Skátablaðið Faxi - 01.12.1995, Síða 5
SKATABLAÐIÐ FAXI
5
Safnhaugar
Núna hefur mikið verið í
umræðunni umhverfisvernd.
Skátar læra að meta umhverfið og
að bera virðingu fyrir náttúrunni.
Þeir læra einnig að nota sér
náttúruna hérna er ein leið til þess.
Margir hafa vanist því að raka
saman grasinu af blettinum, setja það
í poka eða kassa og láta flytja það um
langan veg til urðunar eða brennslu
með tilheyrandi mengun og kostnaði.
A síðari árum hafa þó sífellt fleiri
áttað sig á því hversu gott hráefni felst
í úrgangi af þessu tagi og hafið gerð
eigin gróðurmoldar úr garðaúrgangi
og lífrænum úrgangi úr eldhúsinu.
Moldargerð af þessu tagi á sér
ævaforna sögu.
Tvennt vinnst með því að
koma sér upp safnhaugi fyrir úrgang
úr garðinum og jurtaleifar úr
eldhúsinu:
Garðeigandinn getur orðið
sjálfum sér nægur um mold og dregið
um leið verulega úr magni þess sorps
sem hirða þarf hjá honum og flytja
langar leiðir til urðunar eða brennslu.
Síðari ávinningurinn er auðvitað næg
ástæða til þess að hefja gerð
safnhaugs.
Nægilegt getur verið að grafa
holu á afviknum stað í garðinum og
fylla hana með lífrænum úrgangi,
tyrfa svo yfir og grafa nýja holu.
Moldina sem grafin er upp má að
sjálfsögðu nýta.
Einnig má smíða kassa. Þá eru
reknir niður fjórir staurar og þeir
klæddir með borðum með hæfilegu
millibili svo loft komist að. Ein hlið
kassans verður að vera laus svo
komast megi að haugnum. í botn
kassans má leggja sprek og/eða grjót
svo vatn geti runnið niður og loft leiki
einnig um hauginn að neðan. Búast
má við að tvö til þrjú ár líði þangað til
úrgangurinn í kassanum verður að
gróðurmold. Ráðlegt er að smíða þá
annan kassa og taka til við að láta
úrgang í hann, eða smíða kassann
upphaflega þannig að í honum séu tvö
hólf. Þá má byrja að nýta moldina úr
fyrri kassanum á meðan nýtt hráefni
rotnar í þeim síðari.
í safnhauginn má setja allan
venjulegan garðaúrgang; gras,
afskurð, kantskurð og fleira. Einnig
er kjörið að nota eftirfarandi úrgang úr
heimilishaldinu:
Leifar af grænmeti og
ávöxtum.
Hvers kyns hýði og skurn, til
dæmis af ávöxtum og grænmeti,
hnetum og eggjum.
Afskorin blóm og leifar af
blómum og öðrum jurtum.
Pottamold.
Kaffikorg og síur.
Telauf og síur.
Brauðafgangar.
Eldhúspappír ef hann er
notaður á heimilinu. Jafnvel má setja
dagblaðapappír í litlu magni í
hauginn.
Heppilegt er að koma fyrir
annarri ruslafötu í skápnum undir
vaskinum. I hitanum í skápnum hefst
rotnun leifanna án þess að af þeim
leggi ódaun. Gætið þess bara að setja
ekki fisk og kjöt í safnhauginn. Slíkar
leifar lykta illa og geta dregið að sér
meindýr.
Sumir telja óþarft að hafa
sérstaka ruslafötu fyrir
safnhaugsúrgang og setja hann í tómar
mjólkurfernur eða önnur ílát sem til
falla.
Bæta má moldina með ýmsu
móti. Gott er að setja örlítið að
þangmjöli eða húsdýraáburði í
hauginn. Skeljasandur gerir moldinni
einnig gott. Anamaðkar eru góðir
gestir í safnhaugi. Moldin sem
framleidd er með þessum hætti hentar
vel í gróðurbeð og til uppfyllingar.
Sumir sigta hana jafnvel niður í
pottamold. Rannsóknir sýna að mold
af þessu tagi getur verið prýdd öllum
kostum góðrar moldar.
Með því að framleiða eigin
mold hefur framleiðandinn dregið
verulega úr magni þess sorps sem flutt
er til urðunar á kostnað samfélagsins.
Tekið úr Grœnu bókinni
Aætlun HERJOLFS
um jól og áramót
Aðfangadagur 08:15 11:00
Jóladagur Engin ferð
2. jóladagur 13:00 16:00
Gamlársdagur 08:15 11:00
Nýársdagur Engin ferð
Sendum starfsmönnum okkar og viðskipta-
vinum öllum bestu óskir um blessunarrík jól.