Skátablaðið Faxi - 01.12.1999, Síða 9

Skátablaðið Faxi - 01.12.1999, Síða 9
Landsmót skáta 1999 Meðal efnis: Grímuball, koma Keikós, Hvítárferð, Eyjagöngin ofl. Að þessu sinni var landsmótið haldið á Ulfljótsvatni og voru um 5000 manns á því og þar með töldum 2000 útlensk- um skátum sem komu alls staðar að á hnettinum. Þema mótsins var „leiktu þitt lag“ og var því flest á mótinu kennt við söng og dans. Búið var að breyta Úlfljótsvatni í lítið samfélag. Svæðinu var skipt niður í torg sem voru skírð eftir dönsum s.s Jive, Mambo, Rumba........ Faxi var Salsatorgi með Hólmverjum Landnemum, Mosverjum, Norð- mönnum, Bandaríkja- mönnum og Hong Kong búum. Allir lærðu þann dans sem torgið þeirra var nefnt eftir. A svæðinu var hægt að finna eins og í hverju öðru litlu þorpi pósthús, banka, búð með sjoppu og minjagripi en búðin bar nafnið skátabónus. Einnig var þar Strætó!!, sturtur, kaffihús og ekki má gleyma Ráðhúsinu. Á miðju mótsvæð- inu var stórt svið þar sem voru haldnar kvöldvökur, tónleikar. Einn dagur var tileinkaður sem kamivaldagur og var þá Forseti Islands heiðraði okkur með nærveru sinni. haldið grímuball. Þar var þá DJ á sviðinu og gefið fullt, fullt af kjörís. Á þessum degi áttu líka öll félögin að halda kynningu á sinni heimabyggð og fmmsýndu Faxi lendingu Keikós, harin lenti fyrir framan mótshliðið og var farið með hann í kerrunni sinni ásamt strangri öryggisgæslu niður að Úlfljótsvatni í kví sem var búið að útbúa handa honum í miðju vatninu og kafarar syntu með hann þangað. Dróttskáta- dagskráin var frábær. Þar gat maður valið um að fara á sjó- skíði og vatna- sleða, river raft- ing niður Hvítá þar sem ALLIR fengu að blotna vel!!, snjósleðaleiðangur á Langjökli, radio skátun ofl. Einnig var mjög fjölbreytt flokkadagskrá sem flest allir voru mjög ánægðir með. Þar var t.d hægt að fara í útreiðartúr, ljósmyndasprett, flugdrekas- míði, myndlist, ræðukeppni, sig, klifur, matargerð, vatnasafaríið og svo mætti lengi telja. Þjóðhá..neiiii Landsmót!!! Fjöldi manns mættur á Landsmót. _

x

Skátablaðið Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.