Morgunblaðið - 20.05.2017, Síða 14

Morgunblaðið - 20.05.2017, Síða 14
FRÉTTASKÝRING Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Vegagerðin lítur svo á að Reykja- víkurborg beri að fjármagna aukinn kostnað af lagningu Sundabrautar verði ódýrasta lausnin ekki valin. Hér getur verið um tíu milljarða króna kostnað að ræða. Þetta álit Vegagerðarinnar kem- ur fram í bréfi sem Hreinn Haralds- son vegamálastjóri hefur sent um- hverfis- og skipulagssviði borgarinnar. Lagning Sundabrautar hefur ver- ið til umræðu í áratugi. Vegagerðin og Reykjavíkur- borg hafa unnið að þessu verkefni sameiginlega frá árinu 1995. Um er að ræða veg sem liggja mun frá Reykjavík yf- ir sundin til Kjal- arness. Þetta verður þjóðvegur í þéttbýli og því á kostnaður að greiðast úr ríkissjóði. Á þessu getur orðið undantekning eins og fram kemur síðar í fréttinni. Vegagerðin vill innri leiðina Mismunandi áherslur hafa verið hjá Vegagerðinni og Reykjavíkur- borg um það hvaða leið skuli valin frá Reykjavík yfir í Gufunes. Vegagerðin vill fara svokallaða innri leið (eyjalausn), sem myndi liggja frá Geldinganesi yfir í Gufu- nes. Reykjavíkurborg hefur hins vegar ákveðið að Sundabrautin verði á svokallaðri ytri leið, þ.e. úr Kleppsbakka yfir í Gufunes. Í bréfinu segir vegamálastjóri orðrétt: „Nú hafa Vegagerðinni bor- ist fregnir af því að borgin hafi út- hlutað lóðum á Gelgjutanga, sem er í vegastæði innri leiðar Sundabraut- ar og mun uppbygging þar útiloka að hægt verði að velja þann kost fyrir Sundabraut.“ Hér er vegamálastjóri að vísa til samnings sem Dagur B. Eggertsson borgarstjóri gerði við fasteigna- félagið Festi ehf. í mars sl. um upp- byggingu 332 íbúða í fimm húsum á Gelgjutanga. Fasteignafélagið Fest- ir er í eigu hjónanna Ólafs Ólafs- sonar athafnamanns og Ingibjargar Kristjánsdóttur. Í bréfi vegamálastjóra kemur fram að Reykjavíkurborg hafi frá árinu 2014 látið vinna deiliskipulag af svokallaðri Vogabyggð. Vega- gerðin hafi gert athugasemdir við þessa vinnu á öllum stigum hennar, þar sem lögð var megináhersla á að ekki yrði ráðstafað lóðum norður að Kleppsmýravegi fyrr en fyrir lægi samkomulag milli Vegagerðarinnar og Reykjavíkurborgar. Orðrétt segir í bréfi Hreins Haraldssonar: „Í erindi Vegagerðarinnar til skipulagssviðs borgarinnar dagsett 26. febrúar 2014 er m.a. vakin at- hygli borgarinnar á ákvæði 2. mgr. 28. greinar Vegalaga nr. 80/2007, en þar segir: „Ákveða skal legu þjóð- vega í skipulagi að fenginni tillögu Vegagerðarinnar að höfðu samráði Vegagerðarinnar og skipulagsyfir- valda. Fallist sveitarfélag ekki á til- lögu Vegagerðarinnar skal það rök- styðja það sérstaklega.“ Umrætt lagaákvæði var ítrekað í síðari er- indum Vegagerðarinnar um málið. Heimilt að krefja viðkomandi sveitarfélag um kostnaðarmun Í 3. málsgrein vegalaga segir svo: „Ef þjóðvegi er að ósk sveitar- stjórnar valinn annar staður en sá sem Vegagerðin telur betri með til- liti til kostnaðar og tæknilegrar út- færslu og það leiðir til aukins kostn- aðar er heimilt að krefja viðkomandi sveitarfélag um kostnaðarmuninn.