Morgunblaðið - 03.05.2017, Side 18

Morgunblaðið - 03.05.2017, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2017 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Í liðinni viku tókuKínverjar nýtt flugmóðurskip í notkun með mikilli viðhöfn. Þetta er annað flugmóður- skip Kínverja, og hið fyrsta sem þeir smíða sjálfir frá grunni. Hið fyrra var keypt frá Úkraínu, ættað frá Sovétríkj- unum sálugu. Kínverjar segj- ast hafa lært margt um smíði flugmóðurskipa af því skipi, en lítið er að öðru leyti vitað um það hvort fleiri slík skip séu í farvatninu. Er þó talið að þeir séu með að minnsta kosti tvö önnur á leiðinni og þá senni- lega öflugri, en þetta skip stenst þeim bandarísku ekki snúning. Sjötíu árum eftir að flug- móðurskip sýndu fyrst mátt sinn og megin eru þau enn einn helsti mælikvarðinn á flota- styrk. Bandaríkjamenn eru með tvö slík skip í smíðum og eiga tíu fyrir. Rússar ætla sér að smíða eitt sem að þeirra sögn yrði stærsta herskip sem nokkurn tímann hefur siglt um heimsins höf. Áhugi Kínverja á flugmóðurskipum kemur því ekki á óvart. Kínverjar hafa á undan- förnum árum látið æ meira til sín taka á hafinu, og undir- strikar flugmóðurskipið þá ætl- un Kínverja, að þeir verði með einn öflugasta flota heims á næstu ár- um, flota sem geti sýnt mátt þeirra og megin á úthafinu, ekki aðeins við strendur Kína. Flugmóð- urskipið er þannig öflugt stöðutákn, en sendir einnig skýr skilaboð til nágranna þeirra, sem nú eiga í erjum við Kínverja um lögsögu yfir Suð- ur-Kínahafi. Ljóst er að Kín- verjar ætla sér að halda kröfu sinni þar til streitu, þrátt fyrir að alþjóðalög og hafréttarsátt- málar virðist ekki vera á bandi þeirra. Með flugmóðurskipinu, sem og annarri aukningu í her- afla Kínverja á síðustu árum, er ljóst að þeir hafa getuna til þess að fylgja kröfum sínum eftir með valdbeitingu, sem aftur gefur þeim betri samn- ingsstöðu. Mikið er undir, þar sem haf- svæðið er einhver mikil- vægasta lífæð viðskipta í þess- um heimshluta, auk þess sem talið er að ógrynni náttúru- auðlinda sé að finna þar á hafs- botni. Ljóst er, að Bandaríkin og bandamenn þeirra í Kyrra- hafi þurfa að stíga varlega til jarðar, en á sama tíma þarf að gera Kínverjum ljóst, að þeir þurfa sömuleiðis að taka tillit til annarra og til alþjóðlegra reglna og sáttmála. Kínverjar smíða sitt fyrsta flugmóð- urskip frá grunni} Stöðutákn sett á flot Jean-ClaudeJuncker, for-seti fram- kvæmdastjórnar Evrópusambands- ins, sótti breska forsætisráðherrann Theresu May heim í Downingstræti 10. Það er margt að ræða um fram- kvæmd ákvörðunar bresku þjóðarinnar um að koma sér út úr sambandinu. Eins og heyrir til þá var kjassað og kysst fyrir framan hinar frægu dyr á númer 10 og brosað samfellt og sannfær- andi, eins og þegar góðvinir heilsast á tröppunum. En frá því að fundinum lauk hefur því verið skipulega lekið í evrópska fjölmiðla að andrúmsloftið hafi strax orðið þrúgað þegar inn var komið. Virðist tilgangurinn með þessum lekum vera sá að gera breska forsætisráð- herranum erfitt fyrir í kosn- ingahríðinni, sem nú stendur yfir. Því var einnig lekið að Jean- Claude Junker (sem brexit- menn hefna sín á í framhaldinu með því að kalla Jean-Claude Drunker) hafi hringt í Merkel kanslara upp úr klukkan 7 morguninn eftir og sagt henni að May væri stödd í einhverju allt öðru sólkerfi en annað fólk og hefði verið illa undirbúin til viðræðna við sig. Þetta þykir þeim sunnan við Erm- arsundið ómaklegt, því Theresa May sé fræg fyrir að koma bet- ur undirbúin til funda en flestir ráðherrar, bæði áður en hún skipaði forsætið og eftir. Á blaðamannfundi í Brussel um málið reyndi Juncker að tala sig frá trúnaðarleysinu, en gaf þó í skyn að Bretar ofmætu stöðu sína til að standa á eigin fótum. Hann sagði (í lausl. þýð- ingu): „Ég spurði Pútín, þegar ég hitti hann á dögunum: „Veistu af hverju Lúxemborg hefur aldrei ráðist á Rúss- land?