Morgunblaðið - 03.05.2017, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 03.05.2017, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2017 Öxlum ábyrgð – Hvað get ég gert? Málþing um ábyrga ferðamennsku Fimmtudaginn 4. maí 2017 kl. 15.00–17.00 í sal Ferðafélags Íslands, Mörkinni 6 Ferðafélag Íslands, í tilefni af 90 ára afmæli sínu, og Landgræðslan boða til málþings um hlutverk útivistarfélaga og ferðaþjónustunnar í að vernda og tryggja aðgengi að náttúrunni. 15:00 Setning 15:05 Gönguleiðir og verndun náttúrunnar – Hvað getum við gert? Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands 15:20 Gætum velferðar landsins – Sýn ferðaþjónustunnar Sævar Skaptason, framkvæmdastjóri Hey Iceland / Ferðaþjónusta bænda og stjórnarformaður Íslenska ferðaklasans 15:35 Helping the Hills – Raising conservation awarness Helen Lawless, Mountaineering Ireland 16:00 Kaffihlé 16:15 Gæði og gönuhlaup – Nýting, ábyrgð, áskoranir Andrés Arnalds, Landgræðslu ríkisins 16:35 Umræður – Nýting og ábyrgð 16:55 Samantekt 17:00 Málþingi slitið Fundar- og umræðustjórar: Steinar Kaldal, aðstoðarmaður umhverfis- og auðlindaráðherra Ólafur Teitur Guðnason, aðstoðarmaður iðnaðar- og nýsköpunarráðherra Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis. Stuðningur við ríkisstjórnina minnkaði milli mælinga samkvæmt nýjustu könnun MMR. Könnunin var gerð dagana 11.-26. apríl. Alls kváðust 31,4% styðja ríkisstjórnina nú en voru 34,5% í síðustu könnun. Sjálfstæðisflokkurinn er áfram stærsti stjórnmálaflokkur landsins með 25,2 fylgi sem er 0,2 prósentu- stiga lækkun frá síðustu könnun sem lauk 13. mars 2017. Vinstri grænir mældust með næstmest fylgi eða 23,4% og er það eilítið minna fylgi en í síðustu könnun. Fylgi Pírata mældist nú 12,8% og minnkar um tæplega 1%. Aðrir flokkar voru undir 11%. Stuðningur við ríkis- stjórnina minnkar Guðni Einarsson gudni@mbl.is Umhverfisstofnun segir í umsögn sinni um Kröflulínu 3 að almennt eigi að reisa innviðamannvirki við önnur slík mannvirki. „Umhverfis- stofnun telur almennt séð að forðast eigi að taka nýtt land undir mann- virki og ekki eigi að skerða ósnortið land og óbyggð víðerni með því að leggja um þau mannvirki.“ Krafla - Kárahnjúkavirkjun Kröflulína 3 verður um 122 km löng háspennulína og mun hún tengja Kröfluvirkjun og stöðvarhús Kárahnjúkavirkjunar í Fljótsdal. Nýja línan á að liggja að mestu sam- síða Kröflulínu 2. Gerður verður línuvegur meðfram nýju línunni og plön við hvert mastur. Talið er að línuvegurinn verði alls 153 km lang- ur. Tilgreindar eru 30 námur vegna efnistöku og gert ráð fyrir að nota um 380.000 rúmmetra af efni. Umhverfisstofnun segir að stór hluti af línuleiðinni liggi um svæði sem njóti sérstakrar verndar sam- kvæmt lögum um náttúruvernd. Norðurhluti línuleiðarinnar liggur nokkuð víða um eldhraun sem njóta sérstakrar verndar og ber að forðast að raska þeim nema brýna nauðsyn beri til. „Rask á hrauni er óaftur- kræf framkvæmd og því ætti á þeim svæðum að fylgja þeim leiðum sem raskað var við lagningu á Kröflulínu 2,“ segir í umsögninni. Að austan liggur línuleiðin um víðlent