“ Það er með vísan til framan- greinds ákvæðis sem vegamálastjóri segir að Vegagerðin líti svo á að Sundabraut Vegagerðin vill innri leiðina frá Geldinganesi en borgin hefur samþykkt að fara ytri leiðina. Ytri leiðin er talin 10 milljörðum dýrari  Vegagerðin telur að borgin eigi að fjármagna mismuninn borgin eigi að fjármagna aukinn kostnað. Hreinn Haraldsson vega- málastjóri sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að Vegagerðin hefði ekki látið kostnaðarmeta mis- munandi leiðir nýlega. „Á fyrri stig- um var yfirleitt um sameiginlega vinnu okkar og Reykjavíkurborgar að ræða. Fyrri áætlanir hafa síðan verið færðar upp til verðlags, án þess að vinna þær aftur upp frá grunni,“ segir Hreinn. Munar milljörðum króna Kostnaðaráætlanir sýndu að ytri leið var um 50% dýrari en eyjalausn þegar þær voru síðast gerðar fyrir báðar leiðir á sambærilegum for- sendum. „Kostnaðaráætlun fyrir ytri leið yfir Kleppsvík hefur verið uppfærð til verðlags 2016/2017 og hljóðar upp á 27 milljarða króna. Innifalin í þeirri kostnaðaráætlun eru ekki mislæg gatnamót á Sæ- braut. Út frá ofansögðu má áætla kostnað við eyjalausn á innri leið yf- ir Kleppsvík á 16-20 ma.kr. eða mis- munakostnað af stærðargráðunni 10 ma.kr,“ segir Hreinn. Á fundi borgarstjórnar Reykja- víkur 21. mars síðastliðinn var sam- þykkt tillaga borgarfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins um að hefja viðræður við ríkið vegna Sunda- brautar. Markmið viðræðnanna fæl- ist í því að vinna að arðsemismati og kostnaðargreiningu, ákvarða endan- lega útfærslu og legu brautarinnar og tímasetja framkvæmdina. Borgarráð samþykkti á fimmtu- daginn tillögu umhverfis- og skipulags að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Vogabyggðar 1 á Gelgjutanga. Borgarráðsfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins bókaði að hann minnti enn og aftur á að með skipulagi á Gelgjutanga væri komið í veg fyrir að svokölluð innri leið Sundabrautar væri möguleg. Með því að skipuleggja byggð á öllum Gelgjutanga væri Reykjavíkurborg að auka kostnað við lagningu Sundabrautar. Borgarráðsfulltrúar Samfylk- Borgarráð samþykkir að aug- lýsa deiliskipulag Gelgjutanga FULLTRÚAR Í BORGARRÁÐI ÓSAMMÁLA UM VOGABYGGÐ 1 ingarinnar, Bjartrar framtíðar, Vinstri grænna og Pírata lögðu fram svohljóðandi bókun: „Stefna borgarstjórnar eftir ítarlegt samráð við íbúa beggja vegna Elliðaárvogs er að Sunda- braut skuli vera á ytri leið í göng- um. Þetta var niðurstaða allra flokka eftir ítarlega skoðun árið 2008. Innri leiðin sem vísað er til í bókun minnihlutans var ekki hluti af aðalskipulagi Reykjavíkur, né heldur er hún í svæðis- skipulagi höfuðborgarsvæðisins, og var sú afstaða einnig þver- pólitísk.