Skátablaðið Faxi - 01.03.1989, Side 2
x > -n o — CD > t— cö > —i f>-^ cn
Afmæli Baden-Powells
Þann 22. febrúar, átti stofnandi
skátahreyfingarinnar Baden-
Powell afmæli. Það var haldið
hátíðlegt af skátunr hérna í
Vestmannaeyjum.
Skátar mættu niður í skáta-
heimili kl. 19:30 og fékk hver
þátttakandi eitt friðarkerti.
Síðan var farið í raðir. Hver sveit
hafði kyndla og hver skáta-
flokkur sinn fána.
Kl. 20:00 var gengið inn í
Herjólfsdal og var sungið rnikið
á leiðinni. Þegar þangað var
komið röðuðu allir sér hringinn í
kringum brunninn. Friðar-
kertunum var raðað í hring á
brunninum og kveikt á þeim.
Félagsforingi Faxa, Páll
Zóphoníasson talaði um Baden-
Powell og friðarboðskap hans.
Vakti ræða Páls mikla athygli.
Þvínæst voru skemmtiatriði
sýnd og skátasöngvar sungnir.
Að lokum voru nýir skátar
vígðir. Var það hátíðleg athöfn.
Eftir þetta var gengið til baka
niður í skátaheimili. Þar var
Bræðralagssöngurinn sunginn
og þessari miklu athöfn slitið.
Voru allir sammála um það að
afmælið hefði tekist með glæsi-
brag.
—Vala og Eyja.
Starfsáætlun
Skátafélagsins Faxa
í Vestmannaeyjum fyrír árið 1989
JANÚAR
Gönguferð um Heimaey með
þátttöku foreldra og eldri skáta.
Aðalfundur félagsins.
Seinna útilegutímabil flokkanna
hefst.
FEBRÚAR
Afmælis félagsins þann 22.
febrúar verður minnst eins og
venjulega með afmælishátíð í
Skátaheimilinu. Þennan dag
hafa skátar út um allan heim
valið, sem friðardag. Sérstakt
námskeið fyrir 18 ára og eldri,
dróttskáta. Stofnun dróttskáta-
sveitar.
MARS
Skátaskeyti vegna ferminga.
Útgáfa Skátablaðsins Faxa.
APRÍL
Vetrarnámskeið haldið á
Hellisheiði dagana 7., 8. og 9.
Aldurstakmark 14 ára og eldri.
MAÍ
Vorverk, hreinsa til á tjald-
svæðinu og lóðinni við Faxastíg.
Undirbúningur að skátamóti.
Umsjón með tjaldsvæðinu í
Herjólfsdal.
Skátadagurinn fyrir yngri
skátana haldinn í Reykjavík,
aldur 7-10 ára.
JÚNÍ
Skátamót haldið hér í Eyjurn.
JÚLÍ
Félagsferð um helgi, úti í
Elliðaey, aldurstakmark 14 ára
og eldri.
Umsjón með tjaldsvæðinu í
Herjólfsdal.
SEPTEMBER
Innritun nýrra félaga og skrá-
setning eldri.
Foringjanámskeið fyrir sveitar-
foringja.
OKTOBER
Foringjanámskeið fyrir flokks-
foringja.
Flokksútilegur hefjast.
Félagsfundur.
NÓVEMBER
Neistanámskeið haldið hér í
Eyjum, 14 ára og eldri.
Flokksútilegur.
DESEMBER
Jólafundur, kvöldvaka, gestum
boðið, eldri skátar og foreldrar.
Jólapóstur.
Útgáfa jólablaðs.
ALLT EFNI í BLAÐINU
ER UNNIÐ AF SKÁTUM
BLAÐNEFND: Magnús Ingi Eggertsson
Björg Ólöf Bragadóttir
Viktor Ragnarsson
Þór Vilhelm Jónatansson
Willum Andersen
Valgerður Jóna Jónsdóttir
AUGLÝSINGAR: Viktor Ragnarsson
SKÁTABLAÐIÐ
FAXI
Útgefandi: Skátafélagið Faxi
Ábyrgðarmaður: Marinó Sigursteinsson
Prentverk: Eyrún h.f.
2