Skátablaðið Faxi - 01.04.1999, Qupperneq 15

Skátablaðið Faxi - 01.04.1999, Qupperneq 15
Frá landsmóti 1996. Danspallurinn og f. - aftan er eitt af mörgum torgunum Til einföldunar er valverkefnum skipt upp í fjóra flokka og þeir eru nefndir „Ef væri ég söngvari” en sá flokkur inniheldur margskonar verkefni tengd listum. „Blátt lítið blóm eitt er” sem innihaldur verkefni í sambandi við umhverfis- og samfélagsmál. „Eg berst á fáki fráurn”, í þeim flokki eru nrargskonar ævintýraferðir. Og síðast en ekki síst „Fjör í flokk” sem inniheld- ur margvísleg verkefni sem llokkurinn getur valið sér þegar komið er á mótsstað. Skátabúðimar skiptast niður á fimm torg sem öll heita eftir þekktum dönsum og munu litir, tónlist og dansar auð- kenna þau og skapa hverju torgi sína sérstöðu. Torgin verða: Tango, Mambo, Cha Cha, Salsa og Jive. Starfræktar verða sérstakar tjaldbúðir þar sem fjölskyldur skátanna og van- damenn geta komið sér fyrir. Fjölbreytt dagskrá verður þar í boði fyrir alla aldurshópa. Ekki þarf að tilkynna þátt- töku þar auk þess sem hægt er að dvelja eins lengi og gestir óska. Innan landsmótsins verður haldið sérstakt ylfingamót. Ylfingarnir eru framtíð skátastarfsins og því er mikil- vægt að þeir fái tækifæri til að upplifa landsmótsævintýrið. Ylfingamir eru að sjálfsögðu velkomnir með foreldrum sínum í fjölskyldubúðirnar. Á meðan að ylfingamótið stendur, verður boðið til sérstakra tjaldbúða þar sem hjarta ylfi- namótsins mun slá. Aldrei hefur Faxi sent eins fjölmenn- an hóp skáta á landsmót sem nú. Um fimmtíu skátar munu fara á rnótið auk farastjóra og aðstoðarfólks. Eins og fram kemur hér að framan er landsmót sannkallaður toppur skáta- starfsins. Þar munu skátarnir þurfa að kljást við krefjandi og þroskandi verkefni sem fylgir því að búa í tjaldi í heila viku. Eflaust munu þátttakendur búa við þá lífsreynslu alla ævi. Því ætti enginn skáti að láta landsmót fram hjá sér fara, þau eru ekki á hverju ári. Fyrir hönd landsmótsfara Júlía (gCeðíCegt sumar « SPARIS J OÐUR VESTMANNAEYJA (gCeðíCegt sumar (gCeðíCegt sumar Bllaverkstæði ÍSLANDSBA NKI Harðar & Matta SKÁTABLAÐIÐ FAXI 0

x

Skátablaðið Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.