Fréttablaðið - 04.12.2017, Page 14

Fréttablaðið - 04.12.2017, Page 14
Miklu meira en bara ódýrt Miklu meira en bara ódýrt Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Verkfæralagerinn Loftdæla OMEGA 12V 30L 8.995 Jeppatjakkur 2.25T 52cm 17.995 ViAir 12V loftdælur í miklu úrvali Öflugar háþrýstidælur 165Bör 1800W 29.999 Hleðslutæki 12V 6A Álskóflur 19.995 Súluborvél 350W (m/skrúfstykki) Scanslib Hverfisteinn Silverline Hleðsluborvél 18V 13mm 2G Vinnukastarar í miklu úrvali 12.995 Fjölsög Höfftech 5.999 frá 19.995 Rafmagnsvírtalíur í miklu úrvali Metabo KS216 bútsög 16.995 Hjólsög GMC 1200W 14.999 Flísasög 80mm 13.995 SDS Lofthöggvél GMC 14.999 Omega Viðgerðar- kollur 7.495 Lunchbox útvarp ryk/regn/ frostþolið 24.995 Fjöltengi í miklu úrvali, 1.5M/3M/5M 3/ 4/5/6/8 tengla Led kastarar stillanlegur litur Myndlistavörur í miklu úrvali Frábært úrval af dragböndum/ ströppum 4.995 4.995 Startkaplar frá 1.495 9.999 6T Búkkar 605mm Par 1/2+1/4 Toppasett Kraft- mann 94stk 14.995 1/2 Toppasett 1/4 Toppasett Verkfærasett 108 stk 5.995 Skrall-lyklar 8-17 7.985 Viðgerðarbretti 4.895 frá 1.999 49.999 99.999 Verkfæraskápur á hjólum Verkfæraskápur á hjólum m/verkfærum Steðjar í miklu úrvali Vice Multi angle 6.985 Mikið úrval af verkfæratöskum frá 795 3.9957.995 Ég sat með vinkonu minni á kaffihúsi um daginn og við vorum að spjalla. Já, ég veit að þetta er lygileg byrjun á grein en þetta er samt dagsatt. Þar sem við sátum í 101 og drukkum espresso macchiato (allir hættir í latte) þá barst talið að #metoo. Hún sagði: Ég sá á Facebook að þú tókst þátt í #metoo. Já, svaraði ég að bragði, ég hef orðið fyrir kyn­ ferðislegri áreitni oftar en ég fæ tölu á komið… var barn, já líklega 6 ára þegar það gerðist í fyrsta skipti (auðvitað var það kynferðislegt ofbeldi en þegar tvær konur sitja á kaffihúsi og tala saman þá þarf ekki endilega að skilgreina allt). En þú hefur þú ekki orðið fyrir kynferðis­ legri áreitni? spyr ég. Neeei, ég hef aldrei orðið fyrir kynferðislegri áreitni. Nú svaraði ég: Hefur aldrei neinn misst stjórn á höndunum í þinni návist? Hefur aldrei neinn dottið á brjóstið á þér? Hefur aldrei neinn þurft að fálma sig áfram í þrengslum þétt upp að þér? Hefur aldrei neinn slöngvað tungunni upp í þig? Hefur aldrei neinn látið kynferðislegar athugsemdir falla sem þig langaði ekki að heyra og sagt svo bara djók eða bara alls ekki neitt því allir eiga jú rétt á því að tjá sig? Hefur aldrei neinum fundist að þú hefðir gott af því að fá einn grjótharðan inn í þig, þú myndir bara slaka á við það? Ég var ekkert æst sko, ég var alveg pollróleg og hún líka, þetta var alveg svona næðisstund. Þar sem við sátum í kyrrðinni hvor á móti ann­ arri og ég þuldi þetta upp, þá lyftust augnabrúnirnar á vinkonu minni og það kviknaði ljós í augunum og hún fölnaði aðeins. Andskotinn, sagði hún, ég sem var að svara Gallup að ég hefði aldr­ ei orðið fyrir kynferðislegri áreitni. Ég verð bara að hringja og leiðrétta þetta, sagði hún og hló. Hláturinn var blanda af hlátri þess sem er að uppgötva einhver afar óþægileg sannindi með smá skammti af sjálfshæðni. Jú, sagði hún svo, ég hef lent í öllu þessu sem þú lýsir og svo margoft. Hvað var ég eiginlega að pæla þegar ég svaraði neitandi? Málið er hreinlega að ég er svo sam­ dauna þessu, við erum öll samdauna þessu. Ég er svo vön að vera áreitt, og það er bara einhvern veginn hluti af því að vera kona en það er algjör­ lega óþolandi, að þurfa alltaf að vera á varðbergi, að þurfa alltaf að vera hrædd þegar ég labba ein heim, að þurfa alltaf að vera tilbúin í að svara á einhvern töff hátt sem segir í raun þegiðu en er samt ekki svo dóna­ legt að það eyðileggi „vináttuna“ við yfirmanninn, samstarfsmann­ inn eða mann vinkonunnar. Vinkona mín fattaði strax um hvað þetta snérist, ég þurfti ekk­ ert að stafa það ofan í hana, hún er alveg klár. Auðvitað eigum við ekki að þurfa að láta þetta yfir okkur ganga, hélt hún áfram. Ég rétt slapp meira að segja einu sinni við nauðgun og það var bara vegna þess að vinkona mín kom aðvífandi og okkur tókst síðan að bjarga okkur á flótta og þegar ég vann á bar, þá fór jafn mikill tími í að berja frá mér menn sem þóttust eiga rétt á líkama mínum og í að