Morgunblaðið - 03.05.2017, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 03.05.2017, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2017 Hamraborg 10, Kópavogi – Sími: 554 3200 Opið: Virka daga 9.30-18 Laugardaga 11–14 GOTT ÚRVAL AF UMGJÖRÐUM Á UNGA FÓLKIÐ Verið velkomin til okkar í sjónmælingu Afgreiðum samdægurs Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Ýmis tækifæri bíða á framabrautinni næsta árið. Kemurðu einhverju til skila eða hróparðu í tómið? Það skiptir ekki máli, bara það að þú talir frá hjartanu. 20. apríl - 20. maí  Naut Þótt þig langi að hafa hönd í bagga með öðrum eru mál þeirra stundum utan og ofan við þitt færi. Haltu því ótrauður áfram og fylgdu málinu allt til enda. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Flanaðu ekki að neinu, heldur tékk- aðu af alla hluti og hafðu þitt á hreinu þegar þú grípur til aðgerða. Ekki skella skollaeyrum við því sem þú veist að er rétt og hjálpar þér. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Í dag er ekki rétti tíminn til þess að flýta sér, ekki í akstri, kaupum, sölu eða á stefnumóti. Allt er það gott en varastu of- metnað. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Gleði, rómantík, ánægja og hvers kyns skemmtanir ráða ríkjum í dag. Flas er hreint ekki til fagnaðar og því er best að stíga var- lega til jarðar, sérstaklega í nýju sambandi. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Ef þú vilt heyra sannleikann ómeng- aðan verður þú líka að vera viðbúinn því sem í honum felst. Haltu þig við efnið, það verður þess virði þegar upp er staðið. 23. sept. - 22. okt.  Vog Íhugaðu vandlega allar beiðnir sem þú færð um aðstoð. Ef þú treystir þér ekki til þess að segja „nei“ skaltu að minnsta kosti prófa að segja „kannski“. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Áhugi þinn á hinu dulræna ýtir undir löngunina til að ráða krossgátu eða horfa á sakamálamynd. Byrjaðu daginn á því að tala einungis vel um sjálfan þig, þannig leggurðu grunn að jákvæðum degi. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þér ætti að ganga vel á heimilinu og í fasteignaviðskiptum. Taktu því rólega, og leyfðu hinum aðilanum að heilla þig. 22. des. - 19. janúar Steingeit Reyndu ekki að berjast til forystu í ákveðnu máli því hún er ekki þitt hlutskipti að svo stöddu. Nú er bara að sýna staðfestu og sigla málunum í örugga höfn. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Sjaldan er ríkari ástæða til að gæta heilsu sinnar en þegar streitan er í al- gleymingi. Vertu opinn fyrir ólíku fólki en skemmtu þér fyrst og fremst. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú átt auðvelt með að koma þér beint að efninu og gildir þá einu hver í hlut á. Vertu því ekki að safna í sarpinn, það dreifir athygl- inni. Davíð Hjálmar Haraldsson yrkirfyrir norðan: Sá ég einn á himni hauk huga að þresti eða gauk. Vakna gömul gró og fræ. Gleðilegan fyrsta maí! Sigrún Haraldsdóttir sagðist á Leirnum í gær hafa hripað niður þetta ljóð í gær – „ef ljóð skyldi kalla“!: Ég sá hann í morgun hér suður í mó þennan kæra kjarkaða gest hann sveif þar á vængjum fótlangur fugl yfirleit óðal sitt mitt barnslega hjarta bærðist svo kátt er vall hann sitt vorbjarta lag ég hvíslaði velkominn spói vinur minn velkominn heim Á sunndaginn var þetta erindi eftir Hólmfríði Bjartmarsdóttur á Boðnarmiði: Syngið nú þrestir um sól og hreiður og vor því sól skín í heiði og moldin ber angan af grósku. Nú öðlast á svipstundu aflið sitt, gleði og þor allir sem veturinn fyllti af leiða og