Skátablaðið Faxi - 01.12.1995, Side 11
SKÁTABLAÐIÐ FAXI
11
hafa í sjálfboðavinnu. Stjórn
félagsins vill þakka öllum sem lagt
hafa okkur lið, því án þerra hefðum
við aldrei náð þessum áfanga. Þá
vill hún færa bæjaryfirvöldum og
starfsmönnum Ahaldahússins
þakkir fyrir drjúga aðstoð við alla
Reisugildi haldið 24. septemher.
jarðvinnuna og alla ræk-
tun. Þeim Einari og Guðjóni, sem
tóku þátt í efnisflutningum í veg og
bílastæði ásamt Þórði á Skansinum
eru færðar þakkir. Allt efni í húsið
var boðið út og hagstæðasta
tilboðið var frá Húsey h/f, sem
hefur þjónað okkur vel.
Steypustöðin hefur séð okkur fyrir
steypu og tengjum. Veiturnar hafa
lagt okkur lið með efni, en við
höfum sjálf séð um að grafa skurði
með aðstoð Áhaldahússins. Reynt
hefur verið að skrá alla vinnudaga
inn í dagbók, gera grein fyrir
viðfangsefnum og þar eru nöfn
flestra sem unnið hafa við
framkvæmdirnar. I hana hafa 70
einstaklingar ritað nöfn sín og
margir þeirra mörgum sinnum.
Félagið vill þakka öllum fyrir veitta
aðstoð og vonast til að áframhald
verði á. Haldið verður áfram, húsið
klætt og gluggar glerjaðir. Til þess
þurfum við áfram að leita á náðir
félaga, foreldra og annarra
velunnara. Menn mæta bara til
vinnu eftir aðstæðum og Marinó sér
um að ekki skorti verkefni. Allir
eru velkomnir til starfa. I
vinnuskúrnum á svæðinu er ágætis
aðstaða og heitt skátakakó. Eins og
áður hefur komið fram er það
markmið skátahreyfingarinnar að
þroska böm og ungt fólk til að vera
sjálfstæðir, virkir og ábyrgir
einstaklingar í samfélaginu. Þessum
markmiðum hyggst hún m.a. ná
með:
•Útilífi til að efla líkamsþrek og
vekja áhuga á náttúrunni og löngun
til að vemda hana
•Viðfangsefni af ýmsu tagi til að
kenna skátunum ýmis nytsöm störf,
sjálfum þeim og öðrum til heilla Til
þess að geta haldið úti öflugu
útivistar- og þjálfunarstarfi þurfa
skátar að hafa aðgang að landi og
skálum, þar sem þeir geta dvalið
óáreittir við störf sín. Flest öll
skátafélög landsins eiga slíka
aðstöðu og sum þeirra mjög
Yfirsmiðurinn og hans kátu sveinar.
myndarlega aðstöðu.
Með auknum áhuga almennings á
útilífi og náttúruskoðun hefur þörf
fyrir skipulagða fræðslu og
tómstundaiðkun á þessu sviði
aukist. Aðstaðan í skátastykkinu
verður kjörin til þess að mæta
þessum þörfum. helstu markmið
með náttúru- og útilífsmiðstöð í
Skátastykkinu em:
•Að fræða skáta, skólanema og
almenning um náttúrufar og
útilíf.
•Að kynna útilíf og skátastarf
fyrir almenningi.
•Að efla skógrækt og aðra
ræktun í Vestmannaeyjum.
•Að auka útivistarsvæði fyrir
fjölskyldur.
Fyrir gos hafði Skátafélagið eigið
svæði vestur í hrauni þar sem
útivistarstarf félagsins fór fram.
Svæði þetta var fyrst kaffært í vikri
og síðar voru byggð hús á svæðinu.
Tekist hefur að framkvæma það
sem til stóð á þessu ári, áætlunin
hefur staðist. I vor verður jarðvegur
undirbúinn fyrir plöntur, aðallega
þar sem skjólbelti verða ræktuð og
haldið áfram að snyrta svæðið. Sáð
verður í vegkanta og nokkur minni
moldarflög. Plantað verður nokkuð
mörgum mismunandi trjátegundum
sem talið er að geti þrifist í Eyjum.
Gert er ráð fyrir að planta um 2.000
plöntum árlega næst 5 árin í
samráði við sérfræðinga á sviði
trjáræktar. Jafnóðum og
gróðursetning fer fram verða
plönturnar merktar, til hægðarauka
í framtíðinni. I haust var húsið gert
fokhelt og því komið undir “græna
torfu”, búið að tyrfa þakið. Næstu
skrefin eru að klæða það að utan og
hlaða upp að því og einangra það að
innan og klæða, koma fyrir vatns og
hitalögnum, raflögnum og
innréttingum, þannig að það verði
fullbúið til notkunnar næsta sumar
eða næsta haust.
Páll Zophóníasson, félagsforingi.