Morgunblaðið - 20.05.2017, Blaðsíða 14
FRÉTTASKÝRING
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Vegagerðin lítur svo á að Reykja-
víkurborg beri að fjármagna aukinn
kostnað af lagningu Sundabrautar
verði ódýrasta lausnin ekki valin.
Hér getur verið um tíu milljarða
króna kostnað að ræða.
Þetta álit Vegagerðarinnar kem-
ur fram í bréfi sem Hreinn Haralds-
son vegamálastjóri hefur sent um-
hverfis- og skipulagssviði
borgarinnar.
Lagning Sundabrautar hefur ver-
ið til umræðu í áratugi. Vegagerðin
og Reykjavíkur-
borg hafa unnið
að þessu verkefni
sameiginlega frá
árinu 1995. Um
er að ræða veg
sem liggja mun
frá Reykjavík yf-
ir sundin til Kjal-
arness. Þetta
verður þjóðvegur
í þéttbýli og því á
kostnaður að
greiðast úr ríkissjóði. Á þessu getur
orðið undantekning eins og fram
kemur síðar í fréttinni.
Vegagerðin vill innri leiðina
Mismunandi áherslur hafa verið
hjá Vegagerðinni og Reykjavíkur-
borg um það hvaða leið skuli valin
frá Reykjavík yfir í Gufunes.
Vegagerðin vill fara svokallaða
innri leið (eyjalausn), sem myndi
liggja frá Geldinganesi yfir í Gufu-
nes. Reykjavíkurborg hefur hins
vegar ákveðið að Sundabrautin
verði á svokallaðri ytri leið, þ.e. úr
Kleppsbakka yfir í Gufunes.
Í bréfinu segir vegamálastjóri
orðrétt: „Nú hafa Vegagerðinni bor-
ist fregnir af því að borgin hafi út-
hlutað lóðum á Gelgjutanga, sem er
í vegastæði innri leiðar Sundabraut-
ar og mun uppbygging þar útiloka
að hægt verði að velja þann kost
fyrir Sundabraut.“
Hér er vegamálastjóri að vísa til
samnings sem Dagur B. Eggertsson
borgarstjóri gerði við fasteigna-
félagið Festi ehf. í mars sl. um upp-
byggingu 332 íbúða í fimm húsum á
Gelgjutanga. Fasteignafélagið Fest-
ir er í eigu hjónanna Ólafs Ólafs-
sonar athafnamanns og Ingibjargar
Kristjánsdóttur.
Í bréfi vegamálastjóra kemur
fram að Reykjavíkurborg hafi frá
árinu 2014 látið vinna deiliskipulag
af svokallaðri Vogabyggð. Vega-
gerðin hafi gert athugasemdir við
þessa vinnu á öllum stigum hennar,
þar sem lögð var megináhersla á að
ekki yrði ráðstafað lóðum norður að
Kleppsmýravegi fyrr en fyrir lægi
samkomulag milli Vegagerðarinnar
og Reykjavíkurborgar.
Orðrétt segir í bréfi Hreins
Haraldssonar:
„Í erindi Vegagerðarinnar til
skipulagssviðs borgarinnar dagsett
26. febrúar 2014 er m.a. vakin at-
hygli borgarinnar á ákvæði 2. mgr.
28. greinar Vegalaga nr. 80/2007, en
þar segir: „Ákveða skal legu þjóð-
vega í skipulagi að fenginni tillögu
Vegagerðarinnar að höfðu samráði
Vegagerðarinnar og skipulagsyfir-
valda. Fallist sveitarfélag ekki á til-
lögu Vegagerðarinnar skal það rök-
styðja það sérstaklega.“ Umrætt
lagaákvæði var ítrekað í síðari er-
indum Vegagerðarinnar um málið.
Heimilt að krefja viðkomandi
sveitarfélag um kostnaðarmun
Í 3. málsgrein vegalaga segir svo:
„Ef þjóðvegi er að ósk sveitar-
stjórnar valinn annar staður en sá
sem Vegagerðin telur betri með til-
liti til kostnaðar og tæknilegrar út-
færslu og það leiðir til aukins kostn-
aðar er heimilt að krefja viðkomandi
sveitarfélag um kostnaðarmuninn.“
Það er með vísan til framan-
greinds ákvæðis sem vegamálastjóri
segir að Vegagerðin líti svo á að
Sundabraut Vegagerðin vill innri leiðina frá Geldinganesi en borgin hefur samþykkt að fara ytri leiðina.
