Skátablaðið Faxi - 01.12.1995, Blaðsíða 7
SKATABLAÐIÐ FAXI
7
einhverjar uppákomur, svo sem
flugeldasýning, diskó, skemmtiatriði,
kvöldvökur, tónleikar, ýmsar keppnir
svo auðvitað setning mótssins og
slitin, sem voru alveg rosalega flott.
íslendingar sýndu eitt mjög svo
frumlegt leikrit og tók Freydís þátt í
því. Það mátti líkja mótssvæðinu við
mjög líflegan bæ þarna sem var að
finna skáta frá öllum heimsálfum. Á
einu svæði var torg sem var kallað
Plaza. Á því torgi var banki,
minjagripaverslanir
Brugðið á leik í tjaldbúðunum.
matvöruverslun og Tívolí með
ýmisum skondnum tækjum
í tjaldbúðunum.
Sveitinni var skipt niður á tjöld og
voru 3-4 saman í tjaldi. Þannig
kynntist maður fólkinu enn betur Með
undantekningu þó, því t.d. föttuðum
við ekki að einn tjaldfélagi okkar væri
kominn 5 mánuði á Ieið. Inn á
tjaldsvæðin komu oft erlendir gestir
að fá einhvem til að skipta við sig á
merkjum eða öðrum íslenskum
hlutum. Er leið á mótið runnu allir
skiptihlutir út en einhverjir ákváðu þá
að skipta einu stykki
Vestmannaeyingi. Þeir löbbuðu milli
tjaldbúða með hana í neti í von um
góð skipti. Því miður gekk það ekki
því, ónefnd vildi ekki vaska upp eða
gera aðra hluti sem karlmenn vildui.
Mörg önnur svipuð uppátæki áttu sér
stað t.d. kom ekki sá dagur að ekki
væri vatnsslagur í tjaldbúðinni.
Belgía
Er mótinu lauk tóku við heitar
rútuferðir til Belgíu í
heimagistinguna. Það gistu 2-3
Islendingar á hverju heimili í 3 nætur.
Það var mjög heitt í Hollandi en í
Belgíu var ennþá heitara. I Hollandi
sluppum við flest öll við flugnabit en
í Belgíu vorum við öll útbitin.
Heimagistingin var ekki eina fjörið í
Belgíu heldur gistum við í aðrar 3
nætur í skála hjá skátum í einhverjum
sveitabæ ef svo má kalla hann. Eitt af
því merkilegasa við dvölina var að við
hjóluðum á alla staði sem við
skoðuðum. Það voru engar smá
vegalengdir.
Loksins heim í kuldann.
Þann 17. ágúst var haldið heim á leið.
Við fórum með rútu til Lúx. beint á
flugvöllinn.. Við ætluðum bara að
taka því rólega en allt kom fyrir ekki.
Einn fararstjóranna kallaði á okkur og
sagði að við værum að missa af
vélinni.. Heimferðin gekk annars vel
og vorum við komin til Islands þremur
tímum síðar.
Heiðn'm Björk Sigmarsdóttir
Freydís Vigfúsdóttir
Bæjarveitur
Vestmannaeyja óska
bæjarbúum öllum
Gleðilegra jóla
og farsæls
komandi árs
með þökkum fyrir
viðskiptin á árinu
sem er að líða
BÆJARVEITUR
VESTMANNAEYJA
.framköllunarþjónusta,
ffjhdihjjól ðj farsavlt kötnmdi ár
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða
Tvisturinn