Skátablaðið Faxi - 01.12.1999, Page 2
Guðrún Helga Bjarnadóttir
Biðin
Það er búið að vera alveg yndis-
legur tími undanfarnar vikur, eða
réttara sagt aðventan. Það er sá tími
sem við notum til að undirbúa okkur
fyrir jólin. Hvernig við stöndum að
þeim undirbúningi er misjafnt, en ég
held að flestir geri það sem þeim
finnst skemmtilegt og uppbyggilegt.
Fjölmiðlaumfjallanir um stress-
aðar húsmæður fyrir og eftir jólin er
eitthvað sem maður á ekkert að vera
að hlusta á. Ég held við gerum
nákvæmlega það sem okkur hentar
að gera og ekki meir. Jólin koma
alltaf á sama tíma árlega, hvort sem
við erum tilbúin eða ekki. En það er
svo skrítið að þegar jólin ganga í
garð er allt fullkomnað, fjölskyldur
sameinaðar, friður á jörðu og í hjört-
um mannanna og gleði og eftirvænt-
ing skín úr andlitum barnanna.
Eða er ekki svo? Þannig ætti þetta
að vera, en það er svo skrítið að
þetta virðist ekki vera þannig í raun.
Það eru því miður allt of margir sem
eru einmana um jólin og aðrir sem
standa frammi fyrir því að velja á
milli þess að gefa börnunum sínum
gjafir eða gera vel við sig í mat og
drykk. Hvað er eiginlega að?
Mig langar til að deila með ykkur
sögu af ágætri konu sem dvaldi á
elliheimili síðustu æviár sín. Hún
var vön því að einkasonur hennar
sótti hana um fjögurleitið á aðfanga-
dag og hún var vön að verja að-
fangadagskvöldinu með honum og
fjölskyldu hans. En svo bar til eitt
árið, að konan sat í anddyrinu frá því
klukkan tvö um daginn. Hún vildi
vera tilbúin tímanlega svo hann
þyrfti ekki að bíða eftir henni. En
hún beið þarfa fram yfir klukkan
sex. Þá birtist sonurinn með pakka
til hennar og afsakaði sig. En þau
hjónin höfðu ákváðið að eyða
jólunum með vinafólki sínu uppi í
sumarbústað þetta árið. Hann hafði
bara gleymt að láta hana vita. Sú
gamla hafði misst af kvöldmatnum á
elliheimilinu og útvarspmessan var
byrjuð. Auðvitað fékk hún mat, en
aðfangadagskvöldið varð allt öðru
vísi en hún hafði vanist og átt von á.
Látum það ekki henda okkur að
láta það fram hjá okkur fara ef við
vitum af einhverjum sem er ein-
mana. Hringjum, lítum í heimsókn
eða bjóðum til okkar þeim, sem við
vitum að þannig er ástatt fyrir. Við
getum sjálf lent í þessari aðstöðu og
þá væri gott að eiga von á einhverj-
um góðum vin eða ættingja sem
lætur sig okkur varða.
Kæru skátar, Eyjamenn og aðrir
lesendur, megi friðarboðskapur
jólanna og samheldni ná til ykkar
allra.
Guð gefi þér gleðileg jól!
369.405 Ská 1999 17(2) Átthagi
Útgefið í desember 1999
Skátablaðið Faxi.
Átthagadeild
14205134
Útgefandi: Skátafélagið Faxi
Ábyrgðarmaður: Marinó Sigursteinsson
Ritstjóri: Freydís Vigfúsdóttir
Auglýsingar: Sigríður Guðmundsdóttir
Ritnefnd:
Dróttskátasveitin Weztmenn
Prófarkalestur: Einar Örn og Freydís
Prentvinna: Prentsm. Eyrún hf.
Bókasafn Vestmannaeyja
0
SKÁTABLAÐIÐ FAXI