togstreitu vegna fitandi freistinga.
„Það er erfiðast fyrir fólk að láta
af gömlum vana, eins og súkkulaði-
stykki eftir matinn. Hreyfing og hollt
mataræði á að vera í jafn sjálfsagðri
rútínu og að bursta tennur. Það tekur
ekki nema einn til þrjá mánuði að
tileinka sér nýjan lífsstíl og því um að
gera að skipta úr súkkulaði fyrir ljúf-
fenga skyrdós, ávöxt eða grænmeti.“
Fylgist með Anítu Rós og hennar
lífsstíl á SnapChat undir nitaros og á
Instagram undir anitarosfit.
E
F
LIR
/ H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
STELPUR
KONUR
STAÐURINN
RÆKTIN
Ekki eftir
neinu að bíða!
Síðustu TT – námskeiðin fyrir jól
hefjast 19. nóvember
Tökum mataræðið og ræktina föstum
tökum og fyllum okkur af orku og léttleika!
Velkomin í okkar hóp!
Innritun og nánari upplýsingar
í síma 581 3730 og á jsb.is
Markviss, fjölbreytileg og öflug líkamsrækt
fyrir konur og stelpur sem tekur mið
af þörfum ólíkra hópa og skilar auknum krafti,
hreysti og vellíðan.
Aníta Rós sigurreif með Íslandsbikar-
inn á lofti. MYND/PÉTUR FJELDSTED
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 4 . N ÓV E M B E R 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U R
1
4
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:5
2
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
3
3
-A
B
F
8
1
E
3
3
-A
A
B
C
1
E
3
3
-A
9
8
0
1
E
3
3
-A
8
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
0
s
_
1
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K