Skátablaðið Faxi - 01.12.1996, Side 14

Skátablaðið Faxi - 01.12.1996, Side 14
SKÁTABLAÐIÐ FAXI Kimsleikir Rudyard Kipling segir í bók sinni frá Kim, eða Kimball O'Hara, eins og hann hét fullu nafni, dreng er bjó á Indlandi. Hann var sonur írsks liðsforingja, en foreldrar hans voru látnir og móðursyst- ur drengsins var falin umsjá hans. Leiksystkini Kims voru böm þarlendra manna og því lærði hann að tala má þeirra og kynntist venjum þeirra. Kim var duglegur strákur og dag einn komst hann í kynni við mann einn, er Lurgan hét, er verslaði með gamla skart- gripi og aðra sjaldséða muni. Lurgan þessi, sem var þaulkunnugur þarlendum mönnum, var líka í njósnadeild stjórnar- innar. Þegar hann komst að raun um að - Kim var gagnkunnur venjum og háttum Indverja, sá hann að hann gat orðið leyniþjónustunni til mikils gagns. Því fór hann að þjálfa athyglis- og minnis- gáfu piltsins, sem var fljótur að læra og notaði augun vel. Aðferðin var leikur sá, sem við í dag nefnum „Kimsleik”. Lurgan hafði indverskan þjón, er Ali hét. Lurgan lét Ali keppa við Kim. Hann sýndi þeim fullt trog af dýrmætum steinum ýmissa tegunda; leyfði þeim að Gamli góði Kimsleikurinn Flokksleikur, inni. Efni/áhöld: Nokkrir ólíkir hlutir, dúkur, blað og skriffæri. Nokkrir hlutir eru settir á borð og dúkur breiddur yfir. Skátamir fá síðan að skoða hlutina í 30 sekúndur. Síðan er breitt yfir hlutina á ný. Skátarnir fá nú 3- 5 mínútur til þess að skrifa niður hvaða hluti þeir sáu. Leikinn má einnig setja upp sem keppni milli flokka. horfa á þá og handleika í eina mínútu, breiddi svo dúk yfir og lét drengina segja frá þeim. I fyrstu gat Kim aðeins munað fáar tegundir og gat hann ekki lýst þeim vel, en þegar hann heyrði Ali segja frá varð hann steinhissa. Ali lýsti steinunum nákvæmlega og gat meira að segja sagt til um þyngd þeirra og hvort þeir væru rispaðir. Kim sagði að Ali hefði lært þetta fyrirfram, en þegar þeir Hvern Sveitarleikur, inni. Efni/áhöld: Teppi eða lak(þó ekki nauðsynlegt) og klútar fyrir augun. Skátarnir standa í hring með bundið fyrir augun. Foringinn tekur einn skát- anna úr hópnum og setur hann inn í miðjan hringinn og hylur hann með teppi eða fer með hann út úr herberginu. Að svo búnu færir foringinn skátana í hringnum til að rugla þá í ríminu og gefur svo hinum merki um að þeir megi taka klútana frá augunum. Hver sá sem verður fyrstur til að uppgötva hvern reyndu aftur, þá með aðra hluti, endurtók sagan sig. Ali gat meira að segja unnið Kim með bundið fyrir augun, einungis með því að þreifa á hlu- tunum. “Hvemig er þetta hægt?” spurði Kim. “ Með því að æfa sig aftur og aftur”, svaraði Lurgan. Eftir aðeins hálfs mánaðar æfingu hafði Kim komist fram úr Ali. Seinna varð hann mikill afreksmaður innan leyniþjónustunnar. Eitt sinn sagði Baden Powell eitthvað á þá leið að skáti teldi sér það jafnan mikla smán ef viðkomandi maður væri á undan honum að taka eftir einhverju. Þessi orð skulum við hafa í huga þegar við þjálfum okkur í Kimsleikjum. vantar? vantar verður að láta það vera að hrópa; allir verða að fá tækifæri til að finna út úr þessu. Hins vegar eiga þeir sem sjá hvern vantar að rétta upp hönd. Þegar leikurinn hefur verið leikinn oft getur verið skemmtilegt að rabba saman um það hvernig skátarnir fundu út hvern vantaði, því útkomumar geta verið ákaflega mismunandi og skemmtilegar. Einnig getur foringinn sett einn undir teppið og annan fram á gang- eða tvo fram á gang- og athugað hvort tekið verði eftir því. Úr bókinni ÍBÍ & KIM

x

Skátablaðið Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.