Skátablaðið Faxi - 01.12.2002, Qupperneq 14

Skátablaðið Faxi - 01.12.2002, Qupperneq 14
Ovissnferðin 25.-27. janúar Við mættum klukkan 16:00 á fös- tudeginum. Þar sem við hittum tvo af þremur stjórnendum Braga og Þóru. Veðrið í sjóinn var ekkert sérstakt, hópurinn sem átti að koma með þeim var eftir og Gísli í Dalakoti ( skátaskála á Hellisheiðinni). Og komu svo með Herjólfi daginn eftir. En á föstudeginum var farið upp í Skátastykki þar sem óvis- suferðin var haldin. Þar gerðum við tvö verkefni; dulmál og póstkassa. Allir óþarfa hlutir voru teknir af okkur s.s símar, vasaljós, úr, hárburstar, gallabux- ur, skátahandbók og vasahnífur sem dæmi. Við fengum svo kvöldkaffi og drifum okkur svo í háttinn því skemmti- legur dagur var framundan. Svo vöknuðum við eða vorum vakin kl.09:30. Þá borðuðum við morgunmat og höfðum það gott til kl.13:30 en þá löbbuðum við af stað niðrí spröngu. Þegar þangað var komið sprönguðum við smá og fórum svo niðrí Skýli til að fá okkur að borða. Þegar því lauk fórum við aftur upp í spröngu, en þá fórum við að síga. A meðan við vorum að síga þá komu krakkarnir ofan af landi til okkar og fórum við upp í Skátaheimili. En þegar þangað var komið fengum við snúða, vínabrauð og svala. Þegar allir voru saddir var haldið upp í skátastykki og vorum við mætt á misjöfnum tíma upp eftir. Farið var betur yfir leikin og hópamir hittust eftir að hafa starfað smá saman í gegnum talstöðvar. Þegar allir voru búnir að koma sér fyrir var. Mysukeppni milli hópa sem gekk bara ágætlega. En svo var stemmt til réttarhaldar, því upp komst svindl í leiknum og tóku rét- tarhöldin allt kvöldið. Að okkar mati heppnaðist þessi ferð mjög vel, og þetta er mjög eftirminnileg helgi. Sandra og Erna Hér er Gummi Landnemi að vaska allt upp eftir sig. Hópmynd frá óvissuferðinni Óskum öllum bæjarbúum gleðilegra jóla með þökk fyrir viðskiptin á árinu Starfsfólk oj> eipdur Óskum öllum bæjarbúum meö þökk fyrir viðskiptin á árinu fssa Básaskersbryggju Óskum öllum bæjarbúum gleóilep jóía með þökk fyrir samskiptin á árinu MIÐSTÖÐIN SKATABLAÐIÐ FAXI

x

Skátablaðið Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.