“ Nei, hann vissi það ekki. „Það er vegna þess að við í Lúxemborg höfum ekki land- rými til að taka á móti öllum stríðsföngunum sem út úr því kæmu. Lúxemborg er nefnilega eitt af fáum ríkjum sem gera sér grein fyrir því, hversu lítið það er. Smám saman munu fleiri ríki átta sig á að þau eru líka lítil.“ May forsætisráðherra svarar því einu til að þarna sé aðeins hefðbundið brusselskt slúður á ferð, sem enginn taki alvarlega. Það er öllum brögð- um beitt í stærstu skilnaðarmálunum} Bærilega byrjar það Á starfsævinni lærir maður sitthvað, en gleymir líka mörgu og þarf líka að gleyma mörgu eftir því sem þekkingin úreldist og/eða breytist. Þetta gerist vitanlega mishratt eftir atvinnugreinum, en einna hrað- ast í tölvutækni, þar sem þróunin er ör, af- skaplega ör, og nýrri tækni fylgja ný orð: manni eru rétt orðin töm orð yfir ýmislega tækni þegar hún er orðin svo úrelt að hennar verður aldrei getið aftur. Stundum verða líka vistaskipti til þess að orð sem maður var með á vörum daglega í ár eða áratugi hrökkva í glatkistuna. Einu sinni var mér til að mynda tamt að nota reglulega orð eins og melspíra, bobbingur, grandari, lens, spanni og gils, sem hljóma eflaust einhverjum framandleg, og eins kunnuglegri orð sem þýddu þó kannski annað en almennt: kippur (stutt sigl- ing), skaufi (lítill afli), snap (smáverk) og bræla (vont veð- ur). Þegar komið var af sjónum inn á dagblaðið þurfti líka að læra orð sem úreltust svo síðar: spalti, hóruungi (hálf stök lína efst í dálki, hóra er stök lína efst, franskur hóru- ungi er hálf stök lína neðst í dálki), síseró (mælieining), nonpareil (hálfur síseró), upplímingur, skaufi (eindálks- afgangur), heill og hálfur (föst stafabil) og slútningakassi. Lifandi tungumál bera það í sér að vera sífellt að breyt- ast, bæta við sig orðum og breyta merkingu orða sem fyr- ir er, stundum svo rækilega að upprunaleg merking gleymist. Margar starfsstéttir smíða sér þannig nýtt tungumál, eða bæta aðeins við það sem fyrir var, sníða til og snyrta, og menning- arkimar eiga líka sín tilbrigði af tungumálinu sem innvígðir skilja einir, til að mynda hass- hausar, sparkunnendur og rapparar, svo dæmi séu tekin. Hvað í fokkanum átt þú að vera? spyr Arnar Freyr Frostason í laginu Geimvera á plötunni Hefnið okkar sem Úlfur Úlfur gaf út fyrir nokkrum dögum. Af samhenginu má ráða að „fokkanum“ merkir hér fjandanum, en „fokk- ið“ er víðar: fokking skrímslið segir: fokk öll flónin, eins og á fokking húsum og þarf að zenna til að nenna að give a fuck. Síðastnefnda orðið, „fuck“, er sannanlega ekki íslenskt en fokkið er það: ?fokk, -s H lítilfjörlegt starf, dútl dund. 1 fokka, -u, -ur KV 1 þríhyrnt segl (framan við stór- seglið og aftan við klýfi). 2 ferhyrnt toppsegl (í rásigl- ingu). 2 fokka, -aði S ?gaufa, dunda. 2 láta e-ð f. sleppa e-u, láta fara, láta aurana f., láta það f. sem manni dettur í hug. Svo kemur fokkið fyrir í Íslenskri orðabók handa skól- um og almenningi (útg. 1988) og þó það sé ekki alltaf alveg eins notað þá nota þeir Arnar Freyr og Helgi Sæmundur Guðmundsson það á sinn hátt um leið og þeir teygja tungumálið sitt á hvað, skæla það og skekkja og snúa útúr eins og andinn blæs þeim í brjóst: Fokk hóf / fokk ljóð. arnim@mbl.is Árni Matthíasson Pistill Fokk hóf / fokk ljóð STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Tíu daga lenging á grásleppu-vertíð kom grásleppusjó-mönnum á óvart og var and-stæð umsögn þeirra frá 18. apríl. Reglugerð um breytinguna er væntanleg á morgun. Smábátasjó- menn gagnrýna ákvörðunina harð- lega og á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda, LS, segir meðal annars: „Hægt er að fullyrða að aldrei í sögunni hefur uppákoma sem slík úr stjórnsýslunni hent grásleppu- sjómenn.“ Í tilkynningu ráðuneytisins segir hins vegar: „Ráðuneytinu er ljóst að þessi ákvörðun kemur seint en lengi var vonað að afli tæki að glæðast. Fyrir liggur að þeir sem hófu fyrstir veiðar eru búnir að taka upp netin og strandveiðar að hefjast. Eftir sem áð- ur er mikið í húfi fyrir þá sem stunda grásleppuveiðar áfram og þá sem hafa atvinnu af þeim í landi, m.a. við vinnslu afurða að allt verði reynt til að ná því magni sem Hafrann- sóknastofnun hefur lagt til.