Skátablaðið Faxi - 01.04.1999, Síða 19

Skátablaðið Faxi - 01.04.1999, Síða 19
Brandarar Eftirtaldir aðilar styrkja skátastarfið Ahaldaleigan Bensínsalan Klettur Bókabúðin Brimnes Eðalsport FOTO Geisli Haukur Guðjónsson Húsey Mósart Olís Olíufélagið hf. - ESSO Reynistaður Tvisturinn / VIS - tryggingarfélag Hagskil Miðstöðin Páll Zóphóníasson, teiknistofa Þróunarfélag Vestmannaeyja - Pabbi, hvar varstu? - Ég var með Önnu úti í hlöðu, - Já, og hvað voruð þið að gera? - Ég veit það ekki, en það verður uppáhaldsleikurinn minn hér eftir. Hver er uppáhaldsréttur eigin- mannsins? Spurningunni svarar að þessu sinni Jóna skáti eiginkona Þangbrands Slagbransdssonar Varlatilstræti 16. Þangbrandur er skáti og matmaður mikill, en þó fellur honum ekki við mjög „brasaðan" mat. Vegna þess tek ég ætíð með í útileguna heil- næma og góða skátafæðu. A mínum yngri árum átti ég þess kost að dveljast á foringjaskólanum á Ulfljótsvatni og lærði ég þá að matbúa eftirfarandi rétt, sem ofar- lega er á vinsældarlistanum hjá Þangbrandi: Létt saltað hjólhesta- kjöt með grænsápustöppu, einnig höfum við stundum tjörusósu út á. Það besta sem hann fær á eftir er strigapokasúpa. Öðrum skátum til fróðleiks og glöggvunar ætla ég að rita það helsta í sambandi við matreiðslu á hjólhestakjötinu. Fyrst skal kjötið skorið niður í mjóar þunnar sneiðar en síðan skal því hampað lof á milli 10-15 sinn- um. Kjötið skal borið í matarolíu. Best finnst mér að nota Shell x-100, en því næst skal það steikjast. Best hefur mér reynst að steikja það í náttgangi (kopp) enda eru slíkir hlut- ir mjög vinsælir til mataframleiðslu hjá skátum. Ef öllum fyrrnefndum atriðum er fylgt, er ég viss um að ofangreindur réttur á eftir að vera mjög vinsæll. SKÁTABLAÐIÐ FAXI

x

Skátablaðið Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.