Skátablaðið Faxi - 01.12.2002, Qupperneq 4
Dögun á leið í dagsferð allir mjög spenntir, erum á leið í sund. Við viljum þakka
Sundhöllinni fyrir að leyfa okkur að fara ofan í þegar hún var lokuð
Sveitin Dögun
Við sem stjórnum Dögun tókum við
henni haustið 2001 og þá voru starfandi
20 ylfingar en nú haustið 2002 erum við
orðin 30 ylfingar. Og teljum við að það
sé nú góð aukning. En nóg um það,
okkur langar að segja ykkur frá því sem
sveitin hefur gert síðan við skrifuðum
síðast sem er jú margt merkilegt og
spennandi. Til dæmis þá héldum við
poppfund en þar sem við foringjamir
gleymdum okkur í skipulagi komumst
við ekki út í búð. Við fórum einnig og
héldum fund upp í Skátastykki og
fengum okkur grilaðar pulsur sem við
elduðum sjálf á opnum eldi og pepsí
með og voru allir glaðir þótt þeir hafi
þurft að henda pulsunni. En einnig
fórum við í dagsferð, en þar sem álög
em á foringjaráði okkar um dagsetn-
ingar og vont veður þá breyttist planið
pínulítið það sem átti að gera úti var gert
inni, en við ákváðum á síðustu stundu
að fara í sund, en komumst þá að því að
þegar við fórum upp í sundhöll var
sundlaugin lokuð, en starfsfólkið bjarg-
aði þessari sundferð alveg og opnaði
fyrir okkur (að hugsa sér við fengum
sundlaugina útaf fyrir okkur og
krakkana okkar.) En eftir vænan sund-
sprett þá fengum við hana Tótu til að
keyra okkur upp í skátastykki þar sem
við fengum okkur kaffi og með því
(kakó og kex). Heldum fína kvöldvöku
og gáfum viðurkenningar fyrir veturinn
og fóru því allir sáttir heim eftir
skemmtilegt og viðburðaríkt skátastarf
frá haust 2001- vors 2002.
En færum okkur nú nær og förum í
gegnum það sem sveitin hefur gert eftir
september 2002 en það eru ekki svona
viðburðir en við erum alltaf með fundi á
sama tíma eða svona samfundarkerfí.
En samfundarkerfi er svona þegar allir
flokkamir í sveitinni eru á fundi á sama
tíma það gerir mér kleift að fylgjast með
því sem foringjarnir eru að gera með
sínum flokkum sem þið fáið að lesa í
þeirra greinum hér á eftir. En við sem
sveit ætlum að halda jólafund þann 18
desember í salnum okkar í skátaheimil-
inu við Faxastíg og mun hann hefjast
klukkan 17 og enda klukkutíma síðar.
Planið eftir áramót er að fara í eina
sveitarútilegu upp í Skátastykki og
dagsetning verður ákveðin síðar. En
þetta er bara smá dæmi um framhaldið,
við stefnum auðvitað öll á að fara á
landsmótið 2005 12.-19. júlí (og um að
gera að fara bara að safna) og svo er á
planinu að halda Faxa mót hér í eyjum
10.-13. júlí 2003og ætlum við í Dögun
að vera í farabroddi þá. Bíðið bara og
sjáið hvað gerist!!!!!
Fyrir hönd sveitarinnar
Rósa Jónsdóttir sveitarforingi
Örninn
Við erum flokkurinn Örninn, í
flokknum okkar eru Friðrik Már, Grétar,
Gísli, Gísli Matthías, Hafþór, Kristinn
og Guðjón. En foringjar okkar eru Alma
og Jóhanna Kristín.
Hrópið okkar er Ö-R-N-I-N-N flýgur
Við erum búnir að fara í göngu, hella-
ferð, útilegu og margt margt fleira.
Svo erum við að fara að eignast vina
flokk og munum skrifast á við hann eftir
jól.
Jólakveðja
Örninn
Halastjörnur
Við erum flokkurinn Halastjörnur og
við heitum: Agústa, Elín Ósk, Helga
Rut, Kolfinna, Rakel, Sandra Sif og
Sædís Birta. Foringjar okkar heita:
Sandra Guðrún og Þóra Birgit. Við erum
búnar að gera margt skemmtilegt í vetur,
t.d. fara í sund, skreyta kerti, búa til
hljóðfæri, lærðum söngva og gerðum
SKÁTABLAÐIÐ FAXI