Skátablaðið Faxi - 01.03.1989, Blaðsíða 9

Skátablaðið Faxi - 01.03.1989, Blaðsíða 9
AFMÆLISHÁTÍÐ Á árinu 1987 hófst undir- búningur að 50 ára afmæli Faxa, sem haldið var upp á 20. til 28. febrúar 1988. Hátíðarhöldin hófust með opnun sögusýningar í Skáta- heintilinu við Faxastíg, laugar- daginn 20. febrúar kl. 14:00. Á sýninguna, sem var öllum opin, mættu auk starfandi skáta hér í Eyjum, skátahöfðinginn Ágúst Þorsteinsson og gamlir skátar héðan úr Eyjum bæði hér búandi og brottfluttir. Af þeim síðastnefndu bar mest á Útlögum. Um kvöldið var haldinn afmælisfagnaður, þar sem forsvarsmenn bæjarins, gamlir skátar og eldri starfandi skátar mættu til sameiginlegs borðhalds. Sérstaklega ber að minnast á það, að fyrsti félags- foringi Faxa, Friðrik Jesson og frú, tóku þátt í hátíðar- höldunum. Flokksforingjar félagsins sáu um að þjóna til borðs og gerðu það með miklum ágætum. Sunnudaginn 21. febrúar söfnuðust skátar saman til messu í Landakirkju, þar sem Bæjarstjórinn flytur ávarp Viðurkenningar veittar fyrir dósasöfnun Ágúst Þorsteinsson skáta- höfðingi messaði. Mánudagurinn 22. febrúar var haldinn hátíðlegur í skáta- heimilinu við Faxastíg eins og áður er nefnt. Þar mættu flestir starfandi skátar og margir fyrri félagar og foreldrar. Hátíðin þótti takast með miklum ágætum. Næstu daga voru dag- skráratriði fyrir hina ýmsu aldurshópa, jafnframt var sýningin opin út vikuna. Afmælisfagnaðinum lauk sunnudaginn 28. febrúar. í tilefni afmælisins var gefið út veglegt afmælisblað, Skáta- blaðið Faxi, 56 síðna blað, þar sem saga félagsins er rakin í máli og myndum. Félaginu bárust margar ágætar gjafir: Útlagar gáfu 100.000,- kr. sem ætlaðar eru til menntunar og eflingar flokka- starfs. Fálkar og Þrestir gáfu nýja flaggstöng, sem sett verður upp við Skátaheimilið. Hjálpar- sveitin hér í Eyjum gaf 4 tjöld. Halldór Ingi og Fossbúar á Selfossi gáfu skjöld sem veita skal árlega, á afmæli félagsins, til þess skátaflokks, sem sýnt hefur besta skátastarfið. Jón Valdimarsson og frú gáfu skinn sem allir afmælisgestir rituðu nafn sitt á. Friðrik Haraldsson færði myndiraf Útlögum, Guðni Hermansen gaf forláta fallegt málverk. Heiðarbúar í Keflavík gáfu refaskinn og Kópar gáfu Fuglahandbók eftir Þorstein Einarsson. Bandalag íslenskra skáta gaf forkunnar fagran hníf í glerhúsi og Linda B. Ólafsdóttir gaf gamla ljósmynd frá skáta- starfi hér í Eyjum. Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum lýsti því yfir að Vestmannaeyjabær hefði ákveðið að ætla skátunum land- skika suður á Eyju til útivistar. Við færum gefendum okkar bestu þakkir. Undirbúningur þessa afmælis hvíldi á herðurn afmælisnefndar og blaðnefndar. Ég vil nota þetta tækifæri og færa nefndar- fólkinu okkar bestu þakkir. Öllum öðrum sem unnu að framkvæmd hátíðarinnar, vil ég færa mínar bestu þakkir. 9 x >-n O — 0 > r- ro > —i >:* cn

x

Skátablaðið Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.