Skátablaðið Faxi - 01.12.1999, Síða 10

Skátablaðið Faxi - 01.12.1999, Síða 10
Faxar voru mjög áberandi á þessu móti, allir í rauðum varðeldaskykkjum og flestar stelpurnar í dróttskátasveitinni voru búnar að gera sér „gamla“ skáta- kjóla og Palli var í gömlum strákabún- ing. Við vorum svo heppin að hafa einn trommara í félaginu, hann Jóa svo við marseruðum alltaf í tvöfaldri röð á kvöldvökur og í fána. Og ekki má gley- ma flaggstöngini okkar en hún var að sjálfsögðu hæsta flaggstöngin á svæðinu eins og á öllum mótum og svo göngin inn í Eyjarnar sem Arni Johnsen vígði. Ræs á þessu móti var frekar snemma, klukkan 7. Svo var morgunmatur og fáni að því loknu hófst flokkadagskrá sem endaði um kvöldmat og svo voru annað hvort torgakvöldvökur eða kvöld- vökur sem voru haldnar á stóra sviðinu sem allir mættu á. Öll kvöld að kvöld- vökum loknum fengu Faxarnir mömmu Rósu kakó. Eftir það fóru flestir í hátt- inn en þau sem voru komin á drótt-ská- taaldurinn ( 16 og uppúr) fengu að vaka lengur og var þá helst farið á kaffihús, annahvort í Hraunbyrgi, fyrir þá sem vildu hafa það rólegt og spjalla við vin- ina eða á dansstaðinn Kaffi Reyf sem var tjaldað frekar langt frá tjaldbúð vegna hávaða því þar var DJ fram eftir kvöldi og var þar alltaf stappað af dansandi skátum. Landsmót er eitthvað sem enginn skáti lætur fara fram hjá sér og er alveg einstök tilfinning og á maður margar góðar minningar og vini eftir þau. Sigga og Steinunn Smiðjudagar 1999 v Smá labbitúr í Vera-hvergi eða Hver-gerði (Þe. Hveragerði) Helgi eina í október fóru nokkrir Faxar, Sigga, Steinunn, Herdís og Palli á smiðjudaga, sem að þessu sinni voru haldnir í Hveragerði. Einnig var þar í gangi JOTI-JOTA en það er alþjóðlegt „skátamót" á netinu og í loftinu. Þá gat maður farið á netið hvenær sem maður vildi og talað við aðra skáta víðsvegar um heimin og því gistum við í skólanum í Hveragerði þar sem nóg var af tölvum. A föstudagsnóttinni var haldin róman- tísk sundferð (sundlaugapartý). Það var búið að troða hátölurum allsstaðar í kringum sundlaugina í Hveragerði og partýað fram eftir kvöldi. Daginn eftir -snemma- var öllum hóað inní sal og haldin var LANGUR fyrir- lestur um jarðskjálfta. Þess má geta á þessu móti var ekkert ræs og engin kyrrð svo margir fóru ekkert að sofa eða það var enginn FRIÐUR til þess og því notuðu margir tækifærið að sofa á fyrir- lestrinum. Svo seinna um daginn var komið að því að fara í leiðangra sem maður hafði skráð sig í kvöldið áður. I boði var að fara í hellaferð, sig, ganga, fara á Úlfljótsvatn og vera á JOTI-JOTA (on the internet/on the air) og fleira. Allir Vestmannaeyingarnir skelltu sér náttúrulega í sigið sem var í boði Hvergerðinga. Um kvöldið var haldin kvöldvaka en henni var stjórnað af nýja smiðjulærlingahópnum, svo eftir það var diskó inná sal. Dagskránni var svo slúttað með FRÁBÆRUM næturleik og það vann, auðvitað, liðið sem Vest- mannaeyingarnir voru í, en það var að mestu leiti skipað Föxum og Strókurum (Hveragerði). Á Sunnudeginum var boðið uppá smiðjur sem maður gat farið í t.d pöddu- smiðja, álsmiðja, blómasmiðja ofl. Svo voru slit um hádegi og allir fóru glaðir heim. Sigga og Steinunn SKÁTABLAÐIÐ FAXI

x

Skátablaðið Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.