votlendi. Samkvæmt náttúruverndarlögum nýtur votlendi sem er stærra en 20.000 fermetrar sérstakrar verndar og ber að forðast að raska því nema brýna nauðsyn beri til. Þá telur Umhverfisstofnun að það eigi að kanna hvort hægt sé að draga úr sjónrænum áhrifum mann- virkjanna þar sem línurnar munu þvera Öskjuleið. „Mögulega geta þessi mannvirki dregið úr upplifun þeirra sem þarna fara um. Kanna ætti hvort unnt sé að draga úr sjón- rænum áhrifum með því að leggja jarðstrengi utan hrauna eða hvort mögulega finnist annað vegstæði fyrir Öskjuleið sem vart getur talist mikið mannvirki þar sem sjónræn áhrif línanna verða mögulega minni,“ segir í umsögninni. Jarðstrengir í lausri jörð Einnig kemur fram í umsögninni að Umhverfisstofnun telji að al- mennt eigi að velja strengleiðir um land sem þakið er lausum jarð- lögum. Forðast eigi að leggja jarð- strengi um hraun, klappir eða kletta og um árfarvegi þar sem ár renna í klettagljúfrum. „Leggja ætti áherslu á að nýta þær strengleiðir sem í boði eru hvert sinn til að draga úr neikvæð- um áhrifum háspennulína þar sem þær liggja um falleg svæði, óbyggðir eða þar sem nauðsyn krefur vegna öryggis.“ T.d. telur stofnunin að ekki eigi að leggja jarðstrengi um Teigsbjarg eða farveg Jökulsár á Dal, vegna neikvæðra sjónrænna áhrifa. Þá telur stofnunin að víxla eigi lín- um þannig að Kröflulína 3 fari eftir Kröflulínu 2 frá Kárahnjúkavegi að Fljótsdalsstöð og að Kröflulína 2 verði lögð með vegi í jarðstreng frá Kárahnjúkavegi að Fljótsdalsstöð. Neikvæð umhverfisáhrif Talið er að helstu neikvæðu um- hverfisáhrif línunnar verði á Fljóts- dals- og Jökuldalsheiði en þar á að leggja veg um mikið votlendi sem nýtur sérstakrar verndar. Rask sem fylgir lagningu Kröflulínu 3 verður mjög frábrugðið raskinu sem fylgdi lagningu Kröflulínu 2. Nú er áætlað að leggja burðarhæfan veg um mjög blautt land og eru áhrifin á votlend- isvistkerfi því verulega neikvæð, að mati Umhverfisstofnunar. Hægt er að draga úr þeim áhrifum með réttu verklagi, t.d. með lagningu á jarð- vegsdúk og takmörkun á þyngd vinnuvéla við verkið. Einnig ef fram- kvæmdir fara fram á þeim tíma sem hefur minnst áhrif á vistkerfið. Umhverfisstofnun telur að hanna eigi línuna þannig að sem mest verði dregið úr neikvæðum sjónrænum áhrifum. Einnig verði notast við áð- ur röskuð svæði við val á línuleið. Þá verði leitast við að lagfæra óheppi- lega legu Kröflulínu 2, t.d. í Hlíð- ardal og við Jökulsá á Fjöllum við lagningu nýju línunnar. Loks tekur Umhverfisstofnun undir það að jarð- strengur verði lagður meðfram veg- um ofan af Fljótsdalsheiði til að draga úr neikvæðum sjónrænum áhrifum á því svæði. Kröflulína 3 fer á köflum um svæði sem njóta verndar  Umhverfisstofnun segir að ekki eigi að skerða ósnortið land með mannvirkjum Morgunblaðið/Birkir Fanndal Kröflulína 2 Línan liggur frá Kröflu að stöðvarhúsi Kárahnjúkavirkjunar í Fljótsdal. Rætt er um að Kröflulína 3, sem verður stærri, fylgi henni að mestu. Mynd tekin í átt að Kröflu þar sem línan fer um Hvíthóla. Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is „Þetta lyf er lífsnauðsynlegt fyrir mig og að sögn læknisins míns er ekkert annað í boði. Ég hef tekið lyfið í ellefu ár og aldrei áður lent í því að það er ekki til,“ segir ungur karlmaður sem er með Addison-sjúkdóminn og þarf nauðsynlega að taka lyfið Florinef á hverjum degi. Lyfið hefur aftur á móti ekki verið til í talsverðan tíma hér á landi og ekki er von á að það fá- ist í apótekum fyrr en í fyrsta lagi í lok þessarar viku. „Þetta er lyfseðilsskylt lyf sem ég tek á hverjum degi. Ég fæ nokkurra mánaða skammt í hvert skipti og var ekkert að hafa áhyggjur fyrr en ég sá að skammturinn minn færi fljótlega að klárast. Ég hringdi í, að ég held, öll apótek á höfuðborgarsvæðinu fyrir helgi og lyfið var hvergi til,“ segir maðurinn. Gæti borðað salt í smátíma Addison-sjúkdómurinn hefur þau áhrif að líkaminn framleiðir ekki streituhormón og kemur Florinef- lyfið í staðinn fyrir hormón sem stjórnar jafnvægi á saltbúskap líkam- ans, án þess verður ójafnvægi á sölt- unum í líkamanum sem gæti t.d. vald- ið truflun á blóðþrýstingi. Að sögn mannsins gæti hann reddað sér með því að borða ákveðið magn af salti á dag en það gangi ekki til lengdar. „Ég hef ekki lent í því áður að fá ekki lyfið svo ég veit ekki hvað gerist en ætli ég gæti ekki endað inni á spítala með eitthvað í æð,“ segir hann. Samkvæmt upplýsingum frá lyfja- dreifingafyrirtækinu Distica þurfti að skipta um fylgiseðil í pakkningum Florinef-lyfsins og því hafi það ekki fengist í töluverðan tíma, ekkert ann- að lyf getur komið í stað þess og er í algjörum forgangi að koma því aftur á markað. Að breyta fylgiseðli er töluvert ferli sem tekur tíma, en leyfi þarf að fá fyrir öllum breytingum, þá þarf að breyta seðlinum, fá hann samþykkt- an, prenta og pakka. Samkvæmt upp- lýsingum frá Distica er lyfið í um- pökkun núna og líkur á að það komist í apótek fyrir helgi eða þá í síðasta lagi í næstu viku. Lífsnauðsynlegt lyf verið ófáanlegt í talsverðan tíma  Þurfti að skipta um fylgiseðil í pakkningunum Morgunblaðið/Ómar Lyf Skipta þurfti um fylgiseðil í pakkningum Florinef og því hefur það ekki fengist hér á landi í töluverðan tíma. Líklega er von á því í lok vikunnar. Borgarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins telja ekki seinna vænna að rekstur Reykjavíkur- borgar, sem verið hafi í algjörum ólestri allt þetta kjörtímabil sem og kjörtímabilið 2010 til 2014, verði betri. Allt frá árinu 2010 hafi vandræðagangur verið á rekstrinum með of slöku rekstraraðhaldi því rekstrarvandræði borgarinnar hafi verið útgjaldavandi en ekki tekju- vandi. Kemur þetta fram í bókun sem borgarfulltrúarnir lögu fram í borg- arstjórn í gær, við fyrri umræðu um ársreikning borgarinnar. Bent er á að það væri ótrúlegt ef ekki hefði tekist að gera árið 2016 upp með rekstrarafgangi, miðað við þá gríðarlegu tekjuaukningu sem orðin sé í íslensku samfélagi og sjá megi á jákvæðri rekstrarniðurstöðu sveitarfélaga um allt land. Tekjur A- hlutans hafi aukist um 9,5 milljarða kr. á milli áranna 2015 og 2016. Útgjalda- vandi en ekki tekjuvandi  Sjálfstæðismenn bóka í borgarstjórn Halldór Halldórsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.