Skátablaðið Faxi - 01.12.1999, Qupperneq 4
svcita
Frábærasveitin Fífill
Hluti sveitarinnar á myndakvöldi
Þau eru myrkfælin
Við viljum endilega segja ykkur frá
frábærusveitinni Fífli. Þessi sveit hefur
tvo sveitiarforingja, fullt af foringjum
og nokkra flokka. Sveitarforingjarnir
heita Helga og Stína. Flokkarnir okkar
heita Myrkfælnir Draugar, Vofur;
Flugur og Rassálfar og svo höfum við
líka einn öldung. Öldungurinn sér um
það að fylgjast með og hjálpa til. Núna
undanfarið höfum við verið að koma
okkur fyrir í Skátaheimilinu okkar sem
við erum ánægð með að hafa fengið
aftur. Við máluðum herbergið okkar og
erum að vinna í því að innrétta það. Við
höfum líka farið í eina óvissuferð við
getum ekki sagt ykkur hvað gerðist í
henni útaf því það er náttúrulega óvissa
en eitt skulum við segja ykkur að við
héldum kvöldvöku sem heppnaðist
ágætlega eitt það merkilegasta sem við
gerðum í þessari kvöldvöku var það að
við klæddum öldunginn okkar hann
Mannsa í öldungarfötin útaf því að hann
lítur ekki út eins og öldungur. Þess
vegna þurftum við að gera hann að öld-
ungi. Bráðlega ætlum við að fara í báts-
ferð og hafa útilegu og vonum við að
það gangi bara vel. Við höfum ekki
mikið meira að segja nema eitt að lokum
við viljum hvetja alla til að hugsa
jákvætt því að þá er náttúrulega svo
gaman að lifa.
Stína og Helga sv.for.
Myrkfælnir
draugar !!!
Við í Myrkfælnum draugum höfum
gert margt skemmtilegt síðan við hófum
skátastarfið í vetur. Við byrjuðum árið á
því að fara í útilegu í Skátastykkið og
tókst hún alveg frábærlega vel. Það sem
okkur fannst skemmtilegast var þegar
við vorum að fela 2. L. kókflösku með
gulu bandi og vatni í á túninu fyrir
neðan Skátastykkið.
A einum skátafundi eftir útileguna
fórum við í blindraferð um bæinn.
Tilgangurinn var að reyna að gera okkur
grein fyrir því hvernig það er að vera
blindur. Allir voru með trefil bundinn
fyrir augun nema foringjarnir sem
leiddu þá blindu um bæinn.
Nýlega eftir að snjórinn kom fórum
við í smá leiðangur upp á fjall fyrir ofan
Sprönguna og tókum með okkur svarta
ruslapoka. Við bjuggum til „litla” braut
niður fjallið og brunuðum niður. Það var
ÝKTFJÖR!!!
Margt margt fleira skemmtilegt og
spennandi höfum við gert og ef þú hefur
áhuga á skátastarfi og ert 10-12 ára þá
endilega kíktu á fund til okkar í Skáta-
heimilinu við Faxastíg á miðvikudögum
kl: 17:30.
Gleðileg jól;
Sigrún H, Fanney, Sigrún B.,
íris Dögg, Sif og Bergur Páll
Foringjar;
Berglind Osk Sigvardsdóttir
og Kristín Halldórsdóttir
0
SKÁTABLAÐIÐ FAXI