Skátablaðið Faxi - 01.12.1993, Page 5
SKÁTABLAÐIÐ FAXI
5
Ferð YNGRISKÁTA UPP Á MEGINLANDIÐ.
Misstu af Herjólfi
Við mættum niður á bryggju um klukkan
15:00 á föstudeginum 12.júní 1993. Haldió
var til Þorlákshafnar, Þar beið okkar rúta sem
flutti okkur á Lækjarbotna. Þegar við komum
þangað var skálinn læstur og þá þurftum við
síma. Leitað var hjálpar í sumarbústöðum í
kring og eftir nokkra stund fannst sími og við
fengum lykil eftir mikla leit. En okkur
blöskraði þegar við komum inn því skálinn
var mjög illa farinn, t.d.vantaði klósett.
Við byrjuðum á því að koma okkur fyrir og
fá okkur í svanginn. Síóan var litió á svæðió í
kring, þar á eftir var haldin kvöldvaka, Val-
geróur og Bergey sungu krakkana í svefn meó
hjálp eins fararstjórans og gekk það mjög
erfiðlega.
Krakkamir vöknuðu snemma daginn eftir.
Þennan dag var byrjað á morgunmat sem gekk
alveg ágætlega. Seinna var farið aó skoöa
lækinn og endaði það með vatnsstríði.
Akváðum við þennan dag aó fara til Hvera-
gerðis að skoða tívolíió. Allir skemmtu sér
þar mjög vel. Eftir tívolíferðina var keyrt
uppeftir. Þar var byrjað á því að kveikja í kol-
unum. Meðan kolin voru að hitna varð smá
rifrildi milli flokksforingjanna, en það redd-
aðist. Eftir að foringjamir vom orðnir sáttir
var öllum gefið að borða. Þegar allir vom
búnir að fá fylli sína fóm skátamir í leiki. Að
leikjunum loknum var haldinn smá varðeldur
og var mikið sungið. Fólkið í sumarbús-
tiiðunum í kring kom forvitió að athuga hvaó
væri eiginlega að gerast. Síðan skriðu skát-
amir í svefnpokana sína, sumir þreyttir en
aðrir vom ekki til á að fara að sofa. Allt í
einu rann svo bíll í hlaðió og Gunna Eyjólfs-
son steig út úr bílnum. Leit hann inn til okkar,
en hann hafði frétt hvað við vomm óánægð
með skálann.
A sunnudeginum vöknuðum við snemma
til aó taka til, en gekk það hálfbrösulega. Það
lagaðist þó þegar Kjartan og Jóhann fóm út
með feróaklósettið og hreinsuóu það mjög
vel.
Eftir allan þrifnaðinn var beóió eftir rútunni
en hún kom bara ekki, þannig að við misstum
af Herjólfi. Eftir langa bið hringdum við í
rútukallinn. Hafði hann gleymt okkur, en
sagðist hann ætla að koma um leið og hann
gæti. Urðum við þá að taka seinni ferð
Herjólfs. Fómm vió á Sprengisand og fengum
okkur í svanginn áður en haldið var heim á
leið. Vom allir ánægóir aó koma heim á
endanum og vom allir með bros á vör.
Vió vonumst til að sjá sem flesta í næstu
ferð.
Gleðileg jól.
Bergey Edda og Valgerður.
Erna gjaldkeri
við störf
Hún er áhyggjufull
á svip - en vonandi
skilar jólapósturinn
vinsœli smá aur
í kassann.
Oskum
Vestmannaeyingum
gleðilegra jóla og
farsældar á nýju ári.
Þökkum samskiptin á
árinu sem er að líða.
Snyrtistofa
Agústu
Guðnadóttur