Skátablaðið Faxi - 01.12.1999, Qupperneq 5
Vofur
Hæ, hæ!
Við erum hér stelpur í skátaflokknum
Vofum. Skátaforingjar okkar eru Sjöfn
Kolbrún og Elva Dögg. Það er búið að
vera mjög gaman hjá okkur í vetur við
erum t.d. búnar að læra um Baden
Powell og svo erum við einnig búnar að
læra að flagga og brjóta fána rétt saman.
Við höfum farið í eina útilegu upp í
Skátastykki og það var mjög gaman.
Við erunt líka búnar að gera margt fleira
eins og fyrir stuttu fluttumst við aftur í
Skátaheimilið. Allir hjálpuðust að við
það. Jæja við verðum að stoppa en
gætum alveg skrifað endalaust um
okkur því það er svo gaman í skátunum.
Við þökkum bara fyrir okkur
Kveðja;
Vofur
Rassálfar!
Við erum flokkurinn Rassálfar, við
erum öfga flottur flokkur með alveg
helling af starfi í gangi. I Rassálfum
eru...Anna Eir, Halli, Jóna Heiða,
Kristín Alda og Valur, flokksforingi
Rassálfa er...Herdís. Sum af okkur fóru
á Landsmót skáta, sem haldið var 13-20.
júlí, það var alveg geðveikt mikið stuð
þar, við fórum t.d. í hellaskoðun, sig,
göngur, tókum viðtöl við frægt fólk, og
margt, margt fleira. Núna í vetur erum
við erum búin að gera alveg helling á
fundum s.s. fara í göngu, syngja,
sleðaferð o.fl. Við hvetjum alla krakka
til að byrja í skátunum því að þetta er
æðislega gaman og það má enginn
missa af þessu.
Rassálfar
Flugur
Hæ, hæ!
Við heitum Flugur og erum 5 stelpur
og 2 foringjar. Við erum búnar að fara í
eina útilegu og það var mjög gaman.
Svo höfum við haft nammifund og gert
margt fleira skemmtilegt en nú biðjum
við að heilsa.
Flugur.
Frábæri flokkurinn Rassálfar
Sendum öllum bæjarbúum
gleðiíegra jóía
með þökk fyrir
viðskiptin á árinu
Starfsfólk og eigendur
Sendum öllum bæjarbúum bestu
óskir um
Gleðileg jól
og farsælt komandi ár
Þökkum ykkur góð viðskipti á árinu
sem er að líða
ÍSLANDSBANKI
SKÁTABLAÐIÐ FAXI
o