reiða fram drykki. Í landinu sem er með mesta jafn­ réttið, þá er í íþróttafréttum fjallað um fótbolta og kvennabolta. Í sögu­ bókum er fjallað um nafngreinda karlmenn en nafnlausar konur, í auglýsingum eru líkamar kvenna hafðir upp á punt. Það eru til kalla­ launaumslög og kvennalaunaum­ slög og já, það er til Kvennaathvarf á Íslandi því að konur þurfa að flýja barsmíðar með börnin sín og já, það dvöldu 79 börn í athvarfinu á síðasta ári. Í 70% útkalla sem félags­ ráðgjafar þjónustumiðstöðvanna í Reykjavík fara í vegna heimilis­ ofbeldis eru börn á heimilinu. Við þurfum að breyta þessu öllu því ój fnrétti á einu sviði smitar yfir á annað. Ég vona að allir, eins og vinkona mín, sjái ljósið og hafi kjark, greind og vilja til að breyta… og talandi um kjark, þá eigum við þessa vakningu, sem við erum núna stödd í, engum meira að þakka en hugrökkum konum sem hafa stigið fram og sagt sannleikann í and­ streymi þöggunar. Höfum öll hátt… með þeim. Áreitni 101 Halldóra Gunnarsdóttir brotaþoli kynferðislegs ofbeldis og verk- efnisstjóri Saman gegn ofbeldi Við segjum gjarnan að loftslags­málin séu gríðarlega mikilvæg og enn fremur að þar leiki norðurslóðir stórt hlutverk. Nú um stundir er hlýnun loftslags hér norður frá meira en tvisvar sinnum hraðari en sunnar á hnettinum. Ein skýring þess er hratt minnkandi snjóþekja og minni hafísþekja en var í marga ára­ tugi á 20. öld. Hvítt yfirborð endur­ varpar sólgeislun að stórum hluta en dökkt land og grátt haf miklum mun minna. Áherslur okkar á mikilvægi norð­ ursins og á lífsskilyrði fjögurra millj­ óna íbúa endurspeglast í vinnu og fé sem ríkið leggur í samstarf landanna í norðri (8), undir forystu Norður­ skautsráðsins. Þar sitja fulltrúar stjórnvalda og frumbyggjasamtaka, auk margra áheyrnarfulltrúa ríkja og samtaka. Fulltrúar þjóðþinga koma að vinnu ráðsins í gegnum þing­ mannaráðstefnu norðurslóða. Þaðan berast ályktanir og tillögur til Norður­ skautsráðsins. Íslenska nefndin er skipuð þremur þingmönnum og hef ég leitt hana undanfarið. Með nýrri ríkisstjórn er endurkosið í nefndina. Íslenska nefndin hefur beitt sér fyrir því t.d. að lögð sé áhersla á bar­ áttuna gegn hröðum loftslagsbreyt­ ingum og áhrifum þeirra, á sjálfbærni, vistkerfi og súrnun sjávar, talað fyrir jafnrétti kynja, réttindum frumbyggja til náttúrunytja og fyrir samvinnu í velferðarmálum. Á yfirstandandi ári hafa svo bæst við tillögur um að kanna möguleika á frumbyggjaskóla. Með því er átt við námskeið fyrir opinbera starfsmenn, stjórnmála­ menn, fjölmiðlafólk, skólafólk og t.d. sérfræðinga þar sem frumbyggjar kenna sín fræði um náttúrunytjar, sýn á umhverfið og siðfræði, menningu og lífshætti. Enn fremur hefur verið lagt til að koma íslenskri þekkingu og skipulagningu á nýsköpun til vegs í norðrinu og nýta kunnáttu og reynslu Íslendinga af starfi meðal ungs fólks gegn reykingum, drykkju og fíknefna­ notkun sem hefur borðið verulegan árangur. Tillögum og þessum hug­ myndum hefur verið vel tekið. Á yfirstandandi ári hafa fundir á vegum þingmannanefndarinnar verið skipaðir formönnum lands­ nefnda eða fulltrúum þjóðþinga, fulltrúa Evrópuráðsins og áheyrnar­ fulltrúum Norðurlanda­ og Vest­ norden­ráðanna. Á næsta ári verður haldin ráðstefna fullsetinna nefnda og annarra fulltrúa í Finnlandi og þá gengið á fjölmörgum tillögum til vinnuhópa og ráðherranefndar Norðurskautsráðsins þar sem unnt er að raungera vilja þingmannanna eftir því sem tekst og verkast. Nú taka Finnar við formennsku í Norðurskautsráðinu og síðan Ísland 2019. Vinna þingmannanefndanna er mjög mikilvægur liður í að tengja þjóðþingin beint við ráðið. Norðurslóðir eru lykilsvæði Ari Trausti Guðmundsson þingmaður VG Ég er svo vön að vera áreitt, og það er bara einhvern veginn hluti af því að vera kona en það er algjörlega óþolandi. Nú taka Finnar við for- mennsku í Norðurskauts- ráðinu og síðan Ísland 2019. 4 . d e s e m b e r 2 0 1 7 m Á N U d A G U r14 s k o ð U N ∙ F r É T T A b L A ð i ð 0 4 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 6 4 -2 2 A C 1 E 6 4 -2 1 7 0 1 E 6 4 -2 0 3 4 1 E 6 4 -1 E F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 8 s _ 3 _ 1 2 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.