Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.12.2017, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 04.12.2017, Qupperneq 16
Spennandi og fróðleg bók Illugi Jökulsson ÖRLAGASÖGUR FRÁ HAFINU Í SÍÐARI HEIMSSTYRJÖLD Handbolti Eftir sex leiki og eina fræga vítakeppni, kærumál og mikið mótlæti er þátttöku FH í EHF-bik- arnum í handbolta þetta tímabilið lokið. FH vann Tatran Presov frá Slóvakíu, 26-23, í seinni leik liðanna í 3. umferð keppninnar í Kaplakrika á laugardaginn. Það dugði þó ekki til því Slóvakarnir, sem unnu fyrri leik- inn á sínum heimavelli 24-21, fóru áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli. Afar svekkjandi niðurstaða fyrir FH-inga sem sýndu í leiknum á laugardaginn hversu langt þeir eru komnir. Tatran Presov hefur orðið meistari í heimalandi sínu síðustu 11 ár, verið fastagestur í Meistara- deild Evrópu undanfarin ár og situr í 3. sæti hinnar gríðarsterku SEHA- deildar, Meistaradeildar Austur-Evr- ópu. Tatran Presov er til að mynda ofar en lið eins og Meshkov Brest, Celje Lasko og Metalurg. FH-ingar voru tveimur mörkum undir í hálfleik, 11-13, og snemma í seinni hálfleik var munurinn orðinn fjögur mörk, 12-16. Tatran Presov spilaði af skynsemi; langar og hægar sóknir sem reyndu á þolinmæði FH- inga og fjölmargra stuðningsmanna liðsins sem fjölmenntu í Kaplakrika. Fjórum mörkum undir og í afar erfiðri stöðu stigu Hafnfirðingar á bensíngjöfina, skoruðu sjö mörk gegn engu og komu sér í lykilstöðu. Lokakaflinn var þrælspennandi. FH fékk tækifæri til að komast fjórum mörkum yfir í lokasókn sinni en Mario Cvitkovic varði skot Óðins Þórs Ríkharðssonar úr hægra horn- inu. Slóvakarnir héldu boltanum út leiktímann og fögnuðu vel og inni- lega eftir að lokaflautið gall. „Ég er gríðarlega glaður með mína menn. Þeir voru geggjaðir. En ég er gríðarlega svekktur með úrslitin,“ sagði Halldór Sigfússon, þjálfari FH, Úti er Evrópu-ævintýri FH er úr leik í EHF-bikarnum þrátt fyrir þriggja marka sigur, 26-23, á Slóvakíu- meisturum Tatran Presov á laugardaginn. Þjálfari FH var stoltur af sínu liði. Ágúst Elí Björgvinsson, mark- vörður FH, var besti leikmað- ur liðsins í seinni leiknum gegn Tatran Presov. Hann varði 16 skot, þar af tvö víti, og var með 41% hlutfallsmark- vörslu. Ágúst Elí hefur átt afar gott tímabil með FH og nýtti sitt tæki- færi í seinni vináttu- landsleiknum gegn Svíum í október vel. Halldór Sigfússon, þjálfari FH, er að vonum ánægður með Ágúst Elí og segir að það verði erfitt fyrir landsliðsþjálfarann Geir Sveinsson að horfa fram hjá honum þegar hann velur ís- lenska hópinn sem fer á EM í Króatíu í byrjun næsta mánaðar. „Ef hann horfir á getu og frammistöðu síðustu mánaða verður það erfitt. Þá verða aðrir hlutir sem spila inn í. Mér finnst hann hafa verið frábær og hann hefur þroskast mikið og er kom- inn lengra,“ sagði Halldór um Ágúst Elí sem hefur spilað með FH allan sinn feril. „Hann þarf að halda dampi, sinni þróun áfram og halda haus. Ég er búinn að tala mikið við hann um það. Ef hann gerir það eru honum allir vegir færir,“ bætti Halldór við. Erfitt að líta fram hjá Ágústi Elí sem var langt frá því að vera sáttur við frammistöðu dómaraparsins frá Króatíu á lokamínútunum. „Það þarf að skoða síðustu fimm mínúturnar í þessum leik. Hvernig geturðu verið 45 sekúndur í síðustu sókninni þegar það er verið að spila framliggjandi vörn og það er ekki eitt fríkast dæmt? Ég átta mig ekki á því. Þetta er það sem er að eyði- leggja fyrir okkur. Ég ætla ekki að gráta endalaust en það er ýmislegt búið að ganga á hjá okkur í þessari Evrópukeppni. En það sem drepur okkur ekki hlýtur að styrkja okkur. Drengirnir voru frábærir og spiluðu þannig að þeir áttu skilið að fara í riðlakeppnina,“ sagði þjálfarinn enn fremur. FH-ingar gerðu auðvitað sín mis- tök í leiknum á laugardaginn, fóru illa með mörg dauðafæri, sérstak- lega í upphafi leiks þegar þeir gátu náð afgerandi forskoti. Frammistaða FH í leiknum á laug- ardaginn, og heilt yfir í EHF-bik- arnum, var oftast góð og á löngum köflum framúrskarandi. Og á henni geta FH-ingar byggt. ingvithor@365.is Það sem drepur okkur ekki hlýtur að styrkja okkur. Drengirnir voru frábærir. Halldór Sigfússon, þjálfari FH AðEinS ÞRíR SKORAð MEiRA Alfreð Finnbogason skoraði tvö marka Augsburg í 1-3 sigri á Mainz í þýsku úrvalsdeildinni á laugardaginn. Augsburg hefur unnið þrjá af síð- ustu fimm leikjum sínum og situr í 7. sæti deildarinnar. Alfreð hefur skorað átta mörk í vetur en aðeins Robert Lewandowski (14), Pierre-Emerick Aubameyang (11) og Kevin Volland (9) hafa skorað fleiri mörk. TiTiLVöRnin ByRjAR VEL norska kvennalandsliðið í hand- bolta, sem Þórir Hergeirsson þjálfar, hefur unnið báða leiki sína á HM í Þýskalandi sem hófst á föstudaginn. norsku stelpurnar unnu Ungverjaland 30-22 á laugar- daginn og í gær rúlluðu þær yfir Argen- tínu, 21-36. noregur á titil að verja og byrjunin á mótinu lofar góðu hjá þeim norsku. næsti leikur noregs er gegn Póllandi á morgun. 4 . d e s e m b e r 2 0 1 7 m Á n U d a G U r16 s p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð sport Óðinn Þór Ríkharðsson reynir skot að marki Tatran Presov. Hornamaðurinn snaggaralegi skoraði sex mörk í leiknum á laugardaginn. FRéTTablaðið/anTon bjaRni 0 4 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 6 4 -3 6 6 C 1 E 6 4 -3 5 3 0 1 E 6 4 -3 3 F 4 1 E 6 4 -3 2 B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 3 _ 1 2 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.