Skátablaðið Faxi - 01.12.1996, Page 6

Skátablaðið Faxi - 01.12.1996, Page 6
SKÁTABLAÐIÐ FAXI 6 Vestmenn á Landsmóti ‘96 Mótseinkenninu velt fyrir sér Strax og komnar voru fyrstu upplýs- ingar um væntanlegt landsmót komu sveitaforingjar í Faxa ásamt félags- foringja saman til að ræða um mótið. Fljótlega byrjuðu síðan sveitaforingjar ásamt flokksforingjum að kynna vænt- anlegt mót. Kom strax fram mikill áhugi hjá skátum að fara. Guðfinnur Pálsson og Guðmundur Pálsson komu í heim- sókn til okkar og voru með fund þar sem þeir kynntu mótið fyrir skátum í Faxa. Verkefni fyrir landsmótið bárust stöðugt til okkar og voru þau hin skemmtilegustu til úrlausnar. Var þema landsmótsins tengt víkingum og til að leysa verkefni þurfti að lesa sig til um þetta tímabil ásamt því að kynna sér goðafræði. Á fundum í Faxa hafði komið fram hugmynd frá Rósu Sigurjónsdóttur að landsmótsfarar fengju sér varðelda- skikkjur fyrir ferðina. Flutningaþjónusta Magnúsar sýndi mikinn rausnarskap því hún bauð okkur að flytja endurgjaldslaust allan útbúnað á mótsstað og lét okkur hafa til þess fjörutíu feta gám. Herjólfur h/f sá um að koma skátum til og frá Þorlákshöfn ásamt því að skátar fengu hressingu í heimferðinni á góðum kjörum. Sérleyfisbílar Selfoss sáu um að keyra hópinn til og frá Þorlákshöfn. Á síðustu stundu kom frá mótsstjórn nýtt verkefni. Okkur var falið að kynna heimabyggð okkar á mótinu. Var nú farið í að afla gagna til að kynna Eyjarnar og voru allir boðnir og búnir til að lána okkur allt sem varðaði þetta mál. Þeir sem komu að málinu voru: Herjólfur h/f, Ferða- þjónusta Páls Helgasonar, Kerta- verksmiðjan Heimaey og Upplýsinga- miðstöðin. Laugardagsmorguninn 20. júlí var loksins runnin upp hin stóra stund. Hópurinn safnaðist saman við af- greiðslu Herjólfs og ferðin hefst. Á meðan á sjóferðinni stóð yfir voru skát- arnir til fyrirmyndar hvað varðaði alla umgengni og það sama má segja um rútuferðina á mótsstað. Á mótsstað tóku á móti okkur skátarnir úr Fálkum, en þeir höfðu farið frá Eyjum degi á undan aðalhópnum þar sem þeir ætluðu að hjóla á mótsstað, og voru þeir búnir að afferma gáminn á staðnum ásamt fararstjóra og félagsforingja. Nú þurfti því að bera allan okkar búnað strax á þann stað sem tjaldbúð okkar skyldi standa. Gekk þetta allt mjög fljótt fyrir sig því hópurinn var stór og allir tilbúnir að leggja sitt að mörkum. Var nú hafist handa við að reisa tjald- búðirnar og gekk það nokkuð fljótt fyrir sig. Að kvöldi þessa dags voru búðir okkar að mestu tilbúnar. Sunnudagurinn 21. júlí fór allur í að fínpússa uppsetningu tjaldbúðanna og þurfti að færa til nokkur tjöld svo að svæðið nýttist sem best. Lokið var við að koma upp hliði og hin þekkta flagg- stöng var komin á sinn stað. Eldhústjald var einnig komið í fullan gang undir stjórn Mömmu Rósu þar sem hún var búin að skipta eldhúsverkum niður á flokkana. Einnig var aðstoðað við að setja upp það sem átti að vera á torgi svæðisins ásamt því að setja upp fána- stengur við inngang að svæðinu. Þá um kvöldið var farið fylktu lið á mótssetn- inguna og fór allt torgið saman í skrúðgöngu þar sem hver sveit fór fyrir sínum félagsfána. Kom vel í ljós þar hvað hugmynd Mömmu Rósu varðandi varðeldaskikkjur var frábær. Rann nú upp mánudagurinn 22. júlí með hefðbundnu sniði skáta, ræs, tiltekt, morgunmatur, tjaldbúðaskoðun og fánaathöfn. Að þessu loknu fóru flokkarnir af stað í verkefni þau sem þeir höfðu valið sér. Nú var komin þriðjudagur og hófst hann með hefðbundnum störfum. Að lokinni fánaathöfn var viðurkenning veitt fyrir tjaldbúðaskoðun. Um kvöldið héldu Vestmenn og Fossbúar saman kvöldvöku niður við vatn og tókst hún þokkalega. Um kvöldið byrjaði að rigna og bætti stöðugt í. Upp úr miðnætti fór að hvessa og var komið slagveður um eitt leytið. Var gengið í það af mönnum okkar að tryggja allt sem þurfti á svæðinu okkar og í nágrenninu, þurfti að fella bygg- ingu hjá einni sveit. Ekki fór mikið fyrir skipulagðri dagskrá vegna veðurs og var því gripið til votviðrardagskrár sem hafði verið undirbúin heima. Hélst rigningin allan daginn en vind hafði lægt um morguninn. Það þurfti að bjarga því sem bjargað varð við eldhústjaldið; þar fór allt í svað. Brugðum við á það ráð að grafa frárennslisskurði inni í tjaldinu og umhverfis það og önnur eldhústjöld til að veita vatninu í burt ásamt því að bera kurl í svaðið. Vegna hinnar miklu rigningar og þeirrar vosbúðar sem henni fylgdi var tekin sú ákvörðun að fjárfesta í öðrum gashitara til að kynda upp í eld- hústjaldinu. Um eftirmiðdaginn kom Frú Vigdís Finnbogadóttir forseti í heimsókn á mótssvæðið og skoðaði allar tjaldbúðir á svæðinu. Voru nokkrir af þingmönnum kjördæmisins í fylgdar- liði hennar ásamt nokkrum framámönn- um úr Reykjavík.

x

Skátablaðið Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.