Fréttablaðið - 04.12.2017, Page 12
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kjartan Hreinn Njálssson kjaranh@frettabladid.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili
á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105
reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Á ÍSLANDI
RÁÐSTEFNA
5. DES BÆNDAHÖLLINNI
LEIÐIR TIL AÐ AUKA
KOLEFNIS
BINDINGU
Ráðstefna um leiðir
og möguleika í
kolefnisbindingu
verður haldin í
Bændahöllinni,
Hótel Sögu, 2. hæð,
þriðjudaginn
5. desember
kl. 13-16 á
alþjóðlegum degi
jarðvegs.
SKRÁNING Á VEFNUM
BONDI.IS
ENGINN AÐGANGSEYRIR
Borgarstjóri telur sig hafa mikla samúð með heimilislausu fólki. Svo mikla að hann skammar sveitarfélögin í nágrenni Reykjavíkur fyrir að fara
illa með fólk. Sveitarfélögin hafi ekki byggt nógu mikið
af félagslegum íbúðum og að hans mati er ástandið því
svona slæmt. Þetta er nokkuð öfugsnúið hjá borgar-
stjóra. Því ástandið í Reykjavík er eins og aðrir vita
bein afleiðing af stefnu hans í húsnæðismálum.
Í Reykjavík hefur íbúðum ekki fjölgað nægilega síð-
ustu árin. Þétting byggðar gengur hægar en áætlað var
og hótel spretta upp hraðar en íbúðir. Hundruð íbúða
hafa farið í leigu til ferðamanna og horfið þannig út
af almennum leigumarkaði sem eykur enn á skortinn.
Þrátt fyrir að þetta hafi lengi legið ljóst fyrir hefur
þörfum borgarbúa ekki verið sinnt. Borgarstjórnar-
meirihlutinn hefur ríghaldið í þéttingaráformin án
þess að endurskoða nægilega áætlanir miðað við
breyttar forsendur.
Ef nóg væri af íbúðum í borginni væri ekki sama
þörf á að fjölga félagslegum íbúðum. Félagslegt hús-
næði í Reykjavík er ekki ódýrt húsnæði, leiguverðið
fylgir leiguverði á markaði að miklu leyti. Húsaleigu-
bætur og greiðsla sérstakra húsaleigubóta er óháð því
hvort fólk býr í húsnæði í einkaeigu, eigu leigufélaga
eða í eigu sveitarfélaganna (félagslegu húsnæði). Þetta
hafa sveitarfélögin í kring skilið og uppbygging þar
hefur verið hraðari en í Reykjavík. Biðlistar eftir félags-
legu húsnæði eru því ekki í líkingu við það sem er í
Reykjavík. Með stefnu sinni hefur meirihlutinn skapað
ófremdarástand fyrir allt of margar fjölskyldur sem
hafa þurft að grípa til þess örþrifaráðs að sækja um
félagslegt húsnæði.
Borgarstjóri ætti því að láta af þeim leiða vana að
hlaupast undan ábyrgð, fjarlægja bjálkann úr eigin
auga og einsetja sér að gera eins mörgum og hægt er
kleift að bjarga sér sjálfum. Sú stefna skilar mun betri
árangri en sú sem stunduð er í ráðhúsinu um þessar
mundir.
Á hlaupum undan
ábyrgðinni
Áslaug
Friðriksdóttir
borgarfulltrúi
Sjálfstæðis-
flokksins
Biðlistar eftir
félagslegu
húsnæði eru
því ekki í
líkingu við
það sem er í
Reykjavík.
Ný ríkisstjórn er tekin við völdum undir forsæti Katrínar Jakobsdóttur, ungrar og skarpgreindrar konu, sem nýtur vinsælda og virðingar hjá þjóðinni þvert á flokka. Það sýna kannanir okkur í gegnum tíðina svo ekki verður
um villst. En þessi nýja ríkisstjórn er engin venjuleg
ríkisstjórn enda sett saman þvert yfir hinn pólitíska ás
frá hægri Sjálfstæðisflokksins lengst yfir í Vinstri græn
með viðkomu á hlaðinu hjá Framsókn. Það er því ekki
að furða að myndun ríkisstjórnar Katrínar Jakobs-
dóttur hafi ekki gengið átakalaust fyrir sig. Ekki síst ef
við höfum í huga að við kjósendur skilgreinum okkur
oft pólitískt út frá því sem við erum ekki, styðjum ekki,
þolum ekki og viljum ekki.
