Morgunblaðið - 20.05.2017, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 20.05.2017, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2017 Sigtúni 42 I 105 Reykjavík I sími 540 0700 I lifbru@lifbru.is Ársfundur Brúar lífeyrissjóðs verður haldinn fimmtudaginn 8. júní kl. 12.00 í húsakynnum sjóðsins, Sigtúni 42, 2. hæð, Reykjavík. Dagskrá 1. Venjuleg ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins 2. Breytingar á samþykktum 3. Önnur mál löglega upp borin Allir sjóðfélagar, fulltrúar launagreiðenda og fulltrúar viðkomandi stéttarfélaga eiga rétt til fundarsetu og hafa málfrelsi og tillögurétt. Reykjavík, 8. maí 2017 Stjórn Brúar lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga Yfirlit yfir afkomu ársins 2016 2016 2015 Efnahagsreikningur (í milljónum kr.) A deild V deild B deild Samtals Samtals Eignahlutir í félögum og sjóðum 31.966 6.837 800 39.603 41.771 Skuldabréf 68.295 14.607 3.459 86.361 69.756 Bundnar bankainnistæður 420 90 19 529 4.173 Aðrar fjárfestingar 24 5 0 29 64 Kröfur 526 113 335 974 1.610 Varanlegir rekstrarfjármunir 93 20 0 113 109 Handbært fé 811 173 22 1.007 1.044 Skuldir -70 -15 -57 -142 -200 Hrein eign til greiðslu lífeyris 102.066 21.830 4.579 128.475 118.326 Breyting á hreinni eign (í milljónum kr.) Iðgjöld 8.154 2.491 954 11.599 10.361 Lífeyrir -2.089 -161 -1.349 -3.598 -3.109 Hreinar fjárfestingatekjur 1.950 399 94 2.443 12.221 Rekstrarkostnaður -203 -34 -58 -295 -279 Breyting á hreinni eign til greiðslu lífeyris 7.813 2.695 -359 10.149 19.194 Hrein eign frá fyrra ári 94.253 19.135 4.938 118.326 100.605 Afhent í lok árs við lokun séreignadeildar -1.473 Hrein eign til greiðslu lífeyris 102.066 21.830 4.579 128.475 118.326 Kennitölur Nafnávöxtun 1,8% 1,8% 0,8% 1,8% 11,6% Hrein raunávöxtun -0,3% -0,3% -1,3% -0,3% 9,4% Raunávöxtun (5 ára meðaltal) 4,5% 4,5% 4,4% 5,2% Raunávöxtun (10 ára meðaltal) 1,8% 1,8% 1,7% 2,5% Hrein eign umfram heildarskuldbindingar -13,3% 3,4% -25,8% Virkir sjóðfélagar (meðaltal ársins) 11.491 4.570 164 16.225 16.316 Fjöldi lífeyrisþega (meðaltal ársins) 3.531 979 990 5.500 4.805 Í stjórn sjóðsins eru: Garðar Hilmarsson, formaður, Kristbjörg Stephensen, varaformaður, Benedikt Þór Valsson, Elín Björg Jónsdóttir, Salóme A. Þórisdóttir og Sigurbergur Ármannsson. Framkvæmdastjóri er Gerður Guðjónsdóttir. Ársfundur 2017 H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Nýverið voru fjórir verkfræðingar sæmdir heiðursmerki Verkfræð- ingafélags Íslands. Þetta eru þau Arnlaugur Guðmundsson, Gísli Viggósson, Jónas Elíasson og Ragna Karlsdóttir. Arnlaugur Guðmundsson er raf- magnsverkfræðingur og starfaði lengi hjá Orkustofnun við m.a. smíði á sérhæfðum mælitækjum. Gísli Viggósson er byggingaverk- fræðingur og starfaði lengi við hönnun hafnarmannvirkja. Jónas Elíasson hefur, samkvæmt tilkynn- ingu, lagt fram mikilvægan skerf til vatna- og straumfræði og Ragna Karlsdóttir er byggingaverkfræð- ingur og hefur einkum starfað við rannsóknir á sviði jarðeðlisfræði. Verkfræð- ingar fengu heiðursmerki Verkfræði Frá vinstri: Jónas Elías- son, Ragna Karlsdóttir, Arnlaugur Guðmundsson og Gísli Viggósson. