Skátablaðið Faxi - 01.04.1999, Síða 9

Skátablaðið Faxi - 01.04.1999, Síða 9
„dragshow“ og atriði tekið úr hinum vinsæla grínþætti fóstbræðrumen en þeir náðu þeim alveg ótrúlega vel. Allt heppnaðist þetta ákaflega vel. Á sunnudeginum, eftir að seinasta fyrirlesturinn kláraðist var skálin tekin í gegn og þrifin hátt og lágt. Allir tóku til sinn farangur og löbbuðu út á veg þar sem átti að bíða okkar bíll. Þegar komið var að veginum sást bíllinn hvergi svo við biðum og biðum. Eftir rúman klukkutíma var hringt í bílstjórann en hafði hann þá gleymt okkur og var nýlagður af stað og því var of lítill tími til að gera nokkurn hlut, þegar við komum til Reykjavíkur nema að bíða eftir rútunni í Þorlákshöfn og fara svo í Herjólf. Þetta var ákaflega skemmtilegt og fræðandi námskeið og á líklega eftir að nýtast okkur mjög vel í framtíðinni þó sérstaklega á landsmótinu í sumar. Sigga og Steinunn Hvernig segja Eskimóar brandara? Smá grín! Hvað gerist ef jólasveinarnir gleyma töfrabeltinu heima? Svar: þá springur bumban! Það voru einu sinni skátar að fara í úti- legu í tveggja hæða skála. Þegar þeir voru búnir að koma sér fyrir þurfti einn skátinn að fara á klósettið, sem var á 2. hæð. Hann fór upp en kom aldrei aftur niður. Svo þurfti annar skáti á klósettið og hann fór upp en kom aldrei aftur niður. Svona gekk þetta koll af kolli og var foringinn orðinn einn eftir niðri og hélt að ungu skátamir hefðu bara farið út að leika sér. En svo þurfti hann sjál- fur á klósettið. Hann gekk út úr her- berginu, gekk upp stigann og í átt að klósettinu og opnaði klósetthurði- na........þá spurðu skátarnir allir í kór: „Hvar er klósettpappírinn?” Grínmeistaramir eru : Tinna og Lísa, Eskimóar £mdum beitli ía/ájwv tul aMna ^tjjaikatá, eld/ti íem (jwqni Meql itívvf tjkktvc blmil/ui im mdkewffli GlékH&jtMwm yestmcMMWjjafœnr SKÁTABLAÐIÐ FAXI

x

Skátablaðið Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.