Skátablaðið Faxi - 01.04.1999, Blaðsíða 16

Skátablaðið Faxi - 01.04.1999, Blaðsíða 16
Sagan Robert lord Baden-Powell stofnaði skátahreyfinguna. Hann var dugleg- ur í skóla, og þegar hann kláraði skólann gekk hann í herinn. Hann var sendur til Indlands, þar lærði hann margt gagnlegt t.d að teik- na upp landakort. Alltaf þegar hann hafði tíma ferðaðist hann um frumskóginn og veiddi villi- dýr. Aðeins 26 ára var hann gerður að höfuðsmanni vegna þess hvað hann var duglegur við að njósna og læðast. Seinna fór hann svo til Afríku til að þjálfa hermenn. Nokkrum árum síðar hófust svo stríð í Afríku og það var umsátur um borgina, sem hann var hers- höfðingi í, þetta stóð í 217 daga en þá komu hermenn og björguðu Baden-Powell og hans fólki. Þegar hann kom heim til London var hann mjög frægur, en þá höfðu hugmynd- ir hans um skátahreyfinguna skotið upp kolli. Hann hafði hugsað ská- tana sem skemmtilegt og þroskandi verkefni fyrir drengi sem höfðu lítið sem ekkert að gera. Hinn 25 júlí 1907 fór Baden-powell með 20 drengi til Brownsea eyju, frægs smyglaraaðsetur frá fyni tíð. I viku langri útilegu sannreyndi hann hugmyndir sínar um skátana. Eftir útilegunna skrifaði hann skátabók- ina. í fyrstu voru aðeins drengir í skátunum en seinna fékk Baden- powell Agnesi systur sína til að breyta skátabókinni svo hún væri einnig gagnleg fyrir stelpur. Seinna stofnaði hann sérstakar ylfinga- um sveitir. Árið 1922 gaf Baden-Powell út bók fyrir eldri skáta sem hann kallaði Róverskáta. Hann giftist Olave st. Clair, hún hafði mikinn áhuga á skátunum. Árið 1920 var haldið í Englandi fyrsta alheimsmót skáta. Þar var hann útnefndur Alheimsskáta- höfðingi og hefur hann einn borið þann titil hingað til. Á alheimsmóti í Danmörk 1924 rigndi mjög mikið, þá sagði Baden-Powell „hvaða kjáni sem er getur verið í útilegu í góðu veðri, en það þarf skáta til þess að vera í útilegu í slæmu veðri og hafa það gott” Skátastarfið barst hratt um allan heim og Baden-Powell ferðaðist þá mikið. Við hátíðarhöld á alheimsmóti skáta í Englandi árið 1929, var stríðsöxi grafin þá sagði hann: „frá þessum degi er friðartákn skátana, Gullnaörin; berið hana hátt og örugglega meðal þjóðanna svo að þær kynnist alheimsbræðralaginu sem skátar mynda”. Árið 1937 var haldið stórt skátamót í Hollandi og við mótslit afhendi hann hverri þátttökuþjóð mótsmerkið Jakobskrossinn og við það flutti hann síðustu stóru ræðu sína til skátanna í heiminum. Síðustu ævi ár sín bjó hann í Kenya í Afríku. Hann lést þann 8 janúar árið 1941 og fluttu skátar og hermenn hann til hinsta hvíldarstaðar í skugga fjallsins mikla Mont Kenya. Flokkurinn Flugur (gCeðíCegt sumar (gCeðíCegt sumar BÆ|ARVEITUR RANNSÓKNARSTOFNUN X) VESTMAN N AEY|A mJM FISKIÐI\IAOARII\IS SKÁTABLAÐID FAXI

x

Skátablaðið Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.