Skátablaðið Faxi - 01.12.2002, Side 8
Landsmót skáta að Hömrum 15-23 júlí 2002
Fríður hópur Faxa fóru á Landsmótið
eða við vorum 34, og telst það mjög
gott. Landsmót skáta er mjög einken-
nandi því að skátar eru þekktir fyrir að
nota ekki nagla í trönubyggingum og er
það alveg sérstakt að fara í viku tíma og
dvelja þar sem skátar og sjá hvað er búið
til fallegt bæjarfélag á svona litlum
tíma. Landsmótið er líka einkennandi að
það eru allir svo ánægðir með allt. En
svo ég haldi mig við okkur, við lögðum
á stað í Herjólf þann 15 júlí klukkan 8
og voru allir mjög hressir og spen-
ningurinn að drepa mann. Þegar í
Þorlákshöfn var komið þurftum við að
bíða eftir rútunni sem hafði víst gleymt
okkur eða misskilið pöntunina. En seint
koma sumir en koma þó, er hægt að
segja um rútufélag norðurlands. En þar
sem við vorum búin að ákveða að keyra
yfir Kjöl sem er mjög skemmtileg leið
norður, en það reyndist ekki vera eins
gaman því það var þoka og rigning alla
leiðina. Ekkert útsýni yfir náttúru
íslands því verr og miður! En við stopp-
uðum á nokkrum stöðum á leiðinni t.d
Gullfoss og Geysir, en við vorum hep-
pinn að fá að sjá Geysi gjósa. En langt
var liðið á kvöld þegar við náðum þeim
áfanga stað sem við ætluðum okkur að
dvelja á í viku, og eiga góðar stundir
saman. En áður en við fórum ofan í
svefnpoka tjölduðum við öllum tjöl-
dunum og þar á meðal stóra matartjald-
inu. Þriðjudagurinn ló.júlí, þar sem við
vorum fyrsta félagið á svæðið þá byr-
juðum við að setja upp okkar flotta hlið
sem var eftirlíking af Ystakletti, geggjað
flott. En á meðan við vorum að gera það
voru önnur félög að tínast á svæðið.
Þessi dagur var mjög góður, þó svo að
spenningurinn magnaðist meira og
Bakkabræður á leið í Sólarhringshike.
Hér er Ystiklettur og á myndinni er Fanndís.
meira sem leið á daginn. En setningin
var mjög löng og skemmtileg að minni
sögn, því við fengum að ganga allan
Kjamaskóg, en margir voru nú orðnir
pirraðir á því, spenningurinn var svo
mikill að þau mátu ekki vera að því að
horfa á fallegar verur, sem sagt fólk sem
var búið að stilla sér upp sem álfar, tröll
og huldufólk á milli trjánna. En setn-
ingin var bara hinn ágæta þegar við
komumst að staðnum sem mótið átti að
vera sett. Eftir setninguna fórum við í
okkar tjaldbúð, og að sofa. Næsti dagur
gekk bara nokkuð vel fyrir sig en þetta
var dagurinn sem hliðið var reyst alveg
og gekk það mjög vel. En þetta mun víst
vera miðvikudagur 17. júlí. Alvaran
byrjaði ekki fyrr en 18. júlí þegar
flokkamir fóru á stað í dagskrá sem að
þeirra sögn heppnaðist mjög vel, komið
var samt vel þreytt heim eftir skemmti-
legan og viðburðaríkan dag. En svona til
að nefna dæmi um það sem krakkarnir
tóku sér fyrir hendur sem er allt mjög
krefjandi og gefandi, t.d. flekagerð sem
skátarnir búa til sinn eigin fleka og líka
fóm þau að kafa í drullu eða öðrum
orðum vatnasafari sem er alveg mergj-
að. Tveir flokkar fóm í svo kallaða
sólarhringshike sem gekk svona ágæt-
lega nema það að þau voru í símasam-
bandi við okkur allan tíman, þau fundu
ekki þá staði sem þau áttu að fara á. En
komust þó á áfangastað sem er skáli sem
skátafélagið Klakkur á, hann heitir
Fálkafell og er á mjög fallegum stað.
Þetta var mjög viðburðaríkur dagur, og
held ég að allir geti verið sammála mér
í því. Nú er komið að 19.júlí sem ská-
tamir gleyma seint, ein flokkurinn fór í
BMX-þrautabraut sem gengur út á það
að skátarnir taka BMX hjól í sundur og
setja það aftur saman og þurfa svo að
hjóla á því einhverja vegalengd sem er
bara drullusvað, geggjað gaman. Og
einn flokkur fór í heim Harry Potter sem
var auðvitað mjög gaman það þekkja nú
allir ævintýri hans og þetta var svipað
ævintýri. Haldin var skemmtileg kvöld-
vaka eins og alla hina daganna, sungið
og sungið. Laugadagurinn 20. júlí er
alltaf eitthvað spes, þar reyna félöginn
að kynna sína heimabyggð eins vel og
unnt er, þetta er svona talin aðaldagur-
inn. Því þennan dag koma flestir og eru
flestir þennan dag sem koma í heimsókn
SKÁTABLAÐIÐ FAXI