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Þetta er fyrst og fremst gert til þess að hjálpa kaupendum hesta að fá þann hest sem þeir í rauninni vilja,“ segir Hlín C. Mainka Jóhannesdóttir, kenn- ari við Háskólann á Hólum og fulltrúi í útreiðanefnd FEIF, alþjóðasamtaka um íslenska hestinn. Samtökin hafa þróað próf fyrir reiðhesta til að auð- velda samskipti kaupenda og seljenda og gefið út frumútgáfu þess. Í upphafi, á meðan fyrirkomulagið er að þróast, er gert ráð fyrir að kaupandinn fylli út form þar sem fram kemur hverskonar reiðhest hann vill kaupa og seljandinn fylli út form um hverskonar hest hann hefur til sölu. Hlín segir að ætlunin sé að þróa þetta út í það að óháður aðili taki út hestinn og skrái á hvaða þjálf- unarstigi hann er, hvaða gangteg- undum hann býr yfir og hvernig geðslag hans er. Gunnar Sturluson, forseti FEIF, segir að þetta verkefni verði þróað áfram. Fyrst í stað verði upplýsing- arnar einungis á milli kaupanda og seljanda. Ef þetta heppnist vel og leið finnst til að staðla upplýsingarnar gætu þær átt heima í World Feng, upprunaættbók íslenska hestsins, á sama hátt og ýmsar aðrar upplýs- ingar sem þar eru skráðar. Meiri þörf erlendis Hlín segir að þjálfa þurfi úttekt- armennina. Það taki tíma. Reiknar hún með að haldin verði námskeið víða um Evrópu og ef til vill víðar í þeim tilgangi. Hún telur að mesta þörfin á þessu formlega sniði sé þegar hestar eru seldar milli landa og innan Evrópu þar sem miklar fjarlægðir eru á milli kaupanda og seljenda. Hún segir að hér á landi skreppi kaupandinn ein- faldlega til seljandans og prófi hest- inn sem hann er að velta fyrir sér að kaupa. Því sé minni þörf á þessu fyr- irkomulagi hér á landi. Hrossapróf innleidd í Evrópu Morgunblaðið/Ófeigur Á baki Riðið út við Rauðavatn.  Eiginleikar reiðhestsins skráðir til að auðvelda kaupanda að fá þann rétta „Samfélagið gerir kröfur um að fyrirtæki séu ábyrg í umhverfis- málum og raunar eru allir orðnir sér vel meðvitaðir um skyldurnar sem á okkur hvíla um góða um- gengni við náttúruna,“ segir Guðný Steinsdóttir, markaðsstjóri Mjólk- ursamsölunnar. Fyrirtækið setti nýverið á markað nýja gerð mjólk- urferna sem eru umhverfisvænni en áður. Það sem nú telst til tíðinda er að plastið sem notað er í tappann á mjólkurfernum og á innra byrði fernunnar er unnið úr plöntum í stað olíu áður. Umbúðirnar eru þær umhverfisvænstu sem völ er á „Plastið í tappanum á mjólk- urfernum er úr sykurrreyr sem gróðursettur er á rýru beitilandi. Hverja plöntu er hægt að nýta til uppskeru í 5-7 ár áður en planta þarf nýrri. Með þessari nýju aðferð er ekki gengið á takmarkaðar jarð- efnaauðlindir við framleiðsluna og á sama tíma er dregið úr losun koltvísýrings út í andrúmsloftið,“ segir Guðný Steinsdóttir þegar hún lýsir helsta muninum milli nýja plastsins og þess hefðbundna. sbs@mbl.is Tappar úr sykurreyr Morgunblaðið/Sigurður Bogi Mjólk Guðný Steinsdóttir með fernurnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.