Skátablaðið Faxi - 01.12.1999, Side 17
Þátttakendur og leiðbeinendur Gilwell '99.
átti á. Á leiðnni átti að hafa viðkomu á
ýmsum stöðum, fjalli, bæ eða jafnvel
fossi og leysa meðfylgjandi verkefni.
Besti flokkurinn, Dúfurnar, fengu það
mikla verkefni að ganga upp á Búrfell,
niður að Búrfellsbæ, að kerinu í
Grímsnesi og til baka með ýmsum
krókum og viðkomum. Okkur hefði
ekki tekist þetta nema með orkunni úr
namminu hans Mannsa svo honum eru
færðar bestu þakkir fyrir það.
Þrátt fyrir miklar tilraunir til að reyna
að koma í veg fyrir það, þá leið tíminn
áfram alltof hratt, en þannig er það
oftast þegar það er gaman. Síðasta
kvöldvakan leit dagsins ljós og með
söng í eyrum fengum við okkur kakó að
skátanna sið að henni lokinni. Við vild-
urn ekki trúa því að við ættum að fara að
sofa og vakna til að taka saman og fara
heim með kveðjuorð á vör, svo við
ákváðum að reyna storka við örlögunum
og vöktum fram á nóttina við gítarspil
og sönghljóm. Flestir fóru að draga ýsur
er klukkan nálgaðist þrjú en við vorum
nokkur sem ákváðum að skella okkur
bara í sund til að halda okkur vakandi.
Uldin í meira lagi en þó nýþvegin
vaknaði ég eftir klukkustundar dúr. Ég
átti að fara taka saman og svo átti að
slíta námskeiðinu. Það var yndislegt
veður er ég gekk út úr svefnskálanum,
að fánastönginni þar sem slitin áttu að
fara fram. Bræðralagssöngurininn hljó-
maði vel í eyrum við flöktið í fánanum
og lóusöng. Ég vissi þá að námskeiðinu
var lokið, námskeiðinu sem ég sem
krakki sá í hyllingum, sem þátttakandi
upplifði og sem skáti hefði aldrei viljað
hafa misst af því.
Að lokum vil ég þakka öllum sem
stóðu að námseiðinu og gerðu þennan
tíma ógleymanlegan og ég hvet alla
skáta til að stefna ótrauðir að því að
upplifa Gilwell.
Gleðileg jól og takk fyrir samtarfið
Freydís Dúfa
E.s. Dúfur munið:
Við erum Dúfur
við stillum til friðar
með því að ýta
öðrum til hliðar!!!
Flokkshróp Dúfna '99
Dúfur kunna líka að klifra.
Flokksforingjanámskeið 1
Ég byrjaði á því að að fara í Herjólf og
komst alveg stórslysalaust í
Herjólfsrútuna en svo fór ég einhvern-
veginn að því að týnast og beið niðri á
BSÍ til kl 23:30 eftir rútu sem átti að
koma kl 19:00. Þá hringdi ég heim og
þurfti að gista hjá ömmu minni sem
þurfti að sækja mig niður á BSÍ.
Morguninn efir var mér keyrt upp í
Hverahlíð við Kleifarvatn. Þar kom ég
inní miðjan enda fyrirlesturs. Svo fórum
við í leik sem heitir þriðji maðurinn og
þá tók við annar fyrirlestur og skipu-
lögðum við 3 flokksfundi og svo var
okkur sagt að við þyrftum að fram-
kvæma einn þeirra. Minn flokkur var
svo búinn að fræmkvæma 2 meðan hinn
flokkurinn var bara búinn með 1 en svo
fengum við 10 mínútna hlé á meðan
hinir voru að klára sinn. Flokkarnir hétu
Tiltæk og Ávalt-viðbjóður. Svo var kjöt-
Doddi og Elvis
súpa í hádegismat en ég fékk mér ekki
neitt út af því að ég gleymdi matar-
áhöldum. Svo skipulögðum við gön-
guferð handa hinum flokknum og öfugt.
Við gerðum góða leið handa hinum sem
var að skóla í nágrenninu og þegar þau
voru hálfnuð á leiðinni til baka áttu þau
að fara upp á fjall og svo upp í skálann
á meðan við áttum bara að fara upp á
fjallið og til baka. Hinn flokkurinn sett-
ist niður þegar hann var hálfnaður að
fjallinu og kom ekki til baka þaðan fyrr
en við vorum komin niður af fjallinu og
komin inn í skálann og komu þau þá
beint í skálann án þess jafnvel að hafa
farið upp á fjallið svo ég segi bara að
þau hafi verið löt!!!! Svo var „SMÁ“
hlé og svo einn fyrirlestur fyrir kvöld-
mat. Kvöldleikurinn byrjaði í kvöld-
matnum. Tvemur krökkum var rænt af
geimverum og það átti að gerast á land-
námsöld! Svo voru sagðar draugasögur
og klukkan hálf tólf var kyrrð og ALLIR
VIRTU HANA. Daginn eftir skipu-
lögðunr við útifund og héldum hann.
Svo var farið niður á BSÍ og þar endaði
ferðin.
Takk fyrir.
Kveðja: DODDI
$
SKÁTABLAÐIÐ FAXI