Skátablaðið Faxi - 01.12.1999, Síða 13

Skátablaðið Faxi - 01.12.1999, Síða 13
Súperskátar í Esjuferð Þegar áttavitinn er ómissandi Þann 24. september síðastliðinn héldu nokkrir skátar úr Vestmannaeyjum af stað í ferðalag. Ætlunin var að hitta nokkra skáta í skátafélaginu Kópum í Kópavogi og fara með þeim í útilegu. Við gistum í alveg æðislegum skála á Esjusvæðinu. Skálinn heitir Þristur og þess má geta að þar er ekkert rafmagn, ekkert rennandi vatn (nema í læknum fyrir utan) og ekkert klósett og ENGINN KAMAR !!!!! Því þurftum við bara að notast við náttúruna. Fyrra kvöldið gerðum við frekar fátt. Samt ákváðu nokkrir vestmmanneyskir súper- skátar (Anna Jóna, Palli, Sigga, Steinunn og María Sif) að sofa úti undir berum himni. Við vöknuðum snemma morguninn eftir og byrjuðum strax að undirbúa okkur fyrir gönguna. Einhverjir fóru með Björgunarfélaginu sem hafði fengið að fljóta með en ég (Anna Jóna) og María Sif fórum í göngu með nokkrum Kópum. Við lögðum af stað rétt fyrir hádegi og byrjuðum á að labba upp á efsta toppinn sem við sáum. Þar uppi elduðum við okkur pasta sem heppnaðist bara ágætlega. En þegar við vorum komin þangað upp sáum við auðvitað topp sem var ennþá hærri en sá sem við vorum á. Og þá byrjuðum við að labba. Við náðum að lokum alveg upp. Þá sáum við ÖFGA flottan, risa- stóran dal og ég fór að skamma sjálfa mig fyrir að hafa ekki komið með myndavél. Þegar við vorum þar uppi sáum við „hraustu“ strákana í nýliðum tvö í Björgunarsveitinni hvíla sig á neðri toppnum. Þeir hvíldu sig þar mjög lengi. Við aftur hlupum niður fjallið og fórum því geðveikt „vel“ með dýru gönguskóna okkar.Við stopp- uðum við læk sem var þar hjá og fylltum vatnsbrúsana okkar sem voru löngu orðnir tómir. Svo hlupum við niður gil sem var þar. Það virtist endalaust langt. Við skemmtum okkur samt mjög vel á leiðinni, sérstaklega við María Sif þar sem við vorum í keppni mestallan tímann. Þegar við vorum komin niður stoppuðum við til að éta og pissa. Svo lá leiðin að Tröllafossi. Við vorum mjög lengi á leiðinni. Samt komumst við þangað á endanum. Þar teiknaði María Sif glæsi- lega mynd af Tröllafossi. Eftir smástopp þar héldum við af stað aftur í Þrist. A leiðinni þurftum við að fara yfir þrjá „hóla“ í blindaþoku og vonuðumst til að vera á réttri leið. Hólarnir voru hver Verið að stúdera landakortið Herdís og Palli að elda á prímus svipaðir og Heimaklettur á hæð! Að lokum sáum við í skálann og urðum mjög fegin. Við hlupum strax inn og þá var klukkan orðin 20. Við komum inn tveimur klukkutímum á eftir hinum hópunum og voru sumir farnir að hafa áhyggjur af okkur. Þetta sannar hvað skátar eru frábærir að fara í lengstu gön- guna! Þar beið okkar svo girnilegur kvöldmatur (lambalæri grillað grafið ofan í jörðinni). Við komum akkúrat á réttum tíma í mat! Eftir mat og grillaða banana fórum við að syngja. Það var æðislega gaman og fengum við mjög góða gesti, s.s. Sigga Úlla og Magnús gullfisk. Við vorum syngjandi langt fram á nótt! Að lokum sofnuðum við og fengum að sofa út. Rútan kom svo og sótti okkur um hádegi á Sunnudeginum. Þá fórum við í bæinn og fengum að geyma farangurinn okkar í skátaheimilinu hjá Kópum. Þaðan ætlaði Jón Grétar í Kópum að skutla honum niður á BSÍ rétt áður en rútan færi. Það var mæting í rútuna kor- ter yfir fjögur þannig að við bjuggumsl við að það yrði nóg að koma með farangurinn tuttugu mínútur yfir. Svo héldum við áhyggjulaus af stað með strætó í Skautahöllina. Við hittum stórfurðulegan mann á strætóstöðinni. Við skemm- tum okkur æðislega á skautum og vorum eins miklir Vestmannaeyingar og hægt var! Svo fórum við þaðan með strætó niður á BSI. Við vorum komin þangað tæplega korter yfir fjögur og þurftum samt að stoppa rútuna!! Það segir sig þá sjálft að farangurinn komst ekki með! Eftir mörg símtöl og vesen var ákveðið að senda farangurinn bara með flugi. Farangurinn var því kominn heim á undan okkur. Ferðin heim gekk vel. Takk fyrir að lesa þessa frábæru grein Kveðja Anna Jóna súperskáti. SKÁTABLAÐIÐ FAXI

x

Skátablaðið Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.