Fréttablaðið - 04.12.2017, Side 4

Fréttablaðið - 04.12.2017, Side 4
Íslensk-Bandaríska ehf - Verkstæði og varahlutaverslun - Smiðshöfða 5 - 110 Reykjavík - Sími 534 4433 thjonusta@isband.is - www.isband.is - OPIÐ VIRKA DAGA KL. 07:45 - 18:00 STUTTUR BIÐTÍMI Tæknimenn okkar hafa hlotið sérþjálfun frá FCA (Fiat Chrysler Automobiles) og auk þess með áratugareynslu í að sinna öllum almennum viðgerðum á flestum tegundum bifreiða. GERUM VIÐ FLESTAR TEGUNDIR BIFREIÐA Tímapantanir í síma 534-44 33 VIÐURKENNT ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI OG VARAHLUTAVERSLUN Leigumarkaður „Húsnæðismál eru ein aðalástæða þess að fólk þarf að láta frá sér dýr,“ segir Valgerður Val­ geirsdóttir, formaður Dýrahjálpar Íslands, en fyrir tilstuðlan félagsins – sem starfað hefur í næstum áratug – hafa tæplega sex þúsund gæludýr fengið nýtt heimili. Þeir dýralæknar og forsvars­ menn dýraspítala, sem Frétta­ blaðið hefur rætt við, segja að fyrir tilstuðlan Dýrahjálparinnar hafi mörgum gæludýrum verið þyrmt. Lísa Bjarnadóttir, dýralæknir og einn eigenda Dýraspítalans í Víði­ dal, segir það oft þyngra en tárum taki þegar eina úrræðið sé að lóga dýrunum. Hún segir að það sé alltaf eitthvað um að fólk þurfi að láta aflífa dýrin sín vegna aðstæðna á leigumarkaði en algengt er að gæludýrahald sé ekki leyft í leiguhúsnæði. Það eigi sérstaklega við eldri borgara, sem flytji í þjónustuíbúðir þar sem dýra­ hald sé bannað. Lísa segir sorglegt hversu oft sé horft fram hjá rann­ sóknum sem sýni hvaða jákvæðu áhrif gæludýr geti haft á heilsu eldra fólks. Valgerður segir að með tilkomu samfélagsmiðla reynist nú miklu auðveldara en áður að finna dýrum ný heimili. Fleiri séu reiðubúnir að taka að sér stálpuð dýr. „Áður fyrr var eini sénsinn að svæfa – það var enginn markaður,“ segir hún. Val­ gerður nefnir þó að það sé ekki sjálf­ gefið að dýrin taki vistaskiptunum vel. Í sumum tilvikum brjótist fram hegðunarvandamál hjá dýrunum sem séu afleiðing streitu. Hún segir að á hverjum degi komi fram fólk sem þurfi, vegna flutninga eða reglna um dýrahald, að láta frá sér dýrin. Fæstum dýrunum sé þó lógað. – bg Ástandið á leigumarkaði veldur því að fólk lætur gæludýrin frá sér Valgerður Valgeirsdóttir, formaður Dýrahjálpar Íslands. Fréttablaðið/GVa Samgöngur Bilun kom upp í tveim­ ur Bombardier vélum Air Iceland Connect í síðustu viku sem tengdist hjólabúnaði vélanna. Auk þess þurfti ein vél fyrirtækisins að framkvæma öryggislendingu á Keflavíkurflugvelli um miðjan síðasta mánuð vegna merkis um bilun í hjólabúnaði. Árið 2007 lentu þrjár Q400 vélar SAS í óhöppum sem rekja mátti til hjólabúnaðar þeirra. Hjólabúnað­ urinn olli því að SAS hætti rekstri vélanna á árinu 2008. Á tímabili voru allar flugvélar sem til voru í heim­ inum af þessari gerð sem Air Iceland notar nú kyrrsettar af framleiðanda. Árni Gunnarsson, forstjóri Air Ice­ land Connect, segist auðvitað alltaf hafa áhyggjur ef eitthvað kemur upp. Hann fullyrðir hins vegar að vélarn­ ar standist allar öryggiskröfur. „Ég myndi ekki segja að það sé hættu­ legra að fara upp í okkar vélar en hjá öðrum. Flug er öruggur ferðamáti og mikið lagt upp úr gæðum og öryggis­ kröfum. Farþegar okkar þurfa ekkert að óttast,“ segir Árni. „Við erum með stífar öryggiskröfur og úttektum og eftirliti er háttað eftir því. Miklar kröfur eru gerðar til flugrekenda innan Evrópu og við fylgjum þeim stöðlum. Því eru öryggiskröfur okkar miklar og við stöndum undir þeim.