Skátablaðið Faxi - 01.12.1999, Síða 19

Skátablaðið Faxi - 01.12.1999, Síða 19
Dróttskátanámskeið Við fórum fimm héðan úr Vestmanneyjum á námskeið fyrir eldri skáta þ.e. dróttskáta námskeið. Fórum við með Herjólfi og stefndum á Reykjavík. Þegar við útlendingarnir komum í bæinn þá rötuðum við ekki. En við björguðum því með að spyrja ein- hvern krakkahóp til vegaren svo vildi til að það voru aðrir skátar. Þegar þau voru búinn að vísa okkur í Skátahúsið þá fórum við í verslun til að kaupa matinn fyrir helgina. Svo var haldið út í óvis- suna því ekki vissi neinn hvar námskeiðið var haldið en seinna um kvöldið komust við að því að skálinn heitir Arnarsetur og er við afleggjarann við Bláfjöll. Það var fremur kalt í veðri og fljúgandi hálka. Það var haldinn kynningarleikur og fengu allir að vita hvað allir hétu t.d. leiðbeinandinn Addi og var frá Akureyri. Var síðan ekkert gert um kvöldið, fóru sumir að sofa en fengu ekki svefnfrið fyrir andvökufólk- inu. En endaði með því að allir sofnuðu. Var ræs klukkan 9:00 þá voru sumir sem vildu ekki vakna og þurftu Matti (Faxi) og Gísli (Kópur) að taka það í sýnar hendur og drógu stelpu uppúr sem var enn ofan í svefnpoka. Farið var í morg- unleikfimi úti í kuldanum og reyndum við svo að flagga íslenska fánanum en það var ekki hægt vegna þess efst á fánastönginni var hnútur. Haldnir voru einhverjir fyrirlestrar um dróttskátastarf en haldið var svo í rosa-hike. Laugardagurinn leið hratt og það var komið kvöld. Fórum við í næturleik sem heitir ljósaleikurinn. Draugasaga var lesin og Hvergerðingar komu og heim- sóttu okkur. Næsta dag var tekið til og mér og Herdísi var skipað að taka til á klósettinu en komust undan með okkar félagsfræðigáfum og sluppum þá við að taka þar til því Addi var búinn að því. Farið var út á veg og beðið heim- leiðarinnar. Þeir sem fóru frá Vestmannaeyjum voru Rósa, Herdfs, Stína sem týndi svefnpokanum sínu og varð að sofa með teppi, Matti og Sindri. Rósa Jónsdóttir Sveitaforingjanámskeið 1 Helgina 8-10 október var haldið sveitaforingjanámskeið á Ulfljótsvatni. Voru aðeins tveir frá Faxa sem fóru, Anna Jóna og Stína. Mættum við niður í Herjólf um þrjú- leytið og fór hann kl 15:30. Vorum við komin á áfangastað svona urn tíu leytið. Síðan var farið í kynn- ingaleik og límt á okkur stafur sem tákn- aði ákveðið dýraheiti, og áttum við síðan að reyna að flokka okkur í hópa án þess að vita hvaða staf við værum með og gekk það ágætlega því að Anna Jóna var svo sniðug að segja að hún væri allavega ekki með G. Og voru hóparnir síðan skýrðir eftir frumskógardýrum og hét okkar hópur „Górillur11 og fengu við það verkefni að búa til hróp, merki og vinabönd flokksins. Síðan komum við okkur fyrir og fórum á kvöldvöku. Og á eftir henni fórum við í smá næturleik. Leikurinn var þannig að við áttum að vera með bundið fyrir augun og halda í band og fylgja því niður brekkur og yfir spýtur, og^ekk sumum vel en öðrum illa. A laugardeginum var ræs kl 8:00, her- bergisskoðun kl 9:30 og síðan farið í morgunleikfimi, fána og morgunmat. Síðan hófust fyrirlestramir svona um ellefuleytið og fann maður til skriffærin Stina smily og fór að skrifa upp eftir glærum, og skrifuðum við heilmikið. Við æfðum síðan leikrit fyrir kvöldvökuna og átti leikritið að fjalla um George of the jun- gle. Gekk kvöldvakan mjög vel, og fengum við síðan kakó og kex um kvöldið. Síðan fóru nokkrir upp í Gilwell-skála og var spjallað um hitt og þetta, meðal annars skoðuðum við gamla minjagripi og skoðuðum myndir af gömlum skátum. Síðan var farið að sofa eitthvað að ganga tvö. A sunnudeginum var ræs kl. 8, her- bergisskoðun , morgunleikfimi og fáni. Og fórum við síðan í morgunmat og strax á eftir honum byrjuðu fyrir- lestrarnir. Við fórum í nokkra leiki þess á milli. Síðan tókum við allt til og lögðum af stað um fjögurleytið. Við vorum svo heppnar að fá far til Þorlákshafnar því Stefanía bauðst til að keyra okkur. Og komum við aðeins við í Hveragerði á leiðinni. Síðan keyrði hún okkur til Þorlákshafnar. Voru allir mjög ánægðir með þessa helgi og gekk allt vel. Stína. SKÁTABLAÐIÐ FAXI

x

Skátablaðið Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.