Ytri leiðin er talin
10 milljörðum dýrari
Vegagerðin telur að borgin eigi að fjármagna mismuninn
borgin eigi að fjármagna aukinn
kostnað. Hreinn Haraldsson vega-
málastjóri sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að Vegagerðin
hefði ekki látið kostnaðarmeta mis-
munandi leiðir nýlega. „Á fyrri stig-
um var yfirleitt um sameiginlega
vinnu okkar og Reykjavíkurborgar
að ræða. Fyrri áætlanir hafa síðan
verið færðar upp til verðlags, án
þess að vinna þær aftur upp frá
grunni,“ segir Hreinn.
Munar milljörðum króna
Kostnaðaráætlanir sýndu að ytri
leið var um 50% dýrari en eyjalausn
þegar þær voru síðast gerðar fyrir
báðar leiðir á sambærilegum for-
sendum. „Kostnaðaráætlun fyrir
ytri leið yfir Kleppsvík hefur verið
uppfærð til verðlags 2016/2017 og
hljóðar upp á 27 milljarða króna.
Innifalin í þeirri kostnaðaráætlun
eru ekki mislæg gatnamót á Sæ-
braut. Út frá ofansögðu má áætla
kostnað við eyjalausn á innri leið yf-
ir Kleppsvík á 16-20 ma.kr. eða mis-
munakostnað af stærðargráðunni 10
ma.kr,“ segir Hreinn.
Á fundi borgarstjórnar Reykja-
víkur 21. mars síðastliðinn var sam-
þykkt tillaga borgarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins um að hefja
viðræður við ríkið vegna Sunda-
brautar. Markmið viðræðnanna fæl-
ist í því að vinna að arðsemismati og
kostnaðargreiningu, ákvarða endan-
lega útfærslu og legu brautarinnar
og tímasetja framkvæmdina.
Borgarráð samþykkti á fimmtu-
daginn tillögu umhverfis- og
skipulags að auglýsa tillögu að
deiliskipulagi Vogabyggðar 1 á
Gelgjutanga.
Borgarráðsfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins bókaði að hann minnti
enn og aftur á að með skipulagi
á Gelgjutanga væri komið í veg
fyrir að svokölluð innri leið
Sundabrautar væri möguleg. Með
því að skipuleggja byggð á öllum
Gelgjutanga væri Reykjavíkurborg
að auka kostnað við lagningu
Sundabrautar.
Borgarráðsfulltrúar Samfylk-
Borgarráð samþykkir að aug-
lýsa deiliskipulag Gelgjutanga
FULLTRÚAR Í BORGARRÁÐI ÓSAMMÁLA UM VOGABYGGÐ 1
ingarinnar, Bjartrar framtíðar,
Vinstri grænna og Pírata lögðu
fram svohljóðandi bókun:
„Stefna borgarstjórnar eftir
ítarlegt samráð við íbúa beggja
vegna Elliðaárvogs er að Sunda-
braut skuli vera á ytri leið í göng-
um. Þetta var niðurstaða allra
flokka eftir ítarlega skoðun árið
2008. Innri leiðin sem vísað er til
í bókun minnihlutans var ekki
hluti af aðalskipulagi Reykjavíkur,
né heldur er hún í svæðis-
skipulagi höfuðborgarsvæðisins,
og var sú afstaða einnig þver-
pólitísk.“
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2017
H
a
u
ku
r
0
1
.1
6
Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is
• Glæsilegt nýtt 30 herbergja hótel í virðulegu húsi í miðbæ
Reykjavíkur. Hótelið er í útleigu með langan og góðan leigusamning
við traustan og öflugan hótelaðila.