“ Bombardier Q400 vélarnar eru notaðar um allan heim. Árni segir atvikin sem komu upp í vélum Air Iceland Connect í síðasta mánuði ótengd því sem komið hafi upp hjá öðrum. „Atvikið í Keflavík til dæmis sýndi að eitthvað væri að, hins vegar var búnaðurinn í fullkomnu lagi. Á Ísafirði var loka, sem á að loka hjóla­ búnaðinum í flugi, í ólagi og hjóla­ búnaðurinn því í lagi. Því tengjast þessir atburðir ekki. Þriðja bilunin á Egilsstöðum var í nefhjóli og við fundum út úr þeirri bilun fljótt og vélin er komin í lag.“ Á rúmu ári hafa fjögur óhöpp orðið í Evrópu þar sem lendingar­ búnaður Q400 véla hefur verið orsökin. Á þessu ári hefur Flybe, stærsti flugrekandi þessara flugvéla í heiminum, tvisvar lent í óhappi. Þann 10. nóvember nauðlenti vél þeirra í Belfast vegna vandræða í nef­ hjóli. Þann 23. febrúar brotlenti vél frá þeim á Schipholflugvelli í Amst­ erdam þar sem hægri hjólabúnaður gaf sig. Einnig var AirBaltic vél snúið við til Riga vegna viðvörunar um að nefhjólabúnaður væri ekki í lagi og framkvæmd var öryggislending. Flybe á Bretlandseyjum, sem rekur hvað flestar Q400 vélar í heiminum, varði 36% meira fjármagni til við­ halds véla sinna á fyrstu sex mán­ uðum ársins í samanburði við sama tímabil í fyrra. sveinn@frettabladid.is Hjólabúnaður hefur ítrekað plagað sambærilegar flugvélar Tvær Bombardier vélar Air Iceland Connect voru kyrrsettar um tíma í síðustu viku vegna bilunar í hjóla­ búnaði. Sú þriðja nauðlenti í Keflavík 16. nóvember vegna merkis um slíka bilun. Fleiri Bombardier vélar, sömu tegundar og Air Iceland Connect notar í innanlandsflugi, hafa lent í vanda með hjólabúnað. Forstjóri air iceland Connect, Árni Gunnarsson, segir vélarnar standast allar öryggiskröfur. Fréttablaðið/anton brink ViðSkipti Fleiri en tuttugu þúsund fólksbílar hafa verið nýskráðir á Íslandi það sem af er þessu ári og er það meira en þegar mest lét fyrir bankahrun. Um helmingur nýskrán­ inganna er á bílaleigubílum. Fram­ kvæmdastjóri Bílgreinasambandsins segir verð á nýjum bílum hagstætt um þessar mundir. Mikil samkeppni er nú sögð ríkja á milli bílasala um kaupendur. Özur Lárusson, framkvæmdastjóri Bíl­ greinasambandsins, segir að lækkað verð á nýjum bílum skýri að hluta mikla sölu á árinu. – jók Samkeppni mikil í bílasölu SamféLag Kvörtun barst frá einum íbúa vegna hundahalds Sigurbjargar Hlöðversdóttur í Hátúni 10, húsnæði Brynju, hússjóðs Öryrkjabandalags Íslands. Fréttablaðið hefur fjallað um málið að undanförnu en Sigurbjörg kærði uppsögn á leigusamningi sínum vegna hundahalds til kæru­ nefndar húsnæðismála velferðar­ ráðuneytisins. Svar forsvarsmanna Brynju við kærunni hefur nú borist en þar segir að kvörtunin hafi snúið að meintum sóðaskap af hundinum og því að Sigurbjörg hafi viðurkennt að hafa brotið húsreglur með því að halda hundinn í íbúðinni. Sigurbjörg kveðst gangast við því að hafa brotið hinar umdeildu reglur gegn dýrahaldi. „Já, ég braut húsreglur eins og hinir dýraeigendurnir hér í Hátúni og blokk ÖBÍ að Sléttuvegi.“ Hún hafnar því að óþrifnaður sé af Hrolli, pomeranian­hundi hennar. „Við förum nær daglega á Geirsnef til að hreyfa okkur og ég þríf allt eftir minn hund þó lítið sé.“ – smj Kvörtun frá einum íbúa 4 . d e S e m b e r 2 0 1 7 m Á n u d a g u r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a b L a ð i ð 0 4 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 6 4 -2 C 8 C 1 E 6 4 -2 B 5 0 1 E 6 4 -2 A 1 4 1 E 6 4 -2 8 D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 3 _ 1 2 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.