Skátablaðið Faxi - 01.12.1999, Síða 21

Skátablaðið Faxi - 01.12.1999, Síða 21
Fyrrverandi skátar teknir tali HÆ! Ég heiti Erna og er í ritnefnd Faxa-blaðsins og ákvað að taka viötöl við tvo gamla skáta en þanning vill nú til að fleiri voru í skátunum en margan grunar. Vissir þú t.d. að yngismeyjarnar í viðtölunum voru skátar? Nafn: Dröfn Gísladóttir. Afhverju gerðist þú skáti? Fékk áhuga á skátastarfi og langaði til þess að vera í skátunum. Hvað hét flokkurinn sem þú varst í? Flokkurinn minn hét Slaufur. Hvert var Eftirminnilegasta atvikið? Þegar við fórum á Úifljótsvatn, og þegar ég var skátaforingi Hvað lœrðiru ískátunum? Við lærðum að binda hnúta, brjóta saman íslenska fánann, lærðum mikið af skátalögum og reglum. Sérðu eftir því að hafa hœtt? Já, ég hefði viljað vera lengur. Hvaða skátar voru mest áberandi þegar Sigga og Steinunn, Faxkópar með félögum sínum í Kópum. þú varst í skátunum? Vigdís Rafnsdóttir og Kristín Sigurðardóttir Hvað varstu lengi í skátunum? Ég var í u.þ.b. 4 ár. F axkópar 3 Faxar, frændsystkynin Palli, Sigga og Steinunn eru búin að starfa hálfan vetur í skátafélaginu Kópum í Kópavogi og ætlum við aðeins að greina frá því samstarfi. Við störfum í dróttskátasveitinni D.s andromedu en það er ein elsta d.s sveit landsins og erum við búin að fara í ansi skemmtilegar ferðir með þeim. Við fórum á dróttskátamót í Þórsmörk en með í ferð voru d.s sveitir og hjál- parsveitir úr Kópavogi,Garðabæ og Hafnafirði. Þetta var nokkurn vegin tilraunamót sem heppnaðist mjög vel og verður líklega haldið aftur næsta ár með fjölmennari hóp. Svo höfum við farið í útilegu uppí Þrist sem átti að vera ein- hvers konar lögunar útilega en var lítið gert annað en að spila Kana og grafa skurð á vitlausum stað. við erum öll flokksforingjar og við höfum kynnst mikið af nýjum siðum og venjum og hefur verið ánægjulegt að vinna með þessu félagi. Nafn: Fríða Hrönn Halldórsdóttir Afhverju gerðist þú skáti? Ég byrjaði á því að fá að fara með Heiðu Björk frænku á fundi og mér leist svo ljómandi vel á allan sönginn og gleðina að ég ákvað að slást í hópinn. Hvað hét flokkurinn sem þú varst í? Fyrsti flokkurinn sem ég var í hét Eyjarósir og hef ég nú verið í flokknum en ég man nú bara ekki nöfnin á þeim öllum. Hvert var Eftirminnilegasta atvikið? Allar miningar úr skátunum eru ævin- týralegar og skemmtilegar en ætli eftirminnilegasta atvikið sá ekki bara þegar ég var í skátasumarbúðum á Úlfljótsvatni ásamt stelpum frá Patreksfirði og við vorum í viku og þegar við vorum allar að koma heim þá var öllum orðið mál að pissa og tvær pissuðu í sig. (Sko ekki ég, ég er sko alvöru skáti og gat pissað í náttúrunni) Hvað lærðiru ískátunum? Ég lærði ýmislegt t.d. að bjarga mér! (Mamma, við ættum að senda Ágúst bróður í skátana!!) Sérðu eftir því að hafa hœtt? Já og aftur já. En ef það verður tekin ákvörðun um að lengja sólarhringinn þá kem ég aftur!! Hvaða skátar voru mest áberandi þegar þú varst ískátunum? Palli Zóph., Mummi, Ágúst Bjarna og síðan voru náttúrulega Adda og Siddý mest pæjumar í skátunum þegar ég var að byrja. Hvað varstu lengi ískátunum? Er ekki eitt sinn skáti, ávallt skáti?!!! m SKÁTABLAÐIÐ FAXI

x

Skátablaðið Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.