Fréttablaðið - 04.12.2017, Side 8

Fréttablaðið - 04.12.2017, Side 8
Kostnaður heil- brigðiskerfisins af þessari neyslu er orðinn töluverður. Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir, formaður Félags lýðheilsufræðinga GÓÐUR VINNUFÉLAGI Volkswagen Caddy www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ Einn vinsælasti atvinnubíll á Íslandi er Volkswagen Caddy. Hann er áreiðanlegur, öruggur og fæst í tveimur lengdum - hefðbundinni lengd og lengri gerð (Maxi). Caddy má fá með fjórhjóladrifi sem eykur enn við öryggi og aksturseiginleika bílsins. Fjórhjóladrifinn Caddy hentar einstaklega vel við íslenskar aðstæður og eykur til muna notkunarmöguleika Caddy, hvort heldur er í snjó, hálku eða erfiðu færi. Við látum framtíðina rætast. Volkswagen Caddy 2.0 TDI kostar frá 2.990.000 kr. (2.392.000 kr. án vsk) EIGUM NOKK RA TIL AFHENDINGA R STRAX Veglegur aukahlutapakki fylgir Caddy TDI til áramóta. - Bakkmyndavél - Webasto miðstöð með fjarstýringu - Verðmæti 215.000 kr. Heilbrigðismál Á tuttugu ára tímabili, frá 1996 til ársloka í fyrra, létust 137 einstaklingar hér á landi af völdum sykursýki af tegund 2 samkvæmt dánarmeinaskrá Land- læknisembættisins. Þar af létust fimmtíu þeirra á síðustu fjórum árum. Dauðsföllum af völdum sjúk- dómsins hefur fjölgað hratt síðustu ár og vilja lýðheilsufræðingar að sykurskattur verði lagður á að nýju. Sykursýki herjar nú á Vesturlönd sem lífsstílstengdur sjúkdómur. Lyfjanotkun við sjúkdómnum hefur aukist um allan hinn vestræna heim á þessari öld. Hins vegar hefur þró- unin á Íslandi verið nokkuð hrað- ari en annars staðar. Sykursýki var nokkuð fátíð hér á landi í byrjun aldarinnar miðað við hin Norður- löndin en er nú á pari við það sem gerist í Danmörku. Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir, formaður Félags lýðheilsufræðinga, segir mikilvægt að íslensk stjórn- völd bregðist við. „Sykursýki 2 er lífsstílstengdur sjúkdómur og sú mikla sykurneysla sem á sér stað hér á landi er ekki ákjósanleg. Með einhverjum ráðum þurfum við að minnka þessa neyslu því kostnaður heilbrigðiskerfisins af þessari neyslu er orðinn töluverður,“ segir Sigríður og bætir við að sykurskattur væri eitt af stóru skrefunum til að kljást við þetta vandamál. Sykursýki 2 dregur sífellt fleiri til dauða Nítján Íslendingar létust í fyrra af völdum sykursýki 2. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra er opin fyrir því að leggja á sykurskatt að nýju og vill efla lýðheilsu og forvarnir í heilbrigðismálum. Formaður Félags lýðheilsufræðinga segir mikilvægt að leggja á slíkan skatt til að sporna við neyslu Íslendinga á sykri. Þá hefur landlæknir sagt að hann telji ekki fullreynt með sérstakar álögur á sykur. Svandís Svavarsdóttir er nýtekin við sem heilbrigðisráðherra. Fréttablaðið/Eyþór ✿ Dauðsföll vegna sykursýki, tegundar 2 Heimild: Dánarmeinaskrá Landlæknisembættisins 2 4 3 5 2 7 4 9 4 4 8 8 6 6 5 3 7 10 13 8 19 0 5 10 15 20 19 96 20 04 20 11 19 97 20 05 20 12 19 98 20 06 20 13 19 99 20 07 20 14 20 00 20 08 20 15 20 01 20 02 20 09 20 16 20 03 20 10 „Félag lýðheilsufræðinga hefur lagt áherslu á að sykurskattur verði lagður á með breyttu sniði. Ef við byrjum á því að skattleggja sykraða gosdrykki og sælgæti myndum við sjá miklar breytingar. Vandamálið með sykurskattinn eins og hann var er að hann lagðist á ósykraða gosdrykki. Svo var hann við lýði í of stuttan tíma til að hægt væri að mæla árangurinn. Við teljum mikil- vægt að leggja hann á til að sporna við þeirri þróun sem á sér stað á Íslandi.“ Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra lagði til við síðustu tekju- áætlun að sykurskattur yrði lagður á að nýju og lét hafa eftir sér að sykur- skattur væri besta leiðin til að draga úr sykurneyslu. Framsóknarflokkur- inn og Sjálfstæðisflokkurinn, sam- starfsflokkar VG í ríkisstjórn, lögðu hins vegar sykurskattinn niður og hafa verið mótfallnir þessari tegund skattheimtu. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar- innar segir að leggja eigi áherslu á forvarnir og lýðheilsu. Skoðuð verði beiting efnahagslegra hvata til eflingar lýðheilsu. Svandís Svav- arsdóttir heilbrigðisráðherra segist opin fyrir að taka upp sykurskatt. „Þetta er eitt af því sem við eigum að hafa á dagskrá þegar við ræðum hvernig við beitum hvötum í ríkis- fjármálunum.“ sveinn@frettabladid.is 2 4 3 5 2 7 4 9 4 4 8 8 6 6 5 3 7 8 10 13 19 4 . D e s e m b e r 2 0 1 7 m á N U D A g U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t A b l A ð i ð 0 4 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 6 4 -3 B 5 C 1 E 6 4 -3 A 2 0 1 E 6 4 -3 8 E 4 1 E 6 4 -3 7 A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 3 _ 1 2 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.