Skátablaðið Faxi - 01.04.1999, Blaðsíða 5
Dagana 13.-14. mars fór skátasveitin
Fífill í sveitarútilegu. Utilegan hófst á
Laugardeginum kl. 13:00. Þegar allir
voru komnir og búnir að korna sér fyrir
settum við útileguna með því að segja
skátaheitið og hafa fánaathöfn. Eftir
setninguna var farið í ratleik sem gekk
út á það að finna miða sem voru faldir út
um allt í dalnum.A hverjum miða var
dulmál sem þurfti að leysa til að komast
á næsta stað.
Sá flokkur sem var fyrstur að komast
aftur upp í skála vann keppnina.
Flokkurinn Geimverur unnu leikinn.
Þegar allir voru komnir inn aftur var
höfð smá verðlaunaafhending og úrin
tekin af öllum krökkunum svona til
agaauka. Svo var farið í póstaleik. A
einum póstinum fengu allir að síga niður
fjósaklett. A öðrum pósti átti að draga
póstastjórana yfir tjörnina þar sem þeir
sátu á dekki. Það var langskemmtilegast
fyrir póstastjórana.
Einhverjir flokkar gáfust upp og fóru
þá bara í staðin í fótbolta á klakanum.
Eftir klakapóstinn vara farið í fatapóst. I
honum átti hver skáti að fara úr öllum
fötunum og raða þeint í eins langa línu
og þeir gátu. Nokkrir fóru úr öllu nema
nærfötunum.
A næsta pósti sem var fánapóstur var
kennt að brjóta saman fána, binda
fánahnút og flagga. Eftir fánapóstinn
var farið í súrringapóst þar sem átti að
súrra saman þrjár spýtur þannig að þær
myndi H. Svo þurfti allur flokkurinn að
komast yfir H-ið. Síðasti pósturinn var
Fánahylli
sigpóstur sem var þvílíkt
fjör. Eftir póstaleikinn
var farið inn og fengið
sér nesti. Eftir nesti fór
Einar Örn með okkur í
torfærur á björgunarbíl-
num. Það þótti öllum
mjög skemmtilegt. Þegar
allir voru komnir aftur út í
skála var eldaður kvöldmatur
eins og skátum einum er lagið.
Við tókum venjulegar búðapiz-
zur, tókum utan af þeim plastið og
klæddum þær í álpappír. Svo kveiktum
við eld og hentum pizzunum út á.
Pizzurnar heppnuðust misvel. Svo var
haldin brunaæfing þar sem allir fengu að
sprauta úr slökkvitæki. Eftir æfinguna
var farið niður að tjörn og spilaður fót-
bolti á tjörninni. Þegar allir voru komnir
inn var haldin
kvöldvaka þar
sem nokkrir
flokkar komu
með skemmtia-
triði. Eftir
kvöldvökuna
var farið í
ljósaleik þar
sem átti að elta
uppi nokkra
álfa með
vasaljós. Sá
hópur sem náði
flestum ljósum vann. Þegar allir voru
komnir inn var sögð draugasaga og svo
fóru allir að sofa. Morguninn eftir
vöknuðu yngri skátarnir eldsnemma og
vöktu foringjana, þeim til ómældrar
ánægju og yndisauka. Þegar allir voru
svona nokkurn vegin vaknaðir fylltist
skálinn af reyk, reykskynjarinn af stað
og allt varð brjálað. Allir flýðu út um
gluggann eins og æft hafði verið og
tókst þakst þannig að bjarga sér frá
mikilli hættu. Þegar allir voru
komnir út fengu skátamir að vita
að þarna hefðu foringjarnir bara
verið að athuga hversu fljótt
menn næðu að koma sér út ef
skyldi kvikna í. Svo fengu allir
sér að éta.
Þegar allir voru orðnir
þokkalega saddir fóru allir út á
tjörn í fótboIta.Eftir fótboltann var
svo farið að taka til f skálanum. Það
gekk mjög vel. Þegar búið var að taka
til var farið í vatnsstríð og allir fengu að
blotna mikið. Þegar vatnsstríðinu
loksins lauk var slitið útilegunni og voru
Ahh, geimverur
allir farnir heim kl. 14:00.
Fyrir hönd FÍFILS:
Anna Jóna Kristjánsdóttir.
85 ára gömul ekkja fór á blint
stefnumót með níræðum manni. Þegar
hún kom til dóttur sinnar seinna um
kvöldið virtist
hún í uppnámi. - Hvað gerðist? spurði
dóttirin. - Ég þurfti að slá hann tvisvar
utan undir. -Var hann svona ágengur?
- Nei, ég hélt hann væri dauður.
Maður gekk inn á bílapartasölu og fór
til afgreiðlumannsins og sagði: - Ég
ætla að fá benísnlok fyrir Lönduna
mína. - Alveg sjálfsagt. Það eru ágætis
skipti.
-Pabbi í dag skrifuðum við ritgerð um
hvað feður okkar störfuðu.
- Nú, hvernig gekk? - Já, kennarinn
stendur hérna fyrir utan með tveimur
lögreglþjónum.
Svo var það kona Hafnfirðingsins sem
eignaðist tvíbura. Hún fór út með hlað-
na byssu í leit að hinum föðurnum.
0
SKÁTABLAÐIÐ FAXI