• Heildsala með vörur fyrir ferðamenn. Hér er um að ræða lítið en
aðrbært fyrirtæki sem hannar og lætur framleiða fyrir sig vörur
ætlaðar ferðamönnum. Ársvelta 45 mkr. og ársverk um tvö.
• Bílaleiga með á annað hundrað bíla og fína aðstöðu. Sala mikil í
gegn um eigin vefsíðu. Góð EBITDA.
• Nýtt, lítið og sérlega fallegt hótel í Reykjanesbæ. Fær mjög góða
dóma á bókunarsíðum. Yfir 90% nýting.
• Fiskvinnsla á SV-horninu í framleiðslu á fiski og harðfiski. Velta 50
mkr. Inannlandsssala og útflutningur. Miklir möguleikar til
veltuaukningar.
• Gott hótel miðsvæðis á Suðurlandi sem býður upp á mikla möguleika
fyrir áhugasaman, nýjan eiganda.
• Framleiðslufyrirtæki fyrir íhluti í skófatnað. Viðskiptavinir eru mörg
þekktustu merkin í skóm í heiminum. Fyrirtækið, sem er alfarið í eigu
Íslendinga, er syðst í Kína (nálægt Hong Kong) í nútímalegu
húsnæði, með góðan vélakost og 50 manns í vinnu.
• Leiðandi fyrirtæki í sölu á legsteinum og tengdum vörum. Ársvelta
160 mkr. og mjög góð afkoma.
• Lítið fyrirtæki með sterka stöðu á sérhæfðum markaði með sjálfsala
og leiktæki. Velta og afkoma stöðug, en tækifæri á að gera enn
betur. Spennandi tækifæri fyrir kröftuga aðila.
Guðni Halldórsson
lögfræðingur,
gudni@kontakt.is
Þórarinn Arnar Sævarsson
fasteignaráðgjafi,
thorarinn@kontakt.is
Gunnar Svavarsson
viðskiptafræðingur,
gunnar@kontakt.is
Brynhildur Bergþórsdóttir
rekstrarhagfræðingur,
brynhildur@kontakt.is
Sigurður A. Þóroddsson
hæstaréttarlögmaður,
sigurdur@kontakt.is
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
„Fjárlaganefnd gerir engar breyt-
ingar á útgjalda- né tekjuhlið fjár-
málaáætlunar,“ segir Haraldur
Benediktsson, formaður fjárlaga-
nefndar Alþingis, en ályktun
nefndarinnar var lögð fyrir þingið í
gær.
Spurður um væntanlegar virðis-
aukaskattsbreytingar fjármálaráð-
herra segir hann mikilvægt að hafa í
huga að aldrei hafi staðið til að af-
greiða þær breytingar með þessu
þingmáli.
„Lagðar eru fram ábendingar til
ríkisstjórnarinnar, t.d. að óheppilegt
sé að ráðast í breytingar á skattinum
um mitt tímabil. Þá er komið með til-
lögur að t.d. komugjöldum og öðrum
leiðum en við erum ekki að afgreiða
breytinguna með þessu þingmáli.“
Opnuð er umræða um nýjar leiðir í
rekstri og byggingu samgöngu-
mannvirkja og segir Haraldur að við
því hafi verið búist að menn myndu
reka tærnar í hugmyndir um flug-
stöðina við Keflavíkurflugvöll.
„Flugstöðin sjálf er að mestu bara
verslunarhúsnæði. Ekki er verið að
tala um sölu flugvallar eða neina
slíka breytingu. Hér er aðeins verið
að velta því fyrir sér hvort ríkið geti
ekki losað fé með því að selja þessa
verslunarmiðstöð og nota féð til að
laga vegi eða laga flugvelli, sérstak-
lega innanlandsflugvelli.“
Mikið púður hefur farið í fjármála-
áætlun og á Haraldur von á langri
umræðu um málið.
„Meirihluti og minnihluti hafa
sökkt sér í þetta mál og menn hafa
mikið fram að færa. Það má því bú-
ast við tveggja eða þriggja daga um-
ræðu.“
Búist við langri
umræðu í þinginu
Hægt að laga vegi og flugvelli fyrir
söluhagnað flugstöðvarinnar í Keflavík
Hreinn
Haraldsson