“ 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2017 H a u ku r 0 1 .1 6 Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is • Glæsilegt nýtt 30 herbergja hótel í virðulegu húsi í miðbæ Reykjavíkur. Hótelið er í útleigu með langan og góðan leigusamning við traustan og öflugan hótelaðila. • Heildsala með vörur fyrir ferðamenn. Hér er um að ræða lítið en aðrbært fyrirtæki sem hannar og lætur framleiða fyrir sig vörur ætlaðar ferðamönnum. Ársvelta 45 mkr. og ársverk um tvö. • Bílaleiga með á annað hundrað bíla og fína aðstöðu. Sala mikil í gegn um eigin vefsíðu. Góð EBITDA. • Nýtt, lítið og sérlega fallegt hótel í Reykjanesbæ. Fær mjög góða dóma á bókunarsíðum. Yfir 90% nýting. • Fiskvinnsla á SV-horninu í framleiðslu á fiski og harðfiski. Velta 50 mkr. Inannlandsssala og útflutningur. Miklir möguleikar til veltuaukningar. • Gott hótel miðsvæðis á Suðurlandi sem býður upp á mikla möguleika fyrir áhugasaman, nýjan eiganda. • Framleiðslufyrirtæki fyrir íhluti í skófatnað. Viðskiptavinir eru mörg þekktustu merkin í skóm í heiminum. Fyrirtækið, sem er alfarið í eigu Íslendinga, er syðst í Kína (nálægt Hong Kong) í nútímalegu húsnæði, með góðan vélakost og 50 manns í vinnu. • Leiðandi fyrirtæki í sölu á legsteinum og tengdum vörum. Ársvelta 160 mkr. og mjög góð afkoma. • Lítið fyrirtæki með sterka stöðu á sérhæfðum markaði með sjálfsala og leiktæki. Velta og afkoma stöðug, en tækifæri á að gera enn betur. Spennandi tækifæri fyrir kröftuga aðila. Guðni Halldórsson lögfræðingur, gudni@kontakt.is Þórarinn Arnar Sævarsson fasteignaráðgjafi, thorarinn@kontakt.is Gunnar Svavarsson viðskiptafræðingur, gunnar@kontakt.is Brynhildur Bergþórsdóttir rekstrarhagfræðingur, brynhildur@kontakt.is Sigurður A. Þóroddsson hæstaréttarlögmaður, sigurdur@kontakt.is Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is „Fjárlaganefnd gerir engar breyt- ingar á útgjalda- né tekjuhlið fjár- málaáætlunar,“ segir Haraldur Benediktsson, formaður fjárlaga- nefndar Alþingis, en ályktun nefndarinnar var lögð fyrir þingið í gær. Spurður um væntanlegar virðis- aukaskattsbreytingar fjármálaráð- herra segir hann mikilvægt að hafa í huga að aldrei hafi staðið til að af- greiða þær breytingar með þessu þingmáli. „Lagðar eru fram ábendingar til ríkisstjórnarinnar, t.d. að óheppilegt sé að ráðast í breytingar á skattinum um mitt tímabil. Þá er komið með til- lögur að t.d. komugjöldum og öðrum leiðum en við erum ekki að afgreiða breytinguna með þessu þingmáli.“ Opnuð er umræða um nýjar leiðir í rekstri og byggingu samgöngu- mannvirkja og segir Haraldur að við því hafi verið búist að menn myndu reka tærnar í hugmyndir um flug- stöðina við Keflavíkurflugvöll. „Flugstöðin sjálf er að mestu bara verslunarhúsnæði. Ekki er verið að tala um sölu flugvallar eða neina slíka breytingu. Hér er aðeins verið að velta því fyrir sér hvort ríkið geti ekki losað fé með því að selja þessa verslunarmiðstöð og nota féð til að laga vegi eða laga flugvelli, sérstak- lega innanlandsflugvelli.“ Mikið púður hefur farið í fjármála- áætlun og á Haraldur von á langri umræðu um málið. „Meirihluti og minnihluti hafa sökkt sér í þetta mál og menn hafa mikið fram að færa. Það má því bú- ast við tveggja eða þriggja daga um- ræðu.“ Búist við langri umræðu í þinginu  Hægt að laga vegi og flugvelli fyrir söluhagnað flugstöðvarinnar í Keflavík Hreinn Haraldsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.