Morgunblaðið - 03.05.2017, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2017
Fyrsta æfing á verkinu 1984, sem
verður frumsýnt á Nýja sviði
Borgarleikhússins um miðjan
september, fer fram í Borgarleik-
húsinu í dag. Leikritið er byggt á
hinni þekktu og vinsælu skáldsögu
George Orwell frá árinu 1949 og er
þess getið í tilkynningu frá leikhús-
inu að sala á bókinni hafi stóraukist
í Bandaríkjunum eftir að Donald
Trump var kjörinn forseti og bókin
m.a. selst upp á vef Amazon í byrj-
un árs. Leikgerðin er eftir Robert
Icke og Duncan Macmillan og eins
og frægt er er stórum spurningum
varpað fram í verkinu, m.a. hvað sé
sannleikur og hvað blekking í eftir-
litssamfélagi þar sem stundaðar
eru símhleranir og eftirlitsmynda-
vélar fylgjast með hverju skrefi
þegnanna.
Leikstjóri sýningarinnar er
Bergur Þór Ingólfsson og leikarar
eru Þorvaldur Davíð Kristjánsson,
Þuríður Blær Jóhannesdóttir, Þór-
unn Arna Kristjánsdóttir, Jóhann
Sigurðarson, Valur Freyr Einars-
son, Haraldur Ari Stefánsson,
Hannes Óli Ágústsson. Þýðing er í
höndum Eiríks Norðdahl, Sigríður
Sunna Reynisdóttir sér um búninga
og leikmynd, Björn Bergsteinn
Guðmundsson um lýsingu og Garð-
ar Borgþórsson um hljóðmynd.
Fyrsta æfing á 1984 í Borgarleikhúsinu
1984 Úr kvikmyndinni 1984 sem byggð er
á bók Orwells. Yfirvaldið, „Stóri bróðir“,
fylgist með kúguðum þegnum sínum.
Það þýðir ekkert að gerakröfur um að handritið ségott í svona mynd“ eða„þetta er bara hasarmynd,
handritið skiptir engu máli“ eru fras-
ar sem maður heyrir gjarnan þegar
rætt er um kvikmyndir á borð við
The Fast and the Furious, sem með
þeirri nýjustu eru orðnar átta tals-
ins, ótrúlegt en satt. Fleiri en Police
Academy-gamanmyndirnar sem
voru álíka kjánalegar. Að vissu leyti
er hægt að taka undir þetta, hand-
ritið er nánast aukaatriði í hasar-
myndum á borð við þessar, kvik-
myndir sem snúast um lítið annað en
sköllótt vöðvatröll og slagsmála-
hunda, hraðskreiða bíla, skotvopn og
sprengjur og föngulegar konur. En
þegar 250 milljónum Bandaríkjadala
er varið í framleiðsluna, jafnvirði
26,5 milljarða króna (!), má alveg
gera dálitlar kröfur til handritshöf-
unda, í það minnsta að sagan sé
áhugaverð eða sniðug. Ef við lítum
t.d. til síðustu kvikmynda um njósn-
arann James Bond hefur tekist
prýðilega að sameina þetta tvennt,
gott handrit og tilkomumikinn hasar
og því má alveg gera kröfur um
sæmilegt handrit, þó svo að hér sé á
ferðinni F&F-hasarmynd. Það er
engu líkara á köflum en að tveir
drengir í bílaleik hafi samið söguna.
„Svo kemur minn og bjargar þínum
og svo kemur kafbátur upp úr vatn-
inu og eltir bílinn þinn,“ o.s.frv.
Áður en lengra er haldið skal tekið
fram að ég hef gaman af góðum has-
armyndum og þær mega alveg vera
kjánalegar fyrir mér, svo lengi sem
þær eru skemmtilegar og góð af-
þreying. Gallinn við The Fast and
the Furious 8 (sem heitir í Banda-
ríkjunum The Fate of the Furious)
er hins vegar að hún er ekkert sér-
staklega skemmtileg en löng og vel
unnin hasaratriði bjarga henni fyrir
horn. Og þar er gengið ansi langt í
kjánaskap sem þarf ekki endilega að
koma að sök.
