Skátablaðið Faxi - 01.04.1999, Síða 8
• Lengi býr að fyrstu gerð •
Foringjaþjálfun
/ vetur höfum við í skátafélaginu Faxa sett okkur það markmið að efla foingjaliðið félagsis og starf þeirra. I því fellst
ekki eingöngu að gera foringjana hœfari heldur eiitnig að halda uppi fjörugu starfi fyrir foringjana sem slíka og efla þan-
nig samstöðu og hópandann meðalþeirra. Tvímœlalaust hefur þetta vorið árangur og mun vonandi gera áfram. Hér á eftir
eru greinar eftir foringja sem tekið liafa þátt íþessariþjálfun og segja frá ýmsu sem hefur “droppað inn” íþjálfunina.
Utilífsnámskeið
Um helgina 29.-31. jan. ákváðu 4
eyjaskátar að drífa sig á eitthvað
námskeið og varð útilífsnámskeiðið
fyrir valinu. Við fórum með litlum fyrir-
vara með Herjólfi á fastalandið en allir
áttu að vera mætti niðrá BIS
(Bandalagíslenskra Skáta) klukkarn hálf
sjö. Við höfðum því nokkurn tíma í
borginni og fórum m.a. í keilu og
búðaráp á laugarveginum.
Námskeiðið var haldið að Lækjabotn-
um sem er stutt keyrsla frá R.v.k.
Námskeiðið var nokkuð fámennt eða
um 12 skátar, fyrir utan mýsnar.
Stjórarnir hétu Daði og G(j)æsi, skátar
frá Reykjavík og Njarðvík. Námskeiðið
var mjög frjálslegt þ.e. ekki of mikið af
reglugerðum. Af nafninu að dæma var
verið að kenna okkur grundvallaratriði
útilífs að sumri og vetri. Farið var í
útbúnað, ofkælingu, snjóflóðahættu,
göngutækni og fleira. Einnig var allur
matur sem var á dagskránni fjallafæða
sem er bæði góður mönnum sem
MÚSUMl, og þurl'ti því að sendast eftir
mat fyrir laugardagskvöldið.
Við komum á áfangastað um átta
leitið og komum okkur vel fyrir og héld-
um síðan „kvöldvöku” sem endaði í
nokkurs kona brandaramaraþoni. Flestir
sofnuðu um og eftir miðnætti eftir
góðan kakósopa. Við vorum ræst
nokkuð seint á laugardagsmorgninum
en strax eftir morgunmat var haldin
fyrirlestur um útivist að vetrarlagi. Eftir
hann var farið út að leika til að hrista
aðeins upp í liðinu. Við fórum m.a. að
síga en svo fundum við snjóhús sem við
grófum upp. Okkur langaði að sofa í því
um nóttina en svo leiðinlega vildi til að
það byrjaði að rigna þegar á kvöldið leið
svo við sváfum bara frekar inni. Um
kvöldið héldu eyjamennirnir kvöldvöku
og sungum við mikið og sýndum
skemmtiatriði. Meðal skemmtiatriða var
Sveitaforingja-
námskeið 2
Nokkrir skátar úr Eyjum fóru á
Sveitarforingjanámskeið 2 á Ulfljótsvat-
ni helgina 36. -28. febrúar sl. Við fórum
nteð Hefjólfi um morguninn og tókum
rútuna í bæinn. Þegar að við komum
þangað var hópnum skipt í tvennt, þeir
sem vildu fara í keilu og þeir sem vildu
spásera í Kringlunni. Við hittumst svo
aftur kl. 18 í Skátahúsinu á
Snorrabrautinni. Þaðan var tekin rúta
sem fór með okkur upp á Ulfljótsvatn.
Þegar að við komum þangað var
klukkan orðin 23. Við gistum í skála að
nafni D.S.U. Stjórnandi námskeiðsins
var Palli og aðstoðarmenn hans voru
Runi og Laddi (skrýtni). Námskeiðið
var mjög skemmtilegt og fræðandi,
mikið af útiveru á laugardeginum. Það
var t.d. farið í 2 ratleiki og við áttum að
sjá muninn á þeim (annar var
undirbúinn en hinn ekki). Svo var talað
um þessa ratleiki í 2 tíma eftir á.
Suinum leiddist það og fóru í millu á
meðan. Annars var þetta ágætt.
Þeir sem fóru á þetta námskeið voru
Herdís frábæra, Rósa pæja (Rósí) og
Matti.
Takk fyrir
Herdís og Rósa
Landsmóts vítamínið
Landsmóts vítamínið var haldið hel-
gina 5.-7. mars. Allir skátar sem er að
fara á Landsmótið komu niður í
KFUM&K og horfðum á spólur
frá síðustu Landsmótum,
svona til að fá fflinginn, svo
sungum við landsmótslag
ið saman og átum pizzur.
Eftir það áttu allir litlu
krakkarnir að fara heim
en allir sem eru eldri
en 14 á árinu fengum
að sofa í Gamla golf-
skálanum og gera eitt-
hvað saman á laugar-
deginum. Þar voru
mættir „cooluðustu“
skátarnir á eyjuni fyrir
utan Herdísi, Siggu,
Steinunni, Önnu Jónu,
Sindra A, Palla, Haffa,
Sigurjón og Dodda þannig að
það var bara einn „cool“ skáti
og það var Andri besti. Við gerðum
helling skátalegt þar td. fórum við í
greddu keppni, hringdum til skátana frá
Selfossi sem voru á Akureyri í skíða-
ferðalagi klukkan 4 um nóttina til að
athuga hvort þeir væru ekki sofandi.
Þeirtóku þessu ekkert alltof vel !!
Morguninn eftir var farið niður
í björgunarfélag og var
kennd skyndihjálp á
dúkkunni Palla.... Allir
fengu að slefa svolítið
ofaní Palla og testa
hjartahnoð. Síðan eftir
það var labbað niður á
bryggju og farið í báts-
ferð á Þór.... geðveikt
stuð. Síðan var farið
upp í skála að taka til
og allir lifðu hamingju-
samir það sem eftir var
að deginum.
Hei Björgó takk fyrir
dúkkulánið og bátsferðina
þið í KFUM&K fyrir húsið á
föstu-dagskvöldinu.
Fyrir hönd allra
Andri
0
SKÁTABLAÐIÐ FAXI