“ Nóg að gera um helgina Breytingar á grásleppuvertíð gætu reyndar hafa truflað stóra frí- helgi hjá starfsmönnum í sjávarú- tvegsráðuneytinu, á Fiskistofu og for- ystumenn Landssambands smábátaeigenda. Á laugardag birtist á heimasíðu ráðuneytisins fyrrnefnd tilkynning um 10 daga lengingu á ver- tíðinni úr 36 dögum í 46, Fiskistofa til- kynnti breytta skilmála á strandveið- um og grásleppuvertíð á sunnudag og á baráttudegi verkalýðsins birtist harðorð gagnrýni á ákvörðun ráð- herra á heimasíðu LS. Í tilkynningu ráðuneytisins var bent á að heildarveiði á grásleppu- vertíð hefur verið dræm. Á því séu nokkrar skýringar, m.a. að fjöldi virkra leyfa sé í lágmarki miðað við undanfarin ár en samkvæmt upplýs- ingum Fiskistofu hafa aðeins 157 að- ilar sótt um leyfi það sem af er þessari vertíð og aflabrögð verið með lakara móti. Hafrannsóknastofnun lagði til 6.355 tonna heildarveiði fyrir vertíð- ina og er sú ráðgjöf óbreytt. Strandveiðar máttu hefjast í gær og höfðu þá 374 virkjað leyfi sín, en talið er að hátt í 200 strandveiðibátar hafi róið. Ekki má stunda annan veiði- skap samhliða strandveiðum og með því að fresta upphafi strandveiða og halda áfram á grásleppu í tíu daga gætu menn orðið af strandveiðum í maí. Veitt er úr tilteknum pottum á fjórum svæðum við landið og þegar heildarafla hvers mánaðar er náð má ekki róa aftur á strandveiðum á svæðinu fyrr en í júní. Flestir róa á vestursvæði frá Arnarstapa í Súðavík og þó svo að mest sé í pottinum þar þá eru margir um hituna og hefur mánaðarafli oft náðst á 6-8 veiðidög- um. Vertíð 62 báta var lokið Undir yfirskriftinni „Óvönduð vinnubrögð hjá ráðherra“ segir á heimasíðu LS að áður hafi verið lagst gegn fjölgun veiðidaga í umsögn við beiðni Vignis Jónssonar hf., sem er í eigu HB Granda, um fjölgun daga á yfirstandandi vertíð. Því hafi það komið LS og 173 grásleppuútgerðum gjörsamlega í opna skjöldu að ráð- herra hefði tekið þessa ákvörðun. „Með ákvörðuninni er litlu skeytt um skipulag og hagsmuni grá- sleppusjómanna. Alls höfðu 62 bátar lokið veiðum og þar með dregið upp öll net þegar tilkynnt var um ákvörð- un ráðherra,“ segir á heimasíðunni. Ennfremur segir þar að veru- lega þungt hljóð sé í mönnum vegna ákörðunar ráðherra og símtöl séu hlaðin kröfu um að LS bregðist við með fullum þunga. Ráðherra sé upp- vís að þekkingarleysi á fyrirkomulagi grásleppuveiða og hvaða áhrif svona inngrip hafi. Loks kemur þar fram að óskað verði eftir frekari rökstuðningi ráðherra fyrir ákvörðuninni, því fátt haldi vatni sem komi fram á vef ráðu- neytisins. Björgun verðmæta eða óvönduð stjórnsýsla Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Vertíð Unnið við verkun á grásleppu á Húsavík í vor. Útflutnings- verðmæti grásleppuafurða nam alls 2,1 milljarði króna í fyrra. „Auðvitað hefðu allir átt að sitja við sama borð í þessum efnum. Það stenst engin sjón- armið um jafnræði að fjölga dögum um tíu þegar vertíð er lokið hjá hluta útgerða. Það hefur áður verið óvissa með dagafjölda á grásleppuveiðum en ráðuneytið hefur alltaf gætt þess að endanleg ákvörðun lægi fyrir áður en fyrstu menn væru búnir með sína veiðidaga. Nú liðu fjórir dagar frá því að þeir fyrstu tóku upp netin þar til fjölgunin kom. Hvernig eiga menn að geta skipulagt vinnu sína og útgerð og ráðið fólk til starfa við slíkar aðstæður,“ segir Örn Pálsson, fram- kvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, aðspurður hvað sé að því að fjölga val- kostum og leyfa mönnum að halda áfram á grásleppuveið- um. Hann segir ennfremur að ef þetta snúist um að verkendur vanti hrogn til vinnslu þá hefðu þeir átt að bjóða betra verð í upphafi. Þá hefðu hugsanlega fleiri farið á grásleppuveiðar og framboðið verið meira. Jafnræði og skipulag FRAMKVÆMDASTJÓRI LS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.