Skátablaðið Faxi - 01.12.1999, Síða 15
Kristínu sem ekki losnaði við Matta úr
símanum.
Svo fórum við að tala við Vfking og
hann fór með græjurnar sínar upp á hól
og byrjaði að spila þar einhverja hall-
ærismusik og ég komst að því að
Víkingur var helmingi meiri hallæris-
gæji heldur en Bragi, en Kristín var
ennþá með sömu stjörnurnar í augunum.
Svo nenntum við ekki að standa í
þessu lengur og fórum bara að sofa.
Um morguninn nenntum við ekki að
vakna og þvf fengum við ennþá lélegra í
tjaldbúðaskoðun heldur enn á laugar-
dagsmorgninum. Það var svo slæmt að
þeir sem skoðuðu tjaldið komust ekki
inn fyrir drasli.
Svo eftir það fórum við í póstaleik.
Þar var meðal annars látið okkur baka
pönnukökur yfir opnum eldi, hjól-
börukapphlaup og margt fleira.
Svo fórum við aftur upp í tjaldbúð og
þurftum að byrja á því að taka til það
gekk frernur hægt enda misstum við
næstum af ferjunni. Þegar við komum
aftur á fastalandið skelltum við okkur í
Laugardalslaugina þar sem Elva Dögg
og Kristín kynntust mestu gribbu í
heimi. Það lá bara við að hún hefði barið
þær þarna vegna þess að við settum
óvart tvo peninga í sama skápinn og
báðum hana því um hjálp. En þetta
reddaðist allt saman. Svo fórum við líka
út að borða og þaðan sótti Ármann
okkur á pínulítilli rútu og skutlaði okkur
í bíó. Þar fóru allir á Austin Powers
nema Elva Dögg því hún var búin að sjá
hana. Hún bara fór á einhverja aðra
mynd sem var víst alveg ágæt. Svo
fórum við í þessari pínulitlu rútu niður í
Þorlákshöfn og vorum komin þangað
um svona 1.30 um nóttina. Við biðum
svo eftir Herjólfi en fórum svo með
honum um 2.00 og fórum í stóru glug-
gakistuna og sváfum til rúmlega 5.00 og
tróðumst þá mygluð og svefndrukkin út
úr Herjólfi og hver ætli hafi staðið þar
að bíða eftir Krisínu? M ATTI!!!!
Honum tókst svo að smygla til hennar
tösku með blómum og einhverri 40
blaðsíðna ritgerð um hvað hann elskaði
Kristínu mikið. En það fór samt svo að
þau byrjuðu saman aftur sama dag.
En annars var þetta mjög skenntilegt
mót og við vitum vel að við sögðum nú
ekki mikið frá klíkunni hennar
Freydísar enda vorum við ekkert að
pæla í þeim alla helgina. Við vitum bara
að þau gerðu einhvem Islandsflokk eða
eitthvað. En ef þau verða eitthvað spæld
þá er það ekki okkur að kenna að við
fengum þetta verkefni.
Takk fyrir
Elva dögg og Leifa
I Skítugum naríum Faxa.
I sumar var farið og „slappað af’ í
Viðey á landnemamóti. Dróttskáta-
sveitin ásamt flokknum Skítugar naríur
og Páli Magnúsi fóru þangað og voru
Faxarnir á víð og dreyf um svæðið. D.s
sveitin gistu í sama tjaldi og Fossbúarnir
en Sk.naríur voru á svæði með
Hraunbúum. Það var lítil dagskrá svo
það var bara mest slappað af. Það var
súrrað og súrruðu D.s og Fossbúar
„æðislega" eldhúsinnréttingu. Flokka-
keppni var haldin og unnu Fossfaxar
keppnina þrátt fyrir það að Faxbúar voru
búnir að drekka 5 lítra af MYSU ojjj
sem ég persónulega mæli ekki með. Á
kvöldin voru auðvitað haldnar kvöld-
vökur og svo má ekki gleyma því sem
einkennir Viðeyjarmót en það er
bryggjuballið, harmonikkubandið kom
að spila og voru dansaðir gamlir íslensk-
ir dansar og var marserað. Þetta var
frábært!! Svo eftir þetta voru spilaðir
diskar fyrir þá sem voru enn í fullu fjöri.
Eftir mótið fóm Faxar, nokkrir
Hraunbúar, Ármann og Elín Fossbúar á
Pizza Hut og á Austin Powers 2 í bíó var
svo farið með 2 ferðini (um nótt) með
Herjólfi, aukaferðir voru vegna
Pollamótsins og var því komið heim kl
5 um morguninn.
Sigga og Steinunn
Allir skátar
hoppa með
r
Hoppgjald er kr. 2.165,- og gildir fyrir alla 12-26 ára
ISLANDSFLUG
SKÁTABLAÐIÐ FAXI