Skátablaðið Faxi - 01.04.1999, Page 14
hvert fjúka þá eggin?
2) ímyndaðu þér að þú sért með körfu
fulla að bönunum á höfðinu. Þú tekur
einn banana og borðaðan, síðan tekur þú
hausinn af og leggur hann til hliðar og
tekur banana og stingur honum upp í
þig??
3) Þú ert í eins hæða húsi sem er allt
blátt , hvernig er þá veggirnir á litinn ,
en gólfið, en glugginn, en loftið, en stig-
inn???
4) Þú ert í þykjustunni strætóbílstjóri þú
stoppar í einu skýli og það koma inn 4
farþegar og þú heldur áfram. Þú stoppar
svo fyrir utan kringluna þar fara allir út
en koma 2 inn síðan ferðu niður á
Hlemm þar fara þessir 2 út en mamma
bflstjórans kemur inn hvað heitir hún?
Svör:
1) Hani verpir ekki eggjum
2) Maður tekur bananann af borðinu þar
sem hausinn var lagður og lætur hann
upp í munninn á borðinu
3) það er ekki stigi í eins hæða húsi
4) því nafni sem mamma þess sem þú
spyrð heitir
Ef sá sem svarar öllu vitlaust er 100%
Ljóska
en sá sem svarar einni vitlaut er 75%
Ljóska
en sá sem svarar tveim vitlaust er 45%
Ljóska
en sá sem svarar þrem vitlausri er 15%
Ljóska
en sá sem svarar öllu réttu er ekki ljóska
YLFINGASVEITIN ZORRO
I sveitini Zorro eru 10 krakkar sem
voru vígð sem ylfingar þann 22.feb.það
sem zorro hefur verið að gera er t.d. jep-
paferð í björgunnarbílnum Lunda.2.það
var rosa gaman. Svo fórum við Ifka í
sleða ferð niður á Stakkó og allir komu
með rauðar kinnar heim. Svo kom að
mesta fjörinu, kvöldvaka í gamla gólf-
skálanum. Þar var farið í leiki, sungið og
eldaðar pylsur. Eftir kvöldmat var
haldin kvöldvaka sem gekk rosa vel og
allir skemtu sér eins og skátum er einum
lagið. Framundan er að reina að fara á
ylfingamót sem haldið verður í sumar
Anna og Guðrún
sveitarforingjar
Landsmót Skáta 1999
í ár verður 23.
Landsmót skáta haldið
að Ulfljótsvatni dagana
13.-20. júlí, en lands-
mótin eru að jafnaði
haldin þriðja hvert ár.
Mótið er fyrst og
fremst fyrir hinn
hefðbunda skátaaldur,
en eldri skátar, hjálp-
arsveitarfólk og fjöl-
skyldur eru að sjálf-
sögðu boðin velkomin.
Allir skátar, strákar og
stelpur, hversu stutt sem
þeir hafa starfað og
óreyndir sem þeir eru,
hvar á landinu sem þeir
búa, mæta og taka þátt í
landsmótinu. Þar eru engir vara-
mannabekkir þvf þar eru allir virkir og
lifandi þátttakendur í ævintýri.
Landsmót skáta í ár verður
tvímælalaust langfjölmennasta lands-
mót sem skátahreyfingin á Islandi hefur
staðið fyrir. Á Ulfljótsvatni mun rísa
öflugt bæjarfélag með 4000 - 5000
íbúum.
Hápunktur mótsins verður laug-
ardaginn 17. júlí en þá mun verða
sérstök hátíðardagskrá sem endar með
glæsilegri kvöldvöku og er það nokkuð
sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.
Landsmótin eru ávallt með alþjóðlegu
ívafi því erlendir skátar eru jafnan fjöl-
mennir og að þessu sinni munu nokkur
hundruð erlendir gestir taka þátt í mót-
inu, frá urn 25 löndum, ýmist sem
almennir þátttakendur eða sem starfs-
menn. Þar af leiðandi eru Iandsmót
eftirsóknaverð fyrir íslenska skáta sem
fá tækifæri til að upplifa í raun hið
alþjóðlega samfélag sem skátahreyf-
ingin er
Dagskrá mótsins verður allt í senn,
fjölbreytt, vönduð, spennandi og gef-
andi. Hún krefst virkrar þátttöku skát-
anna og skapar skilyrði fyrir sköpunar-
gleði þeirra. Starfsrammi mótsins er
„leiktu þitt lag” og tengist það að sjálf-
sögðu söngnum sem er stór hluti af
skátastafinu. Hvernig væri skátastarf
annars ef kvöldvökurnar vantaði?
Yfír daginn starfa þátttakendur í
sínum skátaflokkum við fjölbreytt við-
fangsefni sem þeir velja sjálfir.
Markmiðið með þessari dagskrá er að
veita skátaflokknum tækifæri til að velja
sér þau viðfangsefni sem flokkamir hafa
sjálfir mestan áhuga á að glíma við.
Dagskrárstjóm mótsins hefur tekið
saman hefti með 80 mismunandi
verkefnum sem flokkarnir geta valið úr.
SKÁTABLAÐIÐ FAXI