Í stuttu máli er sagan sú að Dom-
inic Torretto (Vin Diesel), kallaður
Dom, forsprakki ökuþóranna bál-
reiðu sem myndirnar fjalla um,
gengur til liðs við glæpakvendið og
hryðjuverkamanninn Cipher (Char-
lize Theron) og svíkur um leið vini
sína. Ástæðan fyrir þessum um-
skiptum Doms er mikil ráðgáta og
svarið fæst ekki fyrr en í seinni hluta
myndar sem verður furðulega væm-
inn, með áherslu á mikilvægi fjöl-
skyldunnar. Dom fær hin ýmsu
glæpaverkefni hjá Cipher sem hann
virðist einn geta leyst, t.a.m. að ræna
af rússneskum ráðherra tösku sem
inniheldur skotkóða fyrir kjarn-
orkuflaugar í kafbáti einum langt
norður í hafi. Dom er sumsé kominn í
stríð við sína gömlu vini sem reyna
allt hvað þeir geta að stöðva hann.
Þeim berst óvæntur liðsauki í göml-
um óvini, málaliðanum Deckard
Shaw (Jason Statham) en allt virðist
þó stefna í að glæpakvendið Cipher
fremji skelfileg hryðjuverk með því
að beita kjarnorkuvopnum.
Flakkað er milli borga og staða í
myndinni í anda Bond- og Jason Bo-
urne-mynda og hefst hún á æsilegum
kappakstri í Havana þar sem Dom
sýnir hvað í honum býr. Þar er tónn-
inn fyrir myndina strax sleginn, að-
dragandi kappakstursins er kjána-
legur metingur tveggja karlmanna
og engu líkara en leikstjórinn hafi
haft rappmyndbönd í huga við tökur
því linsunni er margoft beint að
þrýstnum þjóhnöppum fáklæddra,
ungra kvenna. Hvert hasaratriðið
tekur svo við af öðru, með örstuttum
hléum sem einkennast af heldur inni-
haldsrýrum samtölum og kjánaleg-
um pissukeppnum. Tilkomumest
hasaratriðanna er bílaeltingaleikur í
New York þar sem Cipher tekst að
hakka sig inn í aksturstölvur tuga ef
ekki hundraða bíla með undra-
skjótum hætti og fjarstýra þeim á
ógnarhraða eftir götum borgarinnar,
án þess þó að keyra niður gangandi
vegfarendur. Bílum rignir m.a. ofan
af efstu hæð bílastæðahúss sem er
með frumlegri og skemmtilegri hug-
myndum handritshöfunda. En þegar
kjarnorkukafbátur var farinn að elta
sportbíla á ísilögðu Mývatni (atriðið
var tekið þar) undir lok myndar var
mér farið að leiðast þófið þó að vissu-
lega hafi það allt saman verið listi-
lega útfært.
F8 er ágætisafþreying sem geldur
fyrir slakt handrit og heldur kjána-
lega sögu en hasarinn bjargar bíó-
ferðinni að mestu leyti. Leikurinn er
heldur tilþrifalítill þó að Theron skili
sínu vel sem hið tilfinningalausa
háskakvendi, ísköld og stórhættuleg
og Helen Mirren á stutta og skondna
innkomu. Harðhausarnir eru í sínum
gamla og kunnuglega gír. Statham
er þar fremstur meðal jafningja,
kjaftfor mjög og fimur með endem-
um, þó að orðinn sé 49 ára. Johnson
reynir að halda í við hann og á ágæta
spretti en Diesel er gjörsamlega
freðinn sem fyrr. Einhvern tíma lýsti
íslenskur kvikmyndagagnrýnandi
öðrum freðnum hasarleikara, Steven
Seagal, með þeim hætti að hann væri
ísskápur með tagl. Vin Diesel er þá
væntanlega frystikista með bílpróf.
Þvingaður Vin Diesel í hlutverki Dom og Charlize Theron sem hryðjuverkakvendið Cipher í The Fast and the
Furious 8. Cipher fær Dom til þess að fremja glæpi fyrir sig en ástæðan fyrir því að Dom gerir það er ráðgáta.
Laugarásbíó, Smárabíó, Há-
skólabíó, Borgarbíó og Sam-
bíóin Egilshöll og Álfabakka
Fast and the Furious 8/ The Fate of
the Furious bbmnn
Leikstjóri: F. Gary Gray.
Handrit: Chris Morgan og Gary Scott
Thompson. Aðalleikarar: Charlize
Theron, Dwayne Johnson, Vin Diesel,
Michelle Rodriquez og Jason Statham.
Bandaríkin, 2017. 136 mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Ískalt háskakvendi
og freðið hörkutól
Poulsen ehf. | Skeifan 2 | IS-108 Reykjavík | 530 5900 | poulsen.is
BREMSUHLUTIR
MINTEX
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
SÝND KL. 8
SÝND KL. 5.50SÝND KL. 6, 9
SÝND KL. 6, 9
SÝND KL. 10.25