þrjósku. Ingólfur Ómar var rómantískur eins og honum er eiginlegt þegar hann heilsaði Leirverjum á sunnu- daginn með þeim orðum að nú væri vor í lofti og það yljaði manni um hjartarætur: Vaknar jörð af værum blund vonir lífsins glæðast. Batnar tíðin braggast lund og blessuð lömbin fæðast. Fossa lækir fram af brún fjallahringur blánar. Gróa reitir grænka tún gróðurmoldin þánar. Syngja þrestir sætum róm í sunnan hlýjum þeynum. Sólin glitrar bruma blóm blikar dögg á greinum. Snemma í gærmorgun vaknaði hann við glaðan þrastasöng; Vonir kvikna, vaknar þrá vetrarkyljur þagna. Kvaka þrestir kvistum á komu vorsins fagna. Það kveður við annan tón hjá Ágústi Marinóssyni sem yrkir af sama tilefni: Svefninn er rofinn hér síðla nætur og sálin fer öll í hnút. Ég hugleiði snöggvast að fara á fætur og fylgja kettinum út. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Fuglar norðan lands og sunnan Í klípu „ANDINN MUN NÚ SVARA SPURNINGUM YKKAR.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÞAÐ MÁ EKKI ÝTA Á EFTIR NAUTAGRÝTUNNI MINNI.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... þegar hann eldar fyrir þig og vaskar upp. AÐ VAKNA ÉG ER Í SVO GÓÐU SKAPI! FYRIR TVO SILFUR- PENINGA MEGIÐ ÞIÐ EIGA KASTALANN! KREPPUTÍÐ EYÐILEGGUR ALLT FJÖR VIÐ ÞAÐ AÐ VERA VÍKINGUR! HVAÐ GÆTI MÖGULEGA FARIÐ ÚRSKEIÐIS? NAUÐUNGARUPPBO Ð ANDAGLAS NEIJÁ BLESS Víkverji brá sér á dögunum í nokk-urra daga ferð til Búdapest og getur ekki annað sagt en að hann hafi heillast af þessari fögru borg á bökk- um Dónár. Búdapest iðar af mannlífi og auðvelt er að gleyma sér við að skoða fjölbreyttan arkitektúr borgar- innar þar sem ægir saman hinum ýmsu stílbrögðum, frá nýklassík til art deco og innan um nýrri bygg- ingar, oftast ljótari, eins og til dæmis Marriott-hótelið, gler og steypa í anda brútalisma, sem sumum finnst svo óaðlaðandi að þeir setja aðeins það eitt skilyrði þegar þeir setjast á veitingastað: að þaðan sjáist hvergi í hótelið. x x x Þinghúsið er ein fegursta byggingborgarinnar, stendur Pestar- megin við Dóná og er magnað að sjá, hvort heldur sem er í dagsbirtu eða upplýst í náttmyrkri. Þinghúsið var vígt 1896 á þúsund ára afmæli Ung- verjalands og klárað 1904. Á þeim tíma var mikið blómaskeið í Búdapest og áttu ungverskir rithöfundar eftir að skrifa um þennan tíma í borginni af svipaðri eftirsjá og angurværð og Stefan Zweig um tímann fyrir styrj- aldirnar tvær í Veröld sem var, þótt á sínum tíma hafi mörgum þótt nóg um heimsborgarbraginn og talið að hann gerði að verkum að góðir siðir gleymdust og lausung gripi um sig. x x x Ungverska er ekki sérlega aðgengi-leg. Ungverskur viðmælandi Víkverja hélt því fram að ungverska væri næsterfiðasta tungumál heims á eftir kínversku. Ungverska tilheyrir flokki finnó-úgrískra tungna ásamt finnsku og eistnesku. Viðmælandinn kvaðst þó efast um að sá skyldleiki væri náinn. Í það minnsta skildi hann ekki bofs í finnsku og sæi ekki að mál- in ættu neitt sameiginlegt. Fyrir Vík- verja eiga þessi tungumál það sam- eiginlegt að vera eins og lokuð bók. Til marks um óaðgengileika ung- verskunnar er að hið einfalda orð skál verður á ungversku egészségedre. Með því er mælt fyrir góðri heilsu, en þó verður að hafa gát því að ekki má mikið út af bera til að úr verði að mæla fyrir góðum afturenda og þá gæti sá sem skálar verið kominn í klípu. vikverji@mbl.is Víkverji Jesús segir við hann: Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Enginn kemur til föðurins, nema fyrir mig. (Jóh. 14:6)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.