Morgunblaðið - 20.05.2017, Side 31
31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2017
Sólstafir Börn í leikskólanum tóku að sér óunnið verk borgarinnar, gengu hringinn í kringum Tjörnina í Reykjavík í gær og tíndu upp rusl til að allt væri hreint og fínt hjá ungunum.
Hanna
Síðastliðinn laug-
ardag var haldinn
fundur um málefni
aldraðs fólks í Iðnó í
Reykjavík. Fundurinn
var fjölsóttur – fullt út
úr dyrum – og í kjölfar-
ið hafa margir spurst
fyrir um gang fund-
arins og lýst áhuga á
málefninu. Og hvert
var málefnið nákvæm-
lega?
Fullnægjandi aðstoð?
Yfirskrift fundarins var þessi
spurning: Er öldruðum í heima-
húsum sinnt sem skyldi? Reynt var
að brjóta til mergjar hvort sú stefna
ríkis og sveitarfélaga að fólk búi á
heimilum sínum á gamals aldri, eftir
að það verður hjálparþurfi, hafi
reynst heilladrjúg. Þegar þessi
stefna var kynnt á sínum tíma, féll
hún almennt í góðan jarðveg. Margir
urðu þó til að skilyrða stuðning sinn.
Í fyrsta lagi vildu efasemdarmenn
að tryggt yrði að fólk hefði val, enda
vildu margir helst dvelja á stofnun
eftir að þeir eru farnir að þurfa að
reiða sig á utanaðkomandi aðstoð.
Í öðru lagi þyrftu forsendur að
vera fyrir hendi til þess að fólk sem
er hjálparþurfi, réði yf-
irleitt við það að búa
heima.
Þessi umræða er síð-
ur en svo bundin við Ís-
land og vísa ég þar í
fróðlegt málþing um
efnið á vegum Evrópu-
sambands sjúkraliða
sem haldið var hér á
landi fyrir réttu ári og
eru niðurstöður mál-
þingsins aðgengilegar á
vef Sjúkraliðafélags Ís-
lands.
Mikil fyrirheit...
En hvernig hefur þessi stefna, all-
ir heima sem lengst, reynst vera í
framkvæmd? Þetta var uppistaðan í
umræðunni á fyrrnefndum Iðnó-
fundi. Ræðumenn voru þrír og
bjuggu allir yfir mikilli þekkingu og
reynslu.
Gunnar Alexander Ólafsson,
heilsuhagfræðingur, flutti stór-
fróðlegan fyrirlestur þar sem slá-
andi upplýsingar komu fram um ald-
urssamsetningu þjóðarinnar og þá
hve mjög öldruðum hefði fjölgað
hlutfallslega á undanförnum áratug-
um. Á sama tíma hefði hjúkrunar- og
búsetuúrræðum fyrir hina öldruðu
ekki fjölgað í neinu samræmi við
þessa þróun. En hvað þá með hina
nýju stefnu, aldraðir heima, hefur
aðstoð við þá aukist með breyttum
áherslum? Það var jú stefnan að
fækka nýjum búsetuúrræðum en
auka stuðninginn við fólkið heima
við. Út á þetta gengu hin miklu fyr-
irheit.
... en minna um efndir
Ekki hefur þetta gengið eftir.
Þórunn S. Einarsdóttir, fé-
lagsráðgjafi, sem hefur að baki nær
tveggja áratuga reynslu í starfi á
þessu sviði, tíundaði ýmislegt sem
vel hefði verið gert en kvaðst þó
verða að segja að staða aldraðs fólks
í heimahúsum hefði ekki batnað í
síðari tíð og ekki staðið í stað, heldur
hefði hún beinlínis versnað. Þórunn
sagði margt annað umhugsunarvert
í ræðu sinni, en sérstaka áherslu
lagði hún á mikilvægi þess að kerfið
væri sveigjanlegt og tæki mið af
þörfum fólks og virti óskir hvers og
eins um þjónustu og aðstoð.
Þetta var einnig grunntónninn í
ræðu Önnu Þrúðar Þorkelsdóttur,
sem í tæpa þrjá áratugi hafði með
höndum verkstjórn á félagsmála-
sviði Reykjavíkurborgar. Hún sagði
að ástæða væri til að hugleiða með
hvaða hætti væri hægt að koma í veg
fyrir að kerfið yrði ómannúðlegt og
vélrænt og tók dæmi þar að lútandi.
Anna Þrúður lagði áherslu á að verið
væri að fjalla um fólk með mismundi
þarfir og óskir. Þetta vildi hins veg-
ar gleymast. Allar lausnir yrðu að
taka mið af þessu en því miður væri
svo ekki og færi ástandið versnandi
að þessu leyti að hennar mati.
Horft fram í tímann
Fundurinn var stuttur og bauð
ekki upp á umræður að loknum fyr-
irlestrunum. Vissulega hefði verið
fróðlegt að bera saman úrræði og
stöðu mála hjá einstökum sveit-
arfélögum, fjalla um tilraunir sem
eru í farvatninu hjá Reykjavík-
urborg til úrbóta og til þess fallnar
að gera þjónustuna markvissari með
samhæfingu, nokkuð sem Gunnar
Alexander Ólafsson hafði staldrað
við í sínum fyrirlestri en hann vildi
að farið yrði með öldrunarþjón-
ustuna inn í svipaðan farveg og mál-
efni fatlaðs fólks; hún sameinuð und-
ir einu þaki og í allstórum einingum
sem væru fjárhagslega burðugar.
Vantar fjármuni í málaflokkinn
Lokaniðurstöðu hans er þó ekki
hægt að horfa framhjá en hún var sú
að lögboðin þjónusta og aðstoð við
aldrað fólk væri undirfjármögnuð!
Reynslufólkið úr geiranum tók
undir þetta.
En ef það er nú svo að staðan í
þessum málaflokki er ekki að batna
og henni ekki haldið í horfinu heldur
sé hún beinlínis að versna, þurfa þá
ábyrgðarmenn í stjórnmálum ekki
að grípa til aðgerða og það strax?
Ráðamenn svari og
allir á vaktinni
Margir þeirra sem komið hafa að
máli við mig í kjölfar þessa fundar
hafa spurt, hvað nú? Fundurinn var
góður en hvað svo? Mitt svar er
þetta: Ráðamenn hjá sveitarfélögum
og ríkisvaldi verða að stíga fram og
skýra með hvaða hætti eigi að bæta
úr óviðunandi ástandi.
Fjölmiðlafólk þarf einnig að vera
a vaktinni. En fyrst og fremst er það
pólitíkin sem verður að svara því
hvort það verði áfram þannig að
aldrað fólk sem dvelur heima og þarf
á hjálp að halda, til dæmis til að baða
sig, fái einvörðungu aðstoð við það
einu sinni í viku. Mér fyndist ágætt
að byrja á því að fá svar við þessari
einföldu spurningu sem þó vegur svo
þungt í lífi margra einstaklinga.
Eftir Ögmund
Jónasson »Ráðamenn hjá sveit-
arfélögum og rík-
isvaldi verða að stíga
fram og skýra með
hvaða hætti eigi að bæta
úr óviðunandi ástandi.
Ögmundur
Jónasson
Höfundur er fyrrverandi
heilbrigðisráðherra.
Fullt út úr dyrum en hvað svo?