Skátablaðið Faxi - 01.12.1999, Page 11

Skátablaðið Faxi - 01.12.1999, Page 11
Dalakotsferð '99 Ævintýri á heiðinni Spilað á gítar og sungið í Dalakoti stað aftur. Svo fóru allir inn og fóru að búa sig í háttinn . Við vöknuðum seint og um síðir morguninn eftir. Allir voru í letikasti þangað til að þeir uppgötvuðu að þeir væru svangir og höfðu gefist upp á nestinu sínu! HÆKIÐ!!!! Einhverjum snillingum datt í hug að það gæti mögulega verið sjoppa í skíðaskálanum í Hveradölum. Svo við héldum af stað í brjáluðu veðri og gengum og gengum og komumst þang- að á endanum lafmóð, köld og blaut (skíðaskálinn er hinumegin við götu- na!). Einhverjir súperskátar fóru þó að leika sér á snjóbretti í góða veðrinu! Við stoppuðum í skíðaskálanum í rúma tvo klukkutíma. Við komumst að því að þarna var engin sjoppa en þarna var mjög elskulegur þjónn sem leyfði okkur að vera þarna. Við stelpurnar vorum mjög ánægðar að komast á almennilegt vatnsklósett!!! (A.T.H. í Dalakoti er ekkert vatn, ekkert rafmagn og ekkert klósett, bara mjög „girnilegur" kamar!) Svo fengum við að hengja upp blautu fötin. Svo af því að þetta var mjög glæsilegt hús og við sáum nokkra veitin- gasali vildum við grennslast fyrir um hvort það væru nokkuð í boði einhverjar veitingar. HERDÍS fór og spurði þjóninn. Við gátum ekki fengið neinn mat en hann bauð okkur samt kakó á 100 kr. Við þáðum það með þökkum. Svo þegar við vorum á leiðinni út upplýsti þjónninn að við hefðum verið mjög heppin að hafa ekki komið að tómum kofanum því einmitt þennan dag var haldinn árshátíð Osta- og smjörsölunnar í skálanum og þess vegna hafði hann verið opinn. Það var víst þó með þeim skilyrðum að einungis gestir árshátíðarinnar fengju að koma inn í skálann þennan dag. Við viljum því þakka þjóninum fyrir gestrisnina og mælum mjög mikið með Skíðaskálanum í Hveradölum!! Veðrið hafði versnað mjög mikið á meðan við vorum inni og héldum við út í svo Helgina 5.-7. nóvember lögðu langhressustu skátarnir í Vestmanna- eyjum af stað í hina árlegu Dalakots- ferð. Allir voru geðveikt spenntir í Herjólfi og enginn ældi. Ármann Foss- búi kom svo og sótti okkur í Herjólf og keyrði okkur upp í Dalakot. Þar hittum við svo Mumma, Siggu, Steinunni og Palla. Palli átti að vera foringi af því að Mummi þurfti að fara e-ð. Þetta varð því að stórum hluta foringjalaus útilega. Á föstudagskvöldið fengum við nokkra gesti, þ.e. Jón Grétar og Gísli Kópar, Ásgeir Hraunbúi og nokkrir frá Selfossi. Þá fóru einhverjir að syngja en aðrir fóru að leika sér að láta braka í bakinu hvert á öðru. Svo kom Mummi með einn ónefndan Hvergerðing með sér um kvöldið þar sem hann fann ekki Magnús (gullfisk) Fossbúa sem átti að koma og vera með kvöldvöku. Svo fóru allir gestimir nema Gísli. Hjálpsamir Islendingar!!!! Þá fórum við út að tékka hvað íslendingar væru hjálpsöm þjóð.Við komumst að því að íslendingar eru bara ekkert hjálpsamir. Við fórum öll að veg- inum og svo lágu allir í grasinu nema við skiptumst á að standa við vegakant- inn og húkka far. Við þurftum að bíða mjög lengi eftir að bíll stoppaði fyrir okkur, það gerðist þó á endanum og þegar bíllinn var stopp stóðu allir upp og bflstjórinn var ekki lengi að bruna af Verið að drekka kakó í Skíðaskálanum SKÁTABLAÐIÐ FAXI

x

Skátablaðið Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.