Skátablaðið Faxi - 01.12.2004, Síða 4
„Vatnasafarf’
Flokksfor ingj anámskeið
17.-19. september
Fórum í Herjólf klukkan hálf 4 og þeir
sem hafa farið í Herjólf vita hvemig það
er. Þegar við komum í Þorlákshöfn,
þurftum við að bíða í sjoppunni
geðveikt lengi. Þegar rútan okkar kom
loksins fómm við upp á Ulfljótsvatn og
þá var okkur sagt í hvaða hópum við
væmm, fyrirlestur var haldin um
hvernig maður eigi að vera foringi, eftir
það fengum við kakó. Það fóm svo allir
inn í herbergin sín að bíða eftir að þeir
sem sáu um námskeiðið fæm að sofa
svo að við gætum spjallað. Sumir fóm
að tala saman en sumir að sofa, en
verkefnið sem við fengum var það að
við áttum að halda lífi í eldi alla helgina.
Við vomm vakin með geðveikum látum
klukkan átta um morguninn í fána og
morgunleikfimi, svo að sjálfsögðu var
skálaskoðun. Við áttum að klæða okkur
fyrir dagskrána. Fyrst fómm við á fyrir-
lestur hjá Gísla sem fjallaði um skipulag
á fundum og endaði með leikjum. Við
fórum í klessuleikinn þar sem allir áttu
að festa sig saman við næsta mann og
nokkrir áttu að reyna svo losa flækjuna..
Eftir hádegismatinn máttum við aðeins
tala saman en svo fórum við í dagskrá.
Við gerðum gifsmót laufblaði, löbb-
uðum einhverja braut þar sem maður fór
ofan í drullu og eitthvað ógeð, trjá-
greiningu, poppa yfír opnum eldi,
smakka allskonar dót sem við fundum í
náttúrunni, og í ratleik fram að kaffi þar
sem við fengum köku og kex. Eftir það
fóru margir í vatnasafarí sem var mjög
gaman að horfa á. Eftir að allir voru
búnir að þurrka sig og klæða sig vel þá
var skipt í tvo stóra hópa, einn hópurinn
Svaka fjör á
flokksforingjanámskeiðinu!
labbaði upp á fjall til að horfa á kanó
kappakstur þar sem græni báturinn
vann. Þegar sumir voru búnir að jafna
sig eftir að hafa tapað löbbuðum við
lengra til að fá að fara með kanó til
baka. Flottur matur beið okkar upp í
skála, enda allir mjög svangir. Aftur var
farið í vatnasafarí þar sem sumir fóru
ofan í og aðrir horfðu á og hlógu og tóku
myndir. Svo var haldið aftur inn og
nokkrir tóku sig til við að mála strákana
og svo var farið að sofa þar sem fólk var
búið að vaka nokkuð lengi.
Ræs var klukkan 8 í fáni og morgun-
leikfimi. Svo fóru bara allir að taka til
og þrífa herbergin fyrir skála skoðun því
enginn vildi þnfa klósetið. Allir
ógeðslega úldnir í morgunmat, haldin
var fyrirlestur sem fáir hlustaðu á. Það
var svo ákveðið að hætta við alla
dagskrá svo að við gætum kvatt alla
krakkana með því að krota á hendur
hvort á örðu. í hádegismatnum var varla
tími til að borða því það töluðu allir svo
mikið. Að lokum
voru teknar
myndir, talað
saman og farið í
leiki, en það var
mjög erfitt að
kveðja krakkana.
Enda skemmtileg-
ur félagskapur
alla helgina og
mjög gaman.
Kveðja
Bakkabræður
Vífilsbúð
27.-29. febrúar
Fórum með Herjólfi upp á land á fös-
tudegi og ætluðum okkur að fara í
vinaútilegu til Kópana. Þegar við
komum inn í skálann fórum við upp á
loft að búa um okkur og spjölluðum
dulítið. Síðan fórum við niður og
fengum okkur að borða og svo var farið
að sofa. Daginn eftir vöknuðum við og
fengum morgunmat og þegar við vorum
tilbúin fórum við út að kveikja eld og
varð hann að risastóru báli og við lékum
okkur að setja drasl á eldinn. Svo var
farið í hring og punkt og var farið í felur
sig á ýmsum stöðum, þar á meðal kam-
rinum (sem var bara ógeðslegur) og einn
strákanna læsti stelpur inni. Þær urðu
alveg brjálaðar því lyktin var svo ógeðs-
leg, en auðvitað hringdu þær bara í
Leifu og báðu hana um að opna
kamarinn. Svo fengum við okkur að éta
og bara chillað, talað saman og
svoleiðis. Svo vorum við reknar í föt og
okkur sagt að fara út, í hellaferð, þar
sem skoðaðir voru einhverjir hellar. Við
máttum ráða hvort við vildum fara í
annan og allir nema Margrét og Þóra
nenntu því ekki og reyndu þær þá að
komast aftur í Vífilsbúð sem var dálítið
snúið því þær fundu ekki skálann. Þegar
allir komu til baka var farið í leiki og
talað saman. Daginn eftir var gengið frá
og farið í okkar yndislega Herjólf.
Geggjað skemmtileg ferð í alla staði
takk fyrir útileguna
Kveðja
Bakkabræður
4
SKÁTABLAÐIÐ FAXI