Það er merkilegt að fæðingarhríðir ríkisstjórnarinnar
virðast allar hafa verið í flokki Katrínar á meðan pirr-
ingurinn í hægrinu virðist helst hafa brotist út yfir
því að fá ekki ráðherrastól þegar þar kom að. Um 200
úrsagnir hafa þegar verið úr VG en í kjölfar ríkis-
stjórnarmyndunarinnar hafa þó 80 manns skráð sig
í flokkinn. Auk þess eru tveir þingmenn innan þing-
flokksins sem styðja ekki stjórnarsamstarfið heldur
hafa í hyggju að velja og hafna í stökum málum eftir
eigin sannfæringu hverju sinni.
En hvað veldur þessum átökum? Jú, það er einfaldlega
fyrst og fremst saga Sjálfstæðisflokksins með allri sinni
spillingu, leyndarhyggju og sérhagsmunabrölti sem
leiddi til þess að síðustu ríkisstjórnir með flokknum
entust ekki kjörtímabilið að ógleymdu efnahagshrun-
inu. Þessi saga æpir nú ekki beinlínis pólitískur stöðug-
leiki þannig að þessi andstaða við stjórnarsamstarf við
Sjálfstæðisflokkinn er ágætlega skiljanleg. Vandinn er
hins vegar að það var í raun ekki til staðar skýr kostur
frá miðju til vinstri eins og margir vildu láta í veðri vaka.
Í fyrsta lagi er hætt við að hugmyndin um að draga
Framsóknarflokkinn og Viðreisn saman í ríkisstjórn
hafi í raun verið álíka vænleg til árangurs og að sam-
eina Kópavog og Kópasker. Þarna er einfaldlega of
langt á milli. Eftir stóð því möguleikinn á að kippa
með Flokki fólksins, reynslulausum með óljósa stefnu
í fjölda mála, eða þá Miðjuflokknum með Sigmund
Davíð í broddi fylkingar með reynslu og stefnu sem
líklega fáum hefði hugnast á vinstri vængnum.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra sagði í
Silfrinu á RÚV í gær að það hefði verið óhjákvæmi-
legt í ljósi stöðunnar að hugsa skapandi við myndun
ríkisstjórnar. Það er vafalaust rétt hjá Svandísi en
hvort „nálgun Sjálfstæðisflokksins er önnur í ljósi
veikari stöðu hans“, eins og hún sagði, er annað mál
sem kjósendur eiga eftir að sannreyna. Það er í það
minnsta ekki verk samstarfsflokks Sjálfstæðisflokks-
ins að sannfæra kjósendur um að þar sé á ferðinni
breyttur og bættur flokkur óháð öllum þeim málum
sem kjósendur til vinstri hafa átt erfitt með að sætta sig
við. Aðeins Sjálfstæðisflokkurinn sjálfur getur sannað
sig sem nýtt og bætt stjórnmálaafl í siðferðislegu tilliti
og aðrir flokkar í þessari ríkisstjórn verða að muna að
meðvirkni er engum til góðs.
Meðvirkni
Þessi saga
æpir nú ekki
beinlínis
pólitískur
stöðugleiki
þannig að
þessi and-
staða við
stjórnarsam-
starf við
Sjálfstæðis-
flokkinn er
ágætlega
skiljanleg.
Furðuleg klausa
Margir stöldruðu við þegar
þeir ráku augun í klausu
í stjórnarsáttmála nýrrar
ríkisstjórnar þar sem segir
að snúa þurfi af braut harðra
refsinga fyrir neyslu fíkni-
efna en styrkja aðgerðir gegn
fíkniefnasölum, innflutningi
og framleiðslu fíkniefna.
Varsla fíkniefna er vissulega
refsiverð á Íslandi, en það
er neyslan ekki. Hvergi var
þetta mál rætt í kosninga-
baráttunni og leitun er að
þeirri þjóð, af þeim sem við
viljum yfir höfuð bera okkur
saman við, sem boðar herta
refsistefnu í fíkniefnamálum
árið 2017.
Annasamur Dagur
Það hefur verið nóg framboð-
ið af íslenskum stjórnmála-
mönnum á síðum blaðanna
og hinum ýmsu samkomum
undanfarið, þar sem alþingis-
kosningar eru nýafstaðnar og
ný ríkisstjórn tekin formlega
við völdum. Í gær kveikti
borgarstjórinn, Dagur B.
Eggertsson, á Óslóartrénu,
kynnti opnun nýs heimilis
fyrir heimilislausa og endaði
svo daginn á að stinga sér til
sunds í Sundhöllinni – fyrstur
manna eftir að hún var
opnuð eftir gagngerar breyt-
ingar. Það styttist nefnilega í
sveitarstjórnarkosningar.
olof@frettabladid.is
4 . d e s e m b e r 2 0 1 7 m Á N U d A G U r12 s k o ð U N ∙ F r É T T A b L A ð i ð
SKOÐUN
0
4
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
6
4
-1
3
D
C
1
E
6
4
-1
2
A
0
1
E
6
4
-1
1
6
4
1
E
6
4
-1
0
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
3
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K