Skátablaðið Faxi - 01.03.1989, Síða 6

Skátablaðið Faxi - 01.03.1989, Síða 6
<s> x< < m _i < o — Q U- < x Heimsókn Arnarunga FÖSTUDAGURINN (ÞRETTÁNDINN): Sveitin Arnarungar kom hingað til Vestmannaeyja þann 6. janúar síðastliðinn. Og tókum við Smyrlarnir að okkur það verkefni að taka á móti þeim og að skipuleggja dagskrá fyrir okkur og Arnarunga. Þeir komu með Herjólfi um fjögurleytið og vorum við Smyrlarnir mættir niður á Herjólfsbryggju og biðum spenntir eftir þeim. Þeir urðu flestir sjóveikir á leiðinni en Palli sveitarforinginn þeirra huggaði þá aðeins með því að segja þeim að það biðu 40 stelpur eftir þeim á bryggjunni og urðu þeir um leið enn spenntari fyrir því að koma til Eyja. En þegar þeir voru komnir með Herjólfi var ekki neinar stelpur að sjá, en þá kom upp mikið bros á Palla því hann lék heldur betur á þá. En þrátt fyrir það voru allir í góðu skapi. Það var dálítið bras með að fá bíl til að keyra farangrinum þeirra upp í Gamla golfskálann, en það hafðist eftir dálitla bið. En þá lögðum við af stað upp í skála og vorum við komnir upp í skálann stuttu seinna. Eftir það voru flestir farnir að kynnast þessum strákum frá Dalbúum en það hét félagið þeirra en það er í Reykjavík. Um klukkan 18:00 fórum við Smyrlarnir allir í mat heim til okkar en Arnarungarnir voru upp í skála og borðuðu þar. Við hittumst síðan aftur kl. 19:45 upp í skála, en þá fórum við ásamt Arnarungum upp í sund- höll en þaðan horfðum við á flugeldasýninguna sem Týr sá um. En eftir það var farið að kíkja á fjörið hjá jólasveinunum, Grýlu og Leppalúða og fleirum sem voru á þessari þrettánda- gleði, en þetta var í fyrsta skiptið sem þeir sáu svona hátíð og skemmtu þeir sér mjög vel. En þrettándagleðin var búin um I tíuleytið og lögðum við því af 6 stað upp í skála og héldum þar kvöldvöku sem heppnaðist mjög vel og var kvöldvökunni slitið um kl. 24:00. Okkur var síðan keyrt heim af því að þetta kvöld var vindhraðinn meira en 12 vindstig og var því erfitt að ganga út úr Dalnum. LAUGARDAGURINN 7. JANÚAR: Þennan dag var byrjað á því að skoða Sprönguna og að sjálf- sögðu reyndu Dalbúar að spreyta sig í þeirri grein, einnig leyfðum við þeim að prófa að síga en gekk það misvel. Við lögðum síðan af stað heinr um eittleytið. En eftir það var farið í fjall- göngu. Þegar við lögðum af stað í fjallgönguna kom dálítil rigning en stuttu seiqna kom hellidemba, en við héldum áfram þrátt fyrir veðrið, enda ýmsu vanir. En við fórum upp norðanvert Dalfjallið og komum aftur niður hjá Spröng- unni, en þaðan var lagt af stað á Fiskasafnið. Þegar við vorum konrnir á Fiskasafnið byrjuðum við á því að setja úlpurnar og annan yfirfatnað niður í eitt hornið, af því að við vorum gegnblautir eftir rigninguna miklu sem skall á. Á Fiskasafninu sáum við marga fugla, steina, skordýr, fiska og ýmislegt fleira, en við vorum þarna til 16:30 en á dagskránni var þessi tími frjáls og fóru því allir annað hvort upp í skála eða heim til sín að skipta um föt eftir þessa miklu rigningu. Næst hittumst við í skáta- heimilinu en þar var kvöldvaka með Arnarungum og öllum úr sveitinni Smáfólki, en við Smyrlarnir erum í þeirri sveit. Á kvöldvökunni var gert rnikið til gamans, kvöldvakan var sett með smá kynningarleik og kveikt var á kertum, síðan var grettukeppni en Siggi úr Arnar- ungum vann hana, og einnig vann Atli úr Arnarungum keppni þar sem keppt var um að reka eldspýtustokk ákveðna SKÁTASKEYTI AFGREIDSLA VERDUR í SKÁTAHEIMILINU VID FAXASTÍG OPIÐ VERÐUR SEM HÉR SEGIR: Föstudagur 17. mars kl. 14:00-18:00 Laugardagur 18. mars kl. 19:00-18:00 Sunnudagur 19. mars kl. 10:00-16:00 Miðvikudagur 22. marskl. 10:00-18:00 Fimmtudagur 23. marskl. 10:00-16:00 Laugardagur 25. mars kl. 10:00-18:00 Sunnudagur 26. mars kl. 14:00-18:00 Mánudagur 27. mars kl. 10:00-16:00 Skátafélagiö FAXI

x

Skátablaðið Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.