Skátablaðið Faxi - 01.04.1999, Page 2

Skátablaðið Faxi - 01.04.1999, Page 2
Skátastarf Það er hægt að fullyrða að skátastarf er eitt heilbrigð asta æskulýðsstarf sem völ er á. Þetta er stór fullyrðing en við skát- arnir stöndum alveg undir því, enda eru menn ávallt vakandi yfir því sem betur má fara. Nú á dögum eru tískuorðið jafningja- fræðsla, jafnrétti allra, samvinna þjóða og fjöl skylduvænt samfélag. Allt þetta hefur mátt finna í skátastarfi alla tíð og í raun miklu miklu meira. Langflestir foreldrar setja sér það tak- mark, að börn þeirra búi við sem bestar aðstæður. Og í okkar þjóðfélagi í dag leggja foreldrar á sig mikla vinnu til þess að börn þeirra hafi það miklu betra en þau höfðu; meiri menntun, meiri fjár- ráð. Er þá ekki allt eins og það á að vera? Erum við þá ekki búin að gera nóg? Hvers meira er hægt að krefjast? Ju, að við gefum þeim meira af okkar dýrmæta tíma, tökum meiri þátt í þeirra tómstundastarfi, okkur og þeim til lærdóms og ánægju. Njótum við fylli- lega þeirra góðu lífskjara, sem við höfum skapað okkur, ef við finnum, að bilið milli okkar og unglinganna breikkar stöðugt? Flestir unglingar hafa mikla orku og athafnarþrá, og eiga flest mikla umframorku, er vinnu eða skóladegi er lokið. Þessi orka er undatekningarlaust nýtt. Það er því mikið atriði, að hún sé nýtt á jákvæðan hátt, bæði fyrir einstak- linginn og þjóðfélagið. Skátaforeldrar og aðrir unnendur æskunnar, hér kemur ykkar gullna tæk- ifæri. Skátahreyf-ingin býður öllum skátaforeldrum að gerast virkir þátttak- endur í eflingu skátastarfsins. Sagði ein- hver: „Þetta er ekki fyrir mig, ekki kann ég neitt í skátastarfi?" „Jú, einmitt þú“ Skátahugsjónin er svo fjölbreytt og fjölþætt og hún hefur innan sinna vé- banda svo margar mismunandi starfs- einingar, að það er auðvelt að finna starf fyrir hvern og einn, sem er viljugur til að leggja það fram. Starfstilhögunin getur verið mjög mismunandi, bæði er hægt að taka að sér störf, sem aðeins standa stuttan tíma, og einnig önnur, sem dreifast yfir árið. Sem dæmi má nefna: Fjáröflun, undirbú- ingur fyrir mót eða ferðir, húsnæðismál o.fl. Ótal margir slfkir hlutir koma til greina og við forel- dar getum hjálpað til með, án þess að grípa inn í hið raun- verulega skátastarf. Hér getum við orðið mikil hjálp hinum ungu foringjum og nú kem ég að kjarna málsins, sem hafa þetta allt á sínum herðum. Með því að við tökum að okkur eitthvað af þessum verkefnum, erum við fyrst og fremst að vinna fyrir okkar börn, þar sem foringjarnir hafa þá betri tíma fyrir skátastarfið. Flestir þessara ungu foringja hafa geysimikið að gera, margir eru í erfiðum skólum o.s.frv. Skátahreyfingin-foringjar -foreldrar Hversu góð sem hugsjón og markmið eru í sjálfu sér, er þeim nauðsyn á dug- miklu fólki til að bera hana fram og halda á lofti. Skátahreyfingin á stóran hóp dugmikils fólks á öllum aldri sem leggur á sig mikla vinnu, alltaf endur- gjaldslaust. En til þess að við getum gert starfið enn betra og öflugra og tekið á móti fleiri ungmennum, þá þurfum við meira af dugandi fólki og þess vegna skorum við nú á foreldra. Skátastarf er samstarfsverkefni okkar allra ! „Hina raunverulega hamingjuleið höldum við, ef við gerum aðra ham- ingjusama. Reynið að skilja svo við þennan heim, að hann sé einhverja vitund betri en hann var.“ (Baden Powell) Armann Ingi Sigurðsson félagsforingi skátafélagins Fossbúa á Selfossi Fálkasaga Helgina 12.-14. mars fór sveitin Fífill í útilegu í gamla golfskálanum inni í Herjólfsdal. Svolítið merkilegt fannst þar en það var einhverskonar fugl. Það var lítið eftir af honum nema vængirnir og stélið og beinagrindin. Við fórum með hann niður eftir til Kristjáns Egilssonar á Náttúrugripasafninu og hann sagði okkur að þessi fugl væri FALKI. Hann var frekar lítill og sagð Kristján okkur að þetta væri ungi frá því í fyrrasumar. Þessi fundur vakti athygli okkar því við vitum að þessi fugl er mjög sjaldgjæfur og okkur langaði að vita aðeins meira um hann. í fuglabók einni fundum við það að það eru einungis til u.þ.b. 500 fálkar á öllu landinu þrátt fyrir að hafa verið alfriðaður hérlendis frá árinu 1940 og hreiður friðaður frá 1966 og að stranglega bannað væri að nálgast hreiður hans. Til samanburðar má geta þess að lundastofnin hérlendis er talinn vera um 15- 20 milljón fuglar. Það var því rnjög óvejulegt að við skyld- um finna fálkann. Fálkinn á heimkynni umhverfis allt Norðurheimskautið en hér á landi er hann mest í Þingeyjasýslu og á Vestfjörðum í fjallendi eða bröttuin hömrum og klettum við sjávarstrendur. Það er því frekar óvenjulegt að fálkin skyldi hafa verið hér. Kristján sagði okkur að þessi fugl hafi sennilega komið hingað til Vestmannaeyja þegar hann hafi verð að elta aðra fugla eða verið eltur og svo verð étinn af öðrum fálkum. Við sem skáta erum náttúru- og dýravinir og viljum því benda fólki á hversu mikilvægt það er að vernda fugla sem fálkann. Með kveðju; Skátaflokkarnir Vofur og Geimverur. a SKÁTABLAÐIÐ FAXI

